„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tvær fyrirsætur myrtar með tveggja daga millibili: „Ég vil einhver svör því dóttir mín er farin“

Tvær fyrirsætur myrtar með tveggja daga millibili: „Ég vil einhver svör því dóttir mín er farin“

Tvær fyr­ir­sætur fund­ust myrtar með tveggja daga milli­bili í Los Angeles-borg. Ekki er talið að morðin teng­ist.

Maleesa Mooney, 31 árs módel og fast­eigna­sali, fannst látin í íbúð sinni í miðbæ Los Angeles þann 12. sept­em­ber. Ekki hefur dán­ar­or­sök verið gefin upp en þó er talið að and­látið hafi borið að með sak­næmum hætti, sam­kvæmt tals­manni lög­regl­unnar í Los Angeles, Tony Im.

Blessuð sé minn­ing hennar.

Lög­reglu­menn fundu lík Mooney um klukkan 16:00 þann 12. sept­em­ber, eftir að þeir höfðu verið beðnir um vel­ferð­ar­at­hugun á henni. Bailey Babb, frændi hennar sagði í fjöl­miðlum að fjöl­skyldu­með­limir hennar hafi orðið áhyggju­fullir eftir að hún hætti öllum sam­skiptum.

„Þegar vika leið, vissum við að eitt­hvað var að,“ sagði Babb. „Skila­boðin til hennar voru ekki að ná í gegn og við vissum að eitt­hvað var að því við eigum öll í ein­stöku sam­bandi við Maleesu.“

Systir Mooney, Jourdin Pauline, sem er popp­stjarna frá Gvæjana, syrgði dauða hennar í færslu á Instagram þar sem hún skrif­aði: „Aldrei í milljón ár hélt ég að ég þyrfti að skrifa þessa færslu og leita eftir rétt­læti fyrir einka­systur mína. Hjarta mitt er kramið. Ég trúi ekki að þú verðir ekki með okkur lengur. Þú varst svo elsku­leg og góð við alla. Þú sást til þess að ef þú fékkst að borða, fengu allir aðrir það líka. Þú opn­aðir faðm þinn fyrir fólk sem átti ekki skilið vin­áttu þína. Þú ert það besta sem komið hefur inn í líf flestra. Þú snertir við fólki!!!“

Lík Mooney fannst tveimur dögum eftir að fyr­ir­sætan Nichole Coats fannst látin íbúð sinni í miðbæ Los Angeles. Lög­reglan telur þó að málin tvö teng­ist ekki.

Nicole Coats, 32 ára, fannst látin í íbúð sinni þann 10. sept­em­ber en það var faðir hennar og frænka sem fundu hana. Þau höfðu orðið áhyggju­full eftir að ekk­ert heyrð­ist frá Nicole í fjöldi daga.

Blessuð sé minn­ing Nichole

Stuttu eftir and­látið, tjáðu ein­stak­lingar nánir Nichole, sem einnig var kölluð Nikki, sig um harm­leik­inn.

„Þetta er glóru­laust og ég vil ein­hver svör því dóttir mín er farin,“ sagði móðir hennar, Sharon Coats, í við­tali við KTLA. „Og þetta er ekki sann­gjarnt. Ég vil að allir kom­ist að því hver gerði henni þetta. Hún ætti ekki að vera farin.“

Frænka Nikki, May Stevens, sagði frá hinni hrylli­legu aðkomu þann 10. sept­em­ber. Sagðist hún ekki hafa „geta þekkt“ frænku sína.

„Mér fannst bara allt hreyfast í hæga­gangi (e. slow motion),“ sagði frænka hennar Sheniya Mason. „Og ég er enn í áfalli, í afneitun um að hún sé ekki lengur hér. Þetta leit bara ekki eðli­lega út að okkur fannst. Það hvernig hún var stað­sett í rúm­inu. Hún var jafn­vel óþekkj­an­leg, eins og hún hafi orðið fyrir bar­smíðum. Þeir þurftu að bera kennsl á hana með því að skoða húð­flúrin hennar.“

Fjöl­skylda Nikki er stað­ráðin í að kom­ast að sann­leik­anum.

„Þetta er raun­veru­leik­inn okkar núna, að lifa án hennar,“ hélt frænka hennar áfram. „Ég veit að við munum ekki fatta þetta strax, ekki fyrr en hátíð­arnar byrja … hún mun ekki ganga inn um dyrnar … Ég hef ekki enn áttað mig á þessu. Ég veit bara að ég elska hana og mun allta elska hana. Ég vil bara að andi hennar og arf­leið hennar lifi áfram.“

Aðeins eru um fimm kíló­metrar á milli íbúða þeirra Nichole og Maleesa en lög­reglan telur málin tvö ekki tengj­ast. Yfirvöld segj­ast rann­saka and­lát Maleesu sem morð en and­lát Nichole sem „grun­sam­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“