„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“
Elísa vann til verð­laun fyrir mynd­ina sína – Mynd: Þorsteinn Rafnsson – www.rafnsson.is

Leik­konan Elísa Gyrð­is­dóttir útskrif­að­ist um jólin úr Kvik­mynda­skóla Íslands og hlaut Bjarkann fyrir stutt­mynd­ina Undir­öldu en verð­launin eru veitt fyrir bestu útskrift­ar­mynd Kvik­mynda­skóla Íslands. Elísa hefur þurft að ganga í gegnum eld og brenni­stein í gengum ævina en nú horfir hún fram á veg­inn með sól í hjarta. Mannlíf ræddi við Elísu um námið, erf­iða tíma og fram­tíð­ina.

„Ég er svona frekar kaó­tískt kamelljón, finnst gott að treysta bara og henda mér út í hlut­ina, enda búin að upp­lifa mörg ger­ó­lík tíma­bil í líf­inu og prófa flest sem mér hefur dottið í hug hingað til,“ sagði Elísa þegar hún var spurð hver hún væri og hvaðan hún kæmi. „Ég vakna lang­flesta daga í góðu skapi með kitl í mag­anum yfir öllum mögu­leik­unum og hug­mynda­vél­ina mallandi, sér­stak­lega þegar mér finnst ég hafa far­veg fyrir sköp­un­ar­kraft­inn. Þó ég geti vel notið þess að vera ein þá er örugg­lega leitun að félags­lynd­ari mann­eskju, það skemmti­leg­asta sem ég veit er fólk, hvort sem ég er að spjalla við mann­eskj­urnar eða leika þær.

Ég seg­ist eig­in­lega alltaf bara vera frá Íslandi þegar fólk spyr mig hvaðan ég sé, finnst svo erfitt að svara þess­ari spurn­ingu því ég hef búið á sjö stöðum á Íslandi og í þremur löndum. Ég er ættuð frá Borg­ar­firði Eystra og hinum Borg­ar­firð­inum hérna fyrir vestan, en ég flutti til Oslóar tólf ára gömul og þaðan til Ástralíu þar sem ég gekk í mennta­skóla. Árin eftir það flakk­aði ég tölu­vert milli Íslands, Ástralíu og Hong Kong, svo ég hef sterkar taugar í ýmsar áttir. Ég hafði aldrei í líf­inu búið á neinum stað lengur en í fjögur ár, en nú hef ég búið á Álfta­nesi í sjö ár og held ég skilji í fyrsta sinn hvernig til­finn­ing það er að hafa skotið rótum. Ég kalla mig alla­vega stoltan Álft­nes­ing, þó það megi örugg­lega rök­ræða það eitt­hvað við þá sem eru í alvör­unni héðan, þetta er alla­vega ynd­is­legur bær með ynd­is­legu fólki sem stendur þétt saman. 

Mér líður oft eins og ég sé búin að lifa mörgum lífum, því ég hef lifað eitt­hvað svo hröðu, kafla­skiptu lífi og hef stöðugt þurft að aðlaga mig glæ­nýjum aðstæðum. Það hentar mínum per­sónu­leika samt mjög vel og leik­listin gefur manni á svo skemmti­legan hátt tíma til að máta enn fleiri líf á stuttum tíma. 

Allt þetta rót hefur örugg­lega tekið eitt­hvað á tauga­kerfið, en það hefur líka gefið mér mikla trú á eigin getu þar sem ég hef sannað end­ur­tekið fyrir sjálfri mér að ég get alltaf spjarað mig. Svo víkkar þetta hressi­lega út sjón­deild­ar­hring­inn hvað varðar annað fólk og þeirra upp­lif­anir, sem hjálpar auð­vitað þegar kemur að því að setja sig í spor ann­arra og leika þeirra líf. Þannig að ég er bara mjög þakk­lát fyrir alla þessa fjöl­breyttu lífs­reynslu hingað til sem hefur verið svona um það bil allt sem mann­eskja þarf nema sett í bland­ara.“

