„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Minnst 93 látnir eftir hryðjuverkaárásina í Moskvu -Reyndu að komast undan í hvítum Renault

Minnst 93 látnir eftir hryðjuverkaárásina í Moskvu -Reyndu að komast undan í hvítum Renault

Að minnsta kosti 93 eru sagðir hafa lát­ist í hryðju­verka­árásinni í Moskvu í gær­kvöldi og aðrir 60 eru sagðir þungt haldnir á spít­ala en alls voru 107 fluttir á sjúkra­hús eftir árás­ina. Árás­ar­menn­irnir eru taldir hafa kom­ist undan.

Hryðju­verka­sam­tökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á hryðju­verka­árásinni í tón­leika­höll­inni í Moskvu í gær­kvöldi, en enn er verið að rann­saka hvort það stand­ist. Fjórir menn réð­ust inn í Crocus City Hall, vopn­aðir byssum og hand­sprengjum og hófu árás á tón­leika­gesti en fjöl­margt fólk var statt í höll­inni. Eldur kvikn­aði í bygg­ing­unni en hefur nú verið slökktur.

Samkvæmt The New York Times söfn­uðu Banda­ríkin upp­lýs­ingum í mars um að Íslamska ríkið-Khorasan, þekkt sem ISIS-K, sem er ein­hvers konar útibú sam­tak­anna með aðsetur í Afganistan, „hefði verið að skipu­leggja árás á Moskvu. Liðsmenn ISIS hafa verið virkir í Rúss­landi,“ sagði einn banda­rískur emb­ætt­is­maður við blaðið. „ISIS-K hefur und­an­farin tvö ár ein­blínt á Rússland“ og „sakar Kreml um að vera með blóð múslima á sam­visk­unni, með vísan til inn­gripa Rússa í Afganistan, Tsjet­sjníu og í Sýrland,“ sagði Colin P. Clarke, sér­fræð­ingur gegn hryðju­verkum, við blaðið.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá Kreml hitti Vladimir Putin for­stjóra leyni­þjón­ust­unnar, Alex­ander Bortnikov, Vladimir Kolokoltsev inn­an­rík­is­ráð­herra, Alex­ander Bastrykin, yfir­mann alrík­is­rann­sókn­ar­nefndar, og Viktor Zolotov, yfir­mann þjóð­varð­liðs­ins vegna árás­ar­innar. Hátt­settir örygg­is­full­trúar til­kynntu Pútín um hryðju­verka­árás­ina fyrir utan Moskvu í gær­kvöldi.

Pútín ræddi einnig við Alex­ander Kurenkov, yfir­mann alrík­is­neyð­ar­stofn­un­ar­innar, um björg­un­ar­að­gerðir við Crocus tón­leika­höll­ina og við heil­brigð­is­ráð­herr­ann Mikhail Murashko, Tatyana Golikova aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra og Andrey Vorobyov svæð­is­stjóra Moskvu um áfram­hald­andi hjálp­ar­starf fyrir fórn­ar­lömb og eft­ir­lif­endur.

Rúss­neska rík­is­frétta­stofan RIA Novosti greinir frá því að þeir sem stóðu að árásinni hafi farið af vett­vangi í hvítum Renault. Stofn­unin hefur birt mynd af öku­tæk­inu sem og óháðar frétta­stofur en örygg­is­mynda­vél smellti af mynd þegar menn­irnir keyrðu yfir lög­legum hraða kvöldi fyrir árás­ina. Bíllinn var keyptur í byrjun jan­úar á þessu ári en talið er að skipt hafi verið um bíl­númer og bíl­inn lit­aður hvítur en hann ku hafa verið svartur. Samkvæmt yfir­völdum í Rúss­landi hafa 11 verið hand­teknir, þar á meðal allir fjórir árás­ar­menn­irnir.

Fréttin er unnin upp úr fréttum Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“