„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Átökin á Gazasvæðinu: Viðbrögð heimsins vegna átakanna

Átökin á Gazasvæðinu: Viðbrögð heimsins vegna átakanna
Ísra­els­her við Gaza. Mynd úr safni með leyfi Amir Farshad Ebrahimi

Fjölmörg ríki og tals­menn þeirra hafa gefið yfir­lýs­ingar í kjöl­far sprengju­árásanna og inn­rás Hamas í Ísrael í nótt. Hér má sjá sam­an­tekt af því helsta sem frétta­stofan Al Jazeera tók saman og birti í dag.

Arababandalagið

Æðsti maður Arababanda­lags­ins, Ahmed Aboul Gheit hvatti til þess að hern­að­ar­að­gerðum og hringrás vopn­aðra átaka milli beggja aðila yrði taf­ar­laust hætt á Gazasvæðinu.

„Við­var­andi öfga­fullar og ofbeld­is­fullar aðgerðir Ísra­els­manna er tíma­sprengja sem sviptir svæðið öllum raun­veru­legum tæki­færum á að stöð­ug­leiki náist í fyr­is­já­an­legri fram­tíð.“

Brasilía

„Brasil­ísk stjórn­völd for­dæmir röð sprengju­árása og árása á jörðu niðri sem áttu sér stað í Ísrael og áttu upp­tök sín á Gazasvæðinu“ segir utan­rík­is­ráðu­neyti Brasilíu í yfir­lýs­ingu og hvöttu alla aðila til að forð­ast að átökin stig­magn­ist.

Belgía

„Belgía for­dæmir harka­lega þær umfangs­miklu eld­flauga­árásir gegn Ísra­elskum borg­urum, Ofbeldi og ógn dregur aðeins þján­ingu á lang­inn og hindrar greiða leið að sam­tali milli aðila. Hugur okkar er hjá öllum sem málið snertir. Við fylgj­umst grannt með með mál­inu“ skrif­aði ráð­herra utan­rík­is­mála Hadja Lahbib á sam­fé­lags­mil­inum X.

Tékkland

„Árás­irnar frá Gazasvæðinu eru ömur­legar hryðju­verka­árásir gegn Ísra­els­ríki og borg­urum þess“ sagði Petr Pavel, for­seti lands­ins í yfir­lýs­ingu. „Eld­flauga­árás­irnar og inn­rás her­manna Hamas í Ísrael munu koma í veg fyrir frið­sam­lega lausn á deilu Ísraels og Palest­ínu í langan tíma.“

Egyptaland

Egypta­land varar við alvar­legum afleið­ingum sem hljót­ast af því að magna spennu milli Ísraels og Palest­ínu í yfir­lýs­ingu sem utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins sem birt var í rík­is­miðli lands­ins.

Þar er kallað eftir því að aðilar hafi fullt taum­hald á sér og komið verði í veg fyrir að leggja óbreytta borg­ara í frek­ari hættu.

Frakkland

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, for­dæmdi það sem hann kallar hryðju­verka­árásir gegn Ísrael.

„Ég mót­mæli harka­lega þeim hryðju­verka­árásum sem skella á Ísrael þessa stund­ina. Ég lýsi yfir fullri sam­stöðu með fórn­ar­lömbum árásanna, fjöl­skyldum þeirra og þeim sem standa þeim næst.“ Skrifaði Macron á X.

Á sama miðli birti Franska sendi­ráðið í Ísrael „Okkur hryllir við því sem er að ger­ast og kemur sunnan að land­inu. Þessar hryðju­verka­árásir eru óboð­legar og ættu að vera for­dæmdar af öllum. Það stöndum þétt með Ísrael og Ísra­els­mönnum.“

Jórdanía

Utan­rík­is­ráð­herra Jórdaníu, Ayman Safadi, var­aði við eld­fimu ástand­inu „sér í lagi í ljósi þess hvað borgir og svæði Vest­ur­bakk­ans eru að verða vitni að af hálfu Ísra­el­skra árása og brot þeirra gegn Palest­ínu­mönnum.“

Þýskaland

„Okkur bár­ust hræði­legar fréttir í dag frá Ísrael. Við erum í áfalli vegna eld­flauga­árásanna frá Gaza og ofbeldis sem fær­ist í auk­ana. Þýska­land for­dæmir þessar árásir af hálfu Hamas og stendur með Ísrael“ sagði Olaf Scholz kansl­ari á sam­fé­lags­miðlum.

Grikkland

„Grikk­land for­dæmir sterk­lega þungar eld­flauga­árás­irnar í dag frá Gaza gegn Ísrael. Grikk­land stendur með Ísrael og hefur miklar áhyggjur af þess­ari óvið­un­andi aukn­ingu ofbeldis“ sagði Gríski utan­rík­is­ráð­herr­ann á X í dag.

Hezbollah

Vopnuðu sam­tökin Hezbollah frá Líbanon gáfu út yfir­lýs­ingu þar sem sagt er að þau fylgist grannt með gangi mála á Gazasvæðinu og væru í beinum sam­skiptum við leið­toga and­spyrnu­hers Palest­ínu og bættu við að árás­irnar hefðu verið afdrátt­ar­laus við­brögð við við­var­andi her­setu Ísra­els­manna og skila­boð til þeirra sem vildu ná jafn­vægi á sam­skipti sín við Ísra­els­menn.