Við gerð Undir­öldu –

Glímdi við átröskun eftir áföll í æsku

„Mig hefur alltaf klæjað í sál­ina að kom­ast í leik­list í Kvik­mynda­skól­anum, en ég reyndi eins og ég gat að fara ekki þangað,“ svar­aði leik­konan af hverju hún hefði ákveðið að fara í Kvik­mynda­skóla Íslands. „Ég útskrif­að­ist af leik­list­ar­braut í mennta­skól­anum í Ástralíu og ætl­aði mér hik­laust í þessa átt, en fann alltaf ein­hverja leið til að bremsa mig af. Ég held ég hafi á hverju ári síð­ustu 5-10 árin sent póst á Kvik­mynda­skól­ann og spurt eitt­hvað út í námið eða stunda­töfl­una og fundið afsökun fyrir því að sækja ekki um, því ótt­inn við að mis­takast fékk alltaf að ráða. Eftir áföll í æsku þró­aði ég með mér átröskun sem fylgdi mér í tvo ára­tugi og það var í raun­inni ekki fyrr en ég tækl­aði áföllin – eins og fram kemur í mynd­inni – að ég gat sigr­ast á átrösk­un­inni og fundið sjálfsmild­ina til að leyfa mér að gera bara það sem mig lang­aði að gera við mitt eina líf og skila þessum hugs­ana­flækjum.“

Á bak­við tjöldin –

„Ang Lee, David Lynch og Louis Theroux gera hluti sem mér finnst spenn­andi af mjög ólíkum ástæðum,“ segir Elísa um hennar helstu fyr­ir­myndir í kvik­mynda­gerð. „En ég verð ofsa­lega spennt þegar konur taka að sér gígantísk verk­efni í þessum hingað til karllæga bransa og rúlla þeim upp, eins og Greta Gerwig til dæmis. Svo eru Eva Sig­urð­ar­dóttir og Kolbrún Anna Björns­dóttir mjög spenn­andi íslenskar fyr­ir­myndir. Það gefur frá sér eitt­hvað raf­magn til allra í kring þegar íslenskar konur taka stökkið og dúndra hug­mynd­unum sínum af stað í fram­leiðslu.

Annars held ég að það verði öfl­ugt þegar við förum að geta sam­einað betur „male & female gaze“ í kvik­mynda­gerð og notað allt þetta ólíka til að dýpka og gera verkin sterk­ari í stað þess að slást um hver er með kík­inn.“ 

Skjáskot úr Undir­öldu

Dýrmætar minningar og allir tilbúnir til að hjálpa

„Ég vissi það um leið og ég byrj­aði að þetta yrðu ein­hver eft­ir­minni­leg­ustu og dýr­mæt­ustu ár lífs míns og tveimur árum seinna get ég stað­fest að það er algjör­lega til­fellið,“ sagði Elísa um lífið í skól­anum. „Þetta er auð­vitað því­líkt hörkupúl, við erum í raun­inni í tvenns konar námi á sama tíma, ann­ars vegar leik­list­inni og hins vegar kvik­mynda­gerð­inni og stunda­skráin er þjöppuð alveg upp í topp alla daga. Það var ekk­ert endi­lega neitt grín að klára þetta með tvö grunn­skóla­börn, hjóna­band, heim­ili og vinnu, en með mögn­uðum stuðn­ingi úr öllum áttum og skipu­lagi þá hafð­ist það.

Ég get auð­vitað bara talað út frá reynslu af leik­list­ar­deild, en þar er kennslan virki­lega vönduð, utan­um­haldið mikið, fal­leg og fag­leg tengsl við kenn­ar­ana og við finnum sterkt að þau standa með okkur alla leið. Við fáum mjög fjöl­breytta kennslu með mis­mun­andi leik­að­ferðum svo allir geta fundið leið sem þeir tengja vel við. Svo lærum við að beita rödd­inni, lærum sviðs­bar­daga, tal­setn­ingu, söng og praktískar leiðir til að koma okkur áfram í brans­anum, allt milli þess að nota munnskol fyrir kossa­senur yfir í að kynna hug­myndir sínar fyrir stórum fjár­festum og semja um tekjur.“  

Elísa segir að í skól­anum fái allir tæki­færi til að prófa allt sem í boði er í nám­inu. Það fái allir að taka upp, skrifa, leik­stýra, lýsa, klippa, hljóð­vinna og lita­leið­rétta.

„Ef vilj­inn er fyrir hendi þá er hægt að soga í sig algjör­lega ótrú­legt magn af þekk­ingu gegnum kenn­ara og sam­nem­endur og ég hef verið smá þekk­ing­arvam­p­íra þessi tvö ár, reynt að fá eins mikið og mögu­legt er út úr þessu námi og það er eig­in­lega lygi­legt hvað ég hef troðið miklu í haus­inn á mér.

