„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir alla á Vestfjörðum sammála um laxeldi: „Okkur er annt um náttúruna“

Segir alla á Vestfjörðum sammála um laxeldi: „Okkur er annt um náttúruna“
Ísa­fjörður – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: wikipedia

Gerður Sveins­dóttir segir alla á Vest­fjörðum sam­mála um að lax­eldi hafi haft jákvæð áhrif á Vest­firði.

„Á sunn­an­verðum Vest­fjörðum hafði verið stöðug fólks­fækkun í langan tíma. Ég ætla svo sem ekk­ert að rifja upp sög­una það eru aðrir sem eru betur til þess fallnir en ég, en nið­ur­sveiflan var löng og mik­ils von­leysis gætti. Húsum og götum var ekki við­haldið svo ég tali nú ekki um stofn­anir bæj­ar­ins en það voru ein­fald­lega ekki til pen­ingar til við­halds. Þeir sem gátu og vildu fara fóru en margir voru fastir í átt­haga­fjötrum þar sem ekki var mark­aður fyrir hús­næði á svæð­inu og ef þú varst það „heppin“ að geta selt þá hafði það ekk­ert að segja upp í íbúð ann­ars staðar á land­inu þar sem hús­næð­is­verð var það lágt,“ sagði Gerður í pistli sem birt­ist á Vísi fyrr í dag.

„Ég er ein af þeim sem fór suður árið 2004, ég var heppin, ég seldi ein­býl­is­húsið mitt fyrir 4,5 millj­ónir. Ég kom svo aftur árið 2011, keypti mér hús á 18,1 milljón og sprengdi mark­að­inn á þeim tíma. Fast­eigna­matið á hús­inu mínu hefur hækkað um 400% síðan þá.“

Þá sagði Gerður að þó að ekki allir séu sam­mála um lax­eldi þá verði ekki deilt um þau áhrif sem það hefur haft á sam­fé­lagið á Vest­fjörðum. Þó að Gerður sé fylgj­andi eld­inu þá þýði það ekki að hægt sé að gera betur.

„Okkur er annt um nátt­úr­una, líf­ríkið og sam­fé­lögin sem byggj­ast upp í kringum eldið og gerum kröfu til þess að umhverf­isslys líkt og það sem átti sér stað í Pat­reks­firði end­ur­taki sig ekki. Við viljum að allir þeir sem að koma, hvort sem það eru fyr­ir­tækin sjálf, ríkið eða aðrir leggi metnað sinn til þess að hægt sé að sinna þess­ari nýju atvinnu­grein svo að sátt sé um og sómi sé að.

Það er ótrú­lega erfitt og vont að hlusta á þá sem vilja útrýma þess­ari atvinnu­grein, því þá eru þeir á sama tíma að vega að til­veru­rétti og afkomu fólks sem eftir allt sem á undan hefur gengið öðl­ast trú á fram­tíð sam­fé­lags­ins hér fyrir vestan,“ sagði Gerður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Tekjur Arnarlax lækkuðu um 39 prósent á milli ára – Eigið fé metið á 17 milljarða króna
InnlentLaxeldi

Tekjur Arnarlax lækk­uðu um 39 pró­sent á milli ára – Eigið fé metið á 17 millj­arða króna

Arnarlax hefur nú birt afkomu­upp­lýs­ingar sínar frá 2024 en þar má sjá að afkoman er mun verri en árið 2023. Mikill laxa­dauði vegna lúsa­fárs árið 2023 hafði þar mikil áhrif. BB.is segir frá því að tekjur Arnarlax á síð­asta ári hafi verið 39 pró­sent minni en árið áður eða um 9 millj­örðum lægri. Tekj­urnar 2024 urðu um 15 millj­arðar króna...
Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Menning

Steinunn Ólína orti tæki­fær­is­galdur gegn lax­eldi fyrir norðan: „Ratið út villu­sauðir!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook. Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski. Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt: „Nú er horfið...
Sir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum
Landið

Sir Jim Ratcliffe fram­leiðir gin til verndar villta lax­inum

Sir Jim Ratcliffe og sam­tök hans, Six Rivers munu á næst­unni fram­leiða sér­stakt gin í sam­starfi við sænskan gin­fram­leið­anda. Hluti sölu­hagn­að­ar­ins mun renna til verndar villta Atl­ants­haf­s­lax­inum. Samkvæmt heima­síðu Six Rivers segir um Íslands­deild sam­tak­anna: „Six Rivers Iceland er vernd­ar­á­ætlun sem er ekki rekin í hagn­að­ar­skyni, sem leit­ast við að snúa við hnignun Atl­ants­haf­s­laxa.“ Það er í því ljósi sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Landið

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Landið

Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Landið

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Landið

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir