„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áttræður maður tekinn af lífi af svartklæddum reiðhjólamanni – Morðið náðist á öryggismyndavél

Áttræður maður tekinn af lífi af svartklæddum reiðhjólamanni – Morðið náðist á öryggismyndavél

Sjokker­andi mynd­skeið úr örygg­is­mynda­vél sýnir aftöku átt­ræðs manns í Bronx-hverf­inu í New York. Maður á reið­hjóli, klæddur eins og ninja, skaut mann­inn í höf­uðið fyrir framan eig­in­konu hans. Og hjólaði svo í burtu.

The New York Post segir frá því að Marcelino Valerio og eig­in­kona hans hafi verið að koma heim úr 16 ára afmæl­is­veislu og hafi verið komin út úr bíl sem skutl­aði þeim heim er hinn aldr­aði maður var skot­inn til bana fyrir framan heim­ili sitt, um klukk 01:10 eftir mið­nætti. Hið hrylli­lega morð náð­ist á örygg­is­mynda­vél.

Morðingi Valerio var klæddur í svartan klæðnað frá toppi til táar og var með svarta skíða­grímu. Hjólaði mað­ur­inn upp að Valerio og skaut hann tvisvar sinnum, annað skotið hæfði hann í höf­uðið.

Á mynd­skeið­inu sem náð­ist af verkn­að­inum, sést eig­in­kona Valerio í algjöru sjokki en tvær konur í miklu upp­námi drífa sig út úr bílnum, sem skutlað hafði gömlu hjón­unum heim og biðla til fólks í kring að sækja hjálp.

Nokkrum augna­blikum áður sést skot­mað­ur­inn í mynd­skeið­inu, hjóla fram­hjá bygg­ing­unni úr annarri átt, aug­ljós­lega að bíða eftir að Valerio komi úr bílnum. Hann snýr svo við og hjólar til baka þegar Valerio kemur út úr bílnum. Eftir morðið hjólaði mað­ur­inn á brott og hefur síðan verið leitað.

Lög­reglan hefur ekki enn gefið upp til­efni hryll­ings­ins sem gömlu hjónin upp­lifðu eftir að hafa sótt ánægju­lega veislu í New Rochelle í Westchester-sýslu, sam­kvæmt heim­ild­ar­manni innan lög­regl­unnar.

Hús­vörður bygg­ing­ar­innar þar sem hjónin bjuggu, lýsir Valerio sem hörku­dug­legum og rólegum manni.

„Hann var ekki mikið úti, hann var heima­kær,“ sagði hús­vörð­ur­inn, Rafel De Leon, sem sagði fjöl­miðlum að þau hjónin ættu dóttur. „Hann var aldrei til vand­ræða. Hann var frá­bær mann­eskja,“ bætti De Leon við.

Valerio hafði aðeins einu sinni kom­ist í kast við lögin en það var árið 1993 er hann keyrði undir áhrifum áfengis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“