Það sem kennir okkur kannski mest er öll reynslan á setti hjá hvert öðru, ég hef hrein­lega ekki tölu á því hvað ég hef leikið eða unnið öðru­vísi í mörgum stutt­myndum und­an­farin ár en það eru fleiri tugir. Svo er ýmis­legt sem smellur hjá manni þegar maður byrjar að fá greidd verk­efni og sér hvað er líkt og ólíkt með Kvik­mynda­skóla verk­efnum og bransa­verk­efnum, það er oft mjög áhuga­verður sam­an­burður sem „Kvik­mynda­skóla settin“  stand­ast oft en stundum alls ekki og bæði er mjög lær­dóms­ríkt. 

Stemn­ingin er þannig að allir eru alltaf til­búnir að hjálpa og kenna. Vináttan sem mynd­ast undir þessu álagi í skól­anum er ansi skil­yrð­is­laus, það er ákveðið fólk sem ég segi bara já við áður en þau eru búin að segja mér hvað þau vilja, ég þarf ekki að vita meira því ég myndi gera um það bil hvað sem er.“ 

Skjáskot úr Undir­öldu

Setur eigin reynslu í mynd­ina

Útskrift­ar­mynd Elísu heitir Und­ir­alda og vann eins og áður segir verð­laun sem besta útskrift­ar­mynd Kvik­mynda­skól­ans um jólin. En um hvað er myndin?

„Und­ir­alda er eig­in­lega þriðja barnið mitt, mér þykir ofsa­lega vænt um þetta verk­efni og fólkið sem gerði mynd­ina að veru­leika. Hand­ritið er í grunn­inn skrifað út frá áhrifa­miklu sam­tali sem ég átti við frænda minn fyrir nokkrum árum, en auð­vitað er myndin ekki um okkur sem per­sónur þannig lagað, heldur ein­hver útgáfa af sann­leik­anum. Það eru ýmsir straumar í gangi á sama tíma í þess­ari mynd, en í grunn­inn er þetta kannski um að snúa ein­hverju erf­iðu yfir í eitt­hvað fal­legt. Mig lang­aði líka til að opna á þennan part af umræð­unni út frá minni reynslu og skoða spurn­ingar eins og hvað þurfi að vera til staðar svo fyr­ir­gefn­ing geti átt sér stað og hvað viljum við í stað­inn fyrir þöggun. 

Sagan er um Eyju, kald­hæðna en skemmti­lega konu sem fer á ætt­ar­mót hjá fjöl­skyldu sinni sem hrær­ist í djúpu með­virkni­mynstri. Hún tekur kærast­ann sinn með sem and­legan stuðn­ing, enda er hann ein­stak­lega hress og er hennar teng­ing við raun­veru­leik­ann utan þess­arar flóknu fjöl­skyldu. Þegar líður á kvöldið fer Eyju að ofbjóða fram­koma ætt­ingja sinna og hún endar á því að láta frænda sinn horfast í augu við þá stað­reynd að hann mis­not­aði hana kyn­ferð­is­lega þegar hún var barn og hann var ung­lingur. Frændinn tekur því á mjög óvæntan hátt, þetta hrærir ræki­lega í vatns­bóli fjöl­skyld­unnar og þau þurfa bæði að takast á við það sem flýtur upp á yfir­borðið í kjöl­farið á þessum sam­skiptum.“ 

Elísa skoðar ramma – Þor­steinn Rafnsson – www.rafnsson.is

Elísa segir að fólk verði oft­ast skrýtið á svip­inn þegar hún reynir að útskýra að þetta sé að miklu leyti svört kómedía. „Mér fannst mik­il­vægt að halda mjög var­lega utan um þetta mál­efni og til­gang­ur­inn er ekki að sjokkera neinn, svo það eru ýmis smá­at­riði í fram­leiðslu mynd­ar­innar sem und­ir­strika það og fyr­ir­byggja von­andi óþægi­leg hug­hrif, þó það sé auð­vitað aldrei hægt að stýra því hvernig fólk upp­lifir mynd­ina,“ heldur hún áfram. 

„Ég var svo óend­an­lega heppin að fá hrein­lega íslenskt kónga­fólk til að leika á móti mér í þess­ari mynd,“ en Björgvin Franz Gíslason, Jón­mundur Grét­ars­son, Elva Ósk Ólafs­dóttir, Ragn­heiður Stein­dórs­dóttir og Þórunn Erna Clausen leika öll í mynd­inni.

„Þessi listi er nátt­úru­lega algjör­lega út í hött, ég skil varla eftir á hvernig ég þorði yfir höfuð að biðja þessa stór­leik­ara að vera með, en ég hafði svo sterkt á til­finn­ing­unni að þessi saga þyrfti og ætti skilið að vera sögð af fólki með mjög mikla leik­reynslu og djúpa til­finn­inga­greind.

