„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segja Timur Ivanov hafa verið handtekinn vegna landráða: „Mútuákæran eru fyrir almenning“

Segja Timur Ivanov hafa verið handtekinn vegna landráða: „Mútuákæran eru fyrir almenning“
Timur Ivanov Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ekki trúa allir opin­beru ástæð­unni fyrir hand­töku aðstoð­ar­varna­mála­ráð­herra Rúss­lands.

Degi eftir að Timur Ivanov, aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herra Rúss­lands, var hand­tek­inn fyrir að hafa þegið mútur, hefur dóm­stóll í Moskvu sent hann í tveggja mán­aða gæslu­varð­hald. Er hann þar með æðsti emb­ætt­is­mað­ur­inn til að sæta ákæru vegna glæps á und­an­förnum árum í Rúss­landi.

Samkvæmt rann­sak­endum tók Ivanov þátt í glæp­sam­legu sam­særi þar sem hann þáði „ein­stak­lega stórar mútur“ á meðan hann hafði umsjón með fram­kvæmdum og við­gerðum varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Sergey Borodin, vinur Ivanovs, hefur einnig verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald.

Hins vegar greindi óháða frétta­síðan iStor­ies á mið­viku­dag­inn að raun­veru­leg ástæða hand­töku Ivanovs væri grunur um land­ráð, og vitn­aði í tvo heim­ild­ar­menn sem tengj­ast alrík­is­ör­ygg­is­þjón­ustu Rúss­lands (FSB). „Mútu­á­kæran eru fyrir almenn­ing. Þeir vilja ekki tala opin­ber­lega um land­ráð núna, það er stórt hneyksli. Þetta er stað­geng­ill varn­ar­mála­ráð­herr­ans, þegar allt kemur til alls,“ hefur blaðið eftir heim­ild­ar­manni.

Seinni heim­ild­ar­mað­ur­inn sagði að Vladimir Pútín hafi gefið „skip­un­ina eftir að hafa verið sann­færður um að málið sner­ist aðal­lega um land­ráð“ og að „eng­inn hefði hand­tekið [Ivanov] fyrir spill­ingu.“

Fyrst var greint frá hand­töku Ivanovs í gær­kvöldi. Samkvæmt rúss­neskum rík­is­fjöl­miðlum verður hann vistaður í Lefor­tovo gæslu­varð­halds­fang­els­inu í Moskvu á meðan frum­rann­sókn yfir­valda stendur yfir. Telegram rás 112 sagði að rann­sak­endur hafi hafið leit í húsi í eigu Ivanov í Dagestan, en rásin VChK-OGPU greindi frá því að þrír aðrir hafi verið hand­teknir í tengslum við málið.

Dmitry Peskov, upp­lýs­inga­full­trúi Kremlar, sagði blaða­mönnum á mið­viku­dags­kvöldið að Vladimír Pútín hafi verið til­kynnt um hand­töku Ivanovs og að Sergey Shoigu varn­ar­mála­ráð­herra hafi verið „upp­lýstur fyr­ir­fram“. Vitað er að Ivanov hefur lengi verið banda­maður Shoigu, eftir að hafa starfað sem hans stað­geng­ill rík­is­stjóra á Moskvu-svæð­inu árið 2012.

Ivanov hefur haft umsjón með fjöl­mörgum bygg­ing­ar­verk­efnum sem aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herra, þar á meðal aðal­dóm­kirkju rúss­neska hers­ins, Patriot Park skemmti­garð­inn í Moskvu og end­ur­reisn hinnar hernumdu Mariupol-borg. Árið 2019 var hann á lista Forbes í Rúss­landi yfir rík­ustu örygg­is­full­trúa lands­ins.

Eftir hand­töku Ivanovs sagði heim­ild­ar­maður Forbes að Ivanov væri „mað­ur­inn hans Shoigu“ en að hann hefði „lent í ein­hverju ves­eni“ og „spurn­ingar hefðu hrann­ast upp“ í kringum hann. Heim­ild­ar­mað­ur­inn gat þess að hand­taka hans gæti verið hluti af „hreinsun“ á innsta hring Shoigu til und­ir­bún­ings fyrir hugs­an­lega brott­för ráð­herr­ans úr varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Ivanov hefur verið við­fangs­efni fjölda rann­sókna blaða­manna á spill­ingu. Árið 2022 til­kynnti teymi Alexei Navalny að fjöl­