Íran

Ráðgjafi Æðsta Leiðtoga Írana, Ali Hosseini Khamenei, sagði að Íranir styddu árásir Palest­ínu­manna sam­kvæmt frétta­veit­unni ISNA þar í landi.

Þar var haft eftir ráð­gjaf­anum, Rahim Safavi, að „Við óskum Palest­ínskum her­mönnum til ham­ingju. Við stöndum með palest­ínsku bar­daga­mönn­unum þar til að Palest­ína og Jer­úsalem hafa verið frelsuð.“

Utan­rík­is­ráðu­neyti Írans sagði að árásir Palest­ínu­manna væru til marks um aukið sjálfs­ör­yggi þeirra and­spænis her­töku Ísra­els­manna.

Ítalía

Ítalía taldi að Ísrael væri í fullum rétti til að verja sig gegn grimmi­legum árásum Ham­asliða. Rík­is­stjórnin sagði að þau „for­dæmdu í orðs­ins fyllstu merk­ingu þá ógn og það ofbeldi sem stæði yfir gagn­vart sak­lausum borg­unum.“

Japan

Japan for­dæmdi aðgerðir Hamas og ann­ara vopn­aðra Palest­ínu­manna gegn Ísra­els­mönnum í Ísrael og hvati báða aðila að sýna still­ingu til að forð­ast frek­ari skaða.

Kúveit

Kúveit lýsti yfir alvar­legum áhyggjum sínum vegna þró­unar mála milli Ísrael og Palest­ínu­manna þar sem Ísrael er kennt um hróp­legar árásir Ísra­els­manna og gera ákall til allra ríkja að stöðva ögrandi aðgerðir her­setu­liða Ísra­els­manna og aukið land­nám Ísraela.

Morokkó

„Morokkóska Kon­ungs­ríkið lýsir yfir miklum áhyggjum af hrörnun ástans­ins og hern­að­ar­að­gerðum á Gazasvæðinu, og for­dæmir árásir gegn óbreyttum borg­urum hvar sem þeir gætu verið“ sagði í yfir­lýs­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins.

NATO

Atl­ants­hafs­banda­lagið for­dæmdi aðgerðir Hamas gegn NATO rík­inu Ísrael og sögðu að hugur banda­lags­ins væri með fórn­ar­lömbunum og öllum sem málið snerti.

Dylan White, tals­maður NATO sagði að „Hryðju­verk er ógn við grunn­stoðir frjálsra ríkja, og Ísrael hefur fullan rétt á að verja sig.“

Katar

Utan­rík­is­ráðu­neyti Katar gaf út yfir­lýs­ingu þess efnis að Ísrael bæri ábyrgð á þeirri við­var­andi aukn­ingu á ofbeldi gegn Palest­ínu­mönnum. Þar er þess farið á leit við báða aðila að sýna still­ingu og gerir ákall til alþjóða­sam­fé­lags­ins að leyfa þessum atburðum ekki að verða til þess að Ísra­els­menn geti farið í óhóf­lega grimmt stríð gegn þegnum Palest­ínu.

Rússland

Rússland sagð­ist vera í sam­bandi við bæði Ísrael, Palest­ínu­menn og arabalönd í tengslum við aðgerð­anna milli Ísrael og Palest­ínu sam­kvæmt við­tali Mikhail Bogdanov við Interfax, en hann bætti við að „Það segir sig sjálft að við munum alltaf kalla eftir því að báðar hliðar sýni still­ingu.“

Sameinuðu Arabísku Furstadæmin

Sam­ein­uðu Arabísku Fursta­dæmin er eitt af þeim ríkjum sem núll­stilltu sam­skipti sín við Ísrael árið 2020 ásamt Bahrain og Morokkó. Fursta­dæmin kalla eftir því að báðar hliðar sýni fyllstu still­ingu og vopna­hléi verði komið á sam­stundis til að koma í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar og lýstu samúð sinni með fórn­ar­lömbum atburð­anna.

Bretland

Bretland gagn­rýndu aðgerðir Hamas og lýstu því yfir að Ísrael ætti fullan rétt á að verja sig gegn árás­unum.

Sameinuðuþjóðirnar

Formaður mann­rétt­inda­mála hjá Sam­ein­uðu­þjóð­unum, Volker Tuerk, sagði að „þessi árás er að hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir Ísra­elska þegna … óbreyttir borg­arar ættu aldrei að vera skot­mörk slíkra árása.“

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu­þjóð­anna mun hitt­ast á morgun, sunnu­dag.

Bandaríkin

Banda­ríkin for­dæmdu „skelfi­legar hryðju­verka­árás­irnar í Ísrael.“

Hvíta Húsið sagði í yfir­lýs­ingu að „Band­ríkin for­dæma ótví­rætt þessar til­efn­is­lausu árásir hryðju­verka­mann­anna Hamas gegn óbreyttum Ísra­elskum borg­urum. Við stöndum þétt með rík­is­stjórn og borg­urum Ísrael. Það er aldrei rétt­læt­ing á hryðju­verkum.“

Lloyd Austin, yfir­maður í Banda­ríska hernum, sagði: „Á næstu dögum mun varn­ar­mála­ráðu­neytið vinna að því að sjá til þess að Ísrael hafi allt sem þarf til að verja sig og þegna sína gegn ofbeldi og hryðju­verkum.“

Joe Biden var­aði aðra aðila sem eru óvin­veittir Ísrael að nota kring­um­stæð­urnar á Gazasvæðinu sér í vil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“