„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Múlakaffi lifir á fornri frægð: „Maturinn var einfaldlega vondur“

Múlakaffi lifir á fornri frægð: „Maturinn var einfaldlega vondur“
Múla­kaffi

Saga Múla­kaffis er stór­merki­leg, um það verður ekki deilt. Þegar hjónin Stefán Ólafsson og Jóhanna Jóhann­es­dóttir opn­uðu stað­inn árið 1962 í Hall­ar­múla, þar sem hann er enn þá til húsa, fannst mörgum það fárán­leg hug­mynd. Á þeim tíma var mik­ill upp­bygg­ing á svæð­inu, en það þótti hálf­gerð sveit í Reykja­vík. Þau hjónin hlógu þó allan leið í bank­ann og varð mat­sölu­stað­ur­inn fljótt vin­sæll og þekktur fyrir góðan mat og sann­gjarnt verð.

Árið 2023 sér Jóhannes Stef­áns­son, sonur þeirra hjóna, um stað­inn og hefur gert í ára­tugi. Óhætt er að segja að á tím­anum frá stofnun hans hafi stað­ur­inn skapað sér sér­stakan stað í hjarta margra íbúa Reykja­víkur, en ásamt því að bjóða upp á upp á mat í Hall­ar­múla rekur Múla­kaffi veislu­þjón­ustu og sér um mat í nokkrum stórum fyr­ir­tækjum. Það eru örugg­lega fáir Íslend­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 25 ára og eldri sem hafa aldrei borðað mat frá Múla­kaffi, hvort sem þeir vita af því eða ekki.

Þó að ég hafi vissu­lega borðað mat frá Múla­kaffi, þá hafði ég aldrei komið inn á mat­sölu­stað­inn í Hall­ar­múla, þrátt fyrir að hafa unnið og búið í nágrenni við stað­inn til lengri tíma. Ég skellti mér því þangað tvisvar sinnum með stuttu milli­bili. Í fyrra skiptið fékk ég mér lamba­læri með kart­öflum í bearna­ise-sósu og hið seinna Tikka Masala-kjúkling með hrís­grjónum. Stemm­ingin á staðnum var eins og ég bjóst við. Iðn­að­ar­menn á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri og karl­menn sem eru senni­lega hættir að vinna. Ég sá aðeins eina konu borða á staðnum, en báða dag­ana var fullt hús. And­rúms­loftið var afslappað og fínt að sitja inni á staðnum. Konan sem afgreiddi mig var svo indæl að mig lang­aði helst til að bjóða henni að setj­ast með mér og ræða um lífið og til­ver­una.

En þrátt fyrir huggu­legt and­rúms­loft, þá er ekki hægt að líta fram hjá því að mat­ur­inn var ein­fald­lega vondur. Jú, sós­urnar og með­lætið voru allt í lagi en lambið og kjúkling­ur­inn voru nán­ast óæt. Stórfurðu­leg áferð á kjöt­inu, sem var seigt í þokka­bót, og ég er ekki viss um að ég gæti greint milli lambs­ins og kjúklings­ins ef um blinds­mökkun væri að ræða. Þá verð ég líka að setja spurn­ing­ar­merki við skammta­stærð­ina. Ég á ein­hvern veg­inn erfitt með að trúa því að smiður sem er að vinna úti í frosti og 15 metrum á sek­úndu sé sáttur við hálfan disk fyrir þrjú þús­und krónur. Sér­stak­lega í ljósi þess að fyrir sömu upp­hæð á Sal­at­barnum er hægt að fá aðgang að hlað­borði þar sem er meira úrval af mat og sá matur er tals­vert betri. Það sem stingur líka er að Múla­kaffi gefur sig út fyrir að mat­ur­inn sé fullur af ást. „Eins og mat­ur­inn heima hjá mömmu,“ sagði Stefán um stefnu stað­ar­ins og á það vera stefnan í dag. Maturinn sem ég borð­aði á ekk­ert skylt ljúf­fengan heim­il­is­mat sem er eld­aður af ást og umhyggju. Kannski var það raunin fyrir ein­hverjum árum, en nú er annað uppi á ten­ingnum.

Gagnrýni þessi birt­ist fyrst í nýjasta blaði Mannlífs sem hægt er að lesa hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Gagnrýni

Björn Jörundur er sá besti
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Björn Jörundur er sá besti

Kvik­myndin Ljós­vík­ingar er ein­hver ein­læg­asta kvik­mynd sem boðið hefur verið upp á Íslandi. Sögu­þráð­ur­inn er snjall og leik­arar standa sig almennt vel. Björn Jörundur Frið­björns­son er af öllum öðrum ólöst­uðum stjarna mynd­ar­innar. Hann leikur Hjalta, fyrr­ver­andi sjó­ara sem tekst á hendur að reka veit­inga­hús sem sér­hæfir sig í fisk­réttum. Rauða húsið á sér klár­lega fyr­ir­mynd í Tjöru­hús­inu á Ísafirði og...
Barbie er ekki dauð: „Ádeila á feðraveldið og kapítalisma“
Skoðun

Brynjar Birgisson

Barbie er ekki dauð: „Ádeila á feðra­veldið og kap­ít­al­isma“

Jónína heitin Bene­dikts­dóttir sagði eft­ir­minni­lega fyrir rúmum 15 árum að Barbie væri dauð og að um sjálfs­víg hafi verið að ræða. Það er hins vegar ljóst að Barbie er sprell­lif­andi árið 2023 eftir að hafa snúið öllum gömlum hug­myndum dúkkunnar á haus í nýrri kvik­mynd. Barbie-kvik­myndin var frum­sýnd í gær á Íslandi en leik­konan Margot Robbie leikur Barbie. Hún er...
Jón Viðar hraunar yfir Kötlu Baltasars: „hreinlega farið að finnast þetta fyndið“
Innlent#Gagnrýni

Jón Viðar hraunar yfir Kötlu Baltasars: „hrein­lega farið að finn­ast þetta fyndið“

Jón Viðar Jónsson gagn­rýnir hefur nú sett fram sitt mat á sjón­varps­s­er­í­unni Kötlu eftir Baltasar Kormák. Það gerir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook síðu sinni og er ljóst að kapp­anum er síður en svo skemmt.Jón Viðar kveðst hafa eytt þjóð­há­tíð­ar­kvöld­inu í að horfa á þætt­ina og segir hann að kvöld­inu hafi geta verið varið betur og heldur svo áfram: „því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður