„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Morðið á Rachel Morin – Nafnlaust framlag hækkaði verðlaunaféð upp í fjórar milljónir

Morðið á Rachel Morin – Nafnlaust framlag hækkaði verðlaunaféð upp í fjórar milljónir
Rachel Morin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Búið er að hækka upp­hæð­ina fyrir upp­lýs­ingar sem leiða til hand­töku morð­ingja Rachel Morin, í rúmar fjórar millj­ónir, eftir nafn­laust fram­lag, sam­kvæmt lög­manns­stof­unni sem vinnur fyrir fjöl­skyldu Rachel.

Sjá einnig: Morðið á Rachel Morin – Lög­reglan birtir mynd­skeið af morð­ingj­anum

Liðnir eru næstum því tveir mán­uðir frá því að lík hinnar fimm barna móður fannst með­fram Ma and Pa stígnum í Harford-sýslu í Bel Air. CBS segir frá mál­inu.

Blessuð sé minn­ing Rachel Morin

Mynd­skeið úr örygg­is­mynda­vél var birt í ágúst en þar sést sá grun­aði yfir­gefa hús í Los Angeles sem hann hafði brot­ist inn í og mis­notað þar unga stúlku í mars. DNA-sýni sem fannst í hús­inu, pössuðu við þau sýni sem fund­ust á Morin.

Jeff Gahler, lög­reglu­stjóri Harford-sýslu sagði WJZ í síð­asta mán­uði að málið væri alls ekki að kólna og að lög­reglan sé að vinna sig í gegnum meira en þús­und ábend­ingar.

Á sama tíma er fjöl­skylda Morin að vinna með lög­manns­skrif­stofu í að finna nýjar vís­bend­ingar.

Lög­manns­stofan Rice, Murtha & Psoras tvö­fald­aði upp­runa­legu verð­launa­upp­hæð­ina í tæpar 2,8 millj­ónir króna en nafn­laus kona frá Bel Air bætti tæpri 1,4 millj­ónum króna við.

„Við erum djúpt snortin af þessu ótrú­lega örlæti þess­arar nafn­lausu konu frá Bel Air, Maryland,“ sagði lög­mað­ur­inn Randolph Rice í yfir­lýs­ingu. „Óbilandi skuld­bind­ing hennar til að leita rétt­lætis fyrir Rachel Morin er inn­blástur fyrir okkur öll. Með þessu umtals­verðu fram­lagi hafa verð­launin hækkað upp í rúm­lega fjórar millj­ónir króna, sem von­andi mun hvetja ein­stak­linga með upp­lýs­ingar, til að stíga fram.“

Þá hafa lög­menn­irnir einnig byrjað á staf­rænu átaki í til­raun til að höfða til spænsku­mæl­andi íbúa sam­fé­lags­ins. Á nokkrum dögum hafa um 81.000 flett­ingar verið á átak­inu.

Nú vona lög­menn­irnir að fleiri stígi fram með fégjafir, bæði til að bæta við verð­launin og til að styðja við fjöl­skyldu Morin.

„Við biðlum til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga um að fylkja sér að baki fjöl­skyldu Rachel á meðan við höldum áfram að leita vís­bend­inga um morð­ingj­ann,“ sagði Rice. „Við hvetjum alla sem vita eitt­hvað, sama hversu lítið eða smá­vægi­legt , að stíga fram og veita upp­lýs­ingar sem gæti hjálpað við að þekkja mann­inn í mynd­band­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“