Það var svo sem ekk­ert grín að ætla síðan að mæta þeim fimm í senu fyrsta töku­dag­inn á ein­hverjum jafn­ingja­grund­velli, auð­vitað bara smá hlægi­legt að ætla sér það, en þetta fólk sýndi mér svo botn­laust til­finn­inga­legt örlæti sem mann­eskju og leik­ara að þetta bara small allt saman með þeirra hjálp. 

Björgvin Franz, þessi þjóð­ar­ger­semi sem hann er, hélt svo inni­lega fal­lega utan um sitt hlut­verk að ég held virki­lega að eng­inn annar á plánet­unni hefði getað tæklað þetta flókna við­fangs­efni svona vel fyrir mig. Ég setti mig auð­vitað í mjög ber­skjald­aða stöðu með því að í raun­inni end­ur­upp­lifa þetta mál fyrir framan „kamerur“ og hefði örugg­lega getað vakið upp áfallið á ein­hvern hátt. En það var svo hnit­mið­aður and­legur und­ir­bún­ingur, sam­töl og æfingar í algjör­lega opnum sam­skiptum að ég treysti Bjögga af öllu hjarta þegar við fórum loks í tökur og hann og „krúið“ mitt sköp­uðu algjör­lega öruggt umhverfi fyrir tauga­kerfið mitt. Þar má auð­vitað nefna leik­stjór­ana mína, Antoníus Ant­on­í­us­son og Magda­lenu Ólafs­dóttur og aðstoð­ar­leik­stjór­ann Rosalie Rut Sig­rún­ar­dóttur, ásamt öllum hinum mögn­uðu mann­eskj­unum á sett­inu. Myndin er tekin upp af Ragnari Smára Sig­ur­þórs­syni töku­manni, en allir í „krúinu“ eru núver­andi eða útskrif­aðir nem­endur úr Kvik­mynda­skól­anum. Leik­ar­arnir höfðu orð á því að þeim liði alls ekki eins og þau væru á Kvik­mynda­skóla­setti heldur bara venju­legu setti, sem segir ansi mikið um vinnu­sið­ferðið og metn­að­inn hjá mínu fólki, er enda­laust stolt af þeim og þakk­lát.“

„Mig langar að halda áfram að segja sögur sem skipta máli og finna vinkla sem eru ekki endi­lega þeir algeng­ustu,“ sagði Elísa um hennar eigin mark­mið í kvik­mynda­gerð. „Ég hef mik­inn áhuga á ólíkum sjón­ar­hornum og því „concepti“ að tvennt eða fleira geti verið satt í einu. Besta efnið finnst mér vera eitt­hvað sem er fyndið og skemmti­legt en hreyfir samt við mér á ein­hvern hátt og sýnir mér hlut­ina í öðru ljósi en áður. Það er fullt af sögum sem bíða eftir að vera sagðar – ég á svo sem lager í banka­hvelf­ing­unni en svo er heim­ur­inn fullur af áhuga­verðu fólki með spenn­andi sögur – og ég hlakka til að koma þeim í heim­inn. Svo langar mig bara að styðja eins mikið og ég get við allar þessar mögn­uðu mann­eskjur sem ég þekki í þessum bransa og draga þau með mér í ein­hver alveg klikkuð ævin­týri.“ 

Skemmtilegasta starf í heimi

„Und­ir­alda fer í smá fín­pússun og verður síðan send út í heim á kvik­mynda­há­tíðir, en eftir það væri virki­lega gaman að geta sýnt hana hérna heima,“ sagði Elísa um fram­haldið. 

„Mér finnst auð­vitað skemmti­leg­ast að leika, en mun alveg klár­lega líka skrifa og fram­leiða mitt eigið efni með hjálp frá öllu hæfi­leik­a­ríka fólk­inu sem ég hef safnað að mér gegnum námið. Við höfum fengið tengsl við „casting“ skrif­stofur gegnum skól­ann og ég hef verið svo heppin að fá að byrja að leika smærri og stærri hlut­verk í íslenskum og erlendum verk­efnum áður en ég kláraði skól­ann, svo von­andi fæ ég að halda áfram að spreyta mig í því á næst­unni. Ég hef líka áhuga á svo gríð­ar­lega mörgu tengdu fag­inu, til dæmis nánd­ar­þjálfun, tal­setn­ingu, söng, veislu­stjórnun og spuna svo eitt­hvað sé nefnt, ég hlýt að finna góðan far­veg fyrir þennan sprengi­kraft sem fylgir því að gera það sem manni finnst skemmti­leg­ast í ver­öld­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu