„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjölskylda Rachel Morin leitar sjálf að morðingjanum: „Við erum bókstaflega föst í limbói“

Fjölskylda Rachel Morin leitar sjálf að morðingjanum: „Við erum bókstaflega föst í limbói“
Blessuð sé minn­ing Rachel Morin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Móðir Rachel Morin, fimm barna móð­irin sem fannst myrt við fjöl­farna göngu­leið í Maryland fyrir þremur mán­uðum, segir lög­regl­una hafi bók­staf­lega engar vís­bend­ingar í þessu furðu­lega máli. Móðirin hefur því tekið til sinna ráða.

Patty Morin, móðir hinnar 37 ára Rachel Morin sem fannst myrt við göngu­leið í Bel Air fyrir þremur mán­uðum, sagði Fox News Digital að fjöl­skyldan hafi nú dreift meira en 10.000 bæk­lingum á ensku og spænsku, í Los Angeles-borg, þar sem beðið er um upp­lýs­ingar um morðið. DNA-sýni á líki Rachel pass­aði við DNA-sýni sem fannst eftir nauðgun sem átti sér stað í Los Angeles. Þá náð­ist mynd­skeið af morð­ingj­anum yfir­gefa húsið þar sem hann réð­ist á unga stúlku og kom fram vilja sínum. Ekki sést í and­lit manns­ins en grunur er um að hann sé af rómönsku bergi brot­inn.

„Ég bið til Guðs um að ein­hver, kannski ein­hver sem hefur lent í svip­aðri reynslu, muni sýna samúð og hjálpa okkur að bera kennsl á hinum grun­aða,“ sagði Patty í við­tal­inu.

„Við erum bók­staf­lega föst í lim­bói og getum ekki hreyft okkur því við höfum engin svör, enga stefnu,“ bætti hún við.

Rachel fannst myrt á Ma & Pa göngu­leið­inni í Maryland þann 6. ágúst, nærri sól­ar­hring eftir að kær­asti hennar hafði til­kynnt hana týnda.

Tvímála bæk­ling­unum hefur verið dreift á svæð­inu þar sem nauðg­unin átti sér stað og eru taldir ná til um 58.000 manns.

„Við höfum ekki séð neinar áreið­an­legar vís­bend­ingar frá lög­regl­unni, þannig að við erum að reyna að finna vís­bend­ingar, hvernig sem við getum,“ sagði lög­maður fjöl­skyld­unnar, Randolph Rice í við­tali við Fox News Digital.

Glæpa­mannarýnir sagði lög­fræði­teym­inu að hinn grun­aði, sem áður hefur verið sagður á þrí­tugs­aldri, um 70 kíló og 152. senti­metrar á hæð, eigi sér lík­leg­ast tengsl við Los Angeles, að sögn Rice.

Patty sagði um dóttur sína: „Hún fyllti líf okkar svo mikið af hlátri og ljósi. Jafnvel þegar hún átti slæman dag, þá skein hún. Nú er bara svo mikið tóm.“

Að sögn Patty eru hin fimm börn Rachel sem þjást mest. „Nú þegar hátíð­irnar nálg­ast, ótt­ast ég að það verði þrúg­andi þögn sem muni kasta skugga á sam­ein­ingu okkar. Þau vilja bara mömmu sína aftur og að líf þeirra verði aftur eðli­legt, en sum þeirra eldri vita að það verður aldrei. Við vitum ekki af hverju hann framdi svo hrotta­legan glæp. Af hverju dóttir mín?“ Bætti hún við að lokum: „Þetta þýðir að eng­inn er óhultur fyrr en hann næst og verður lát­inn dúsa inni til dauða­dags.“

Fréttin er unnin upp úr frétt The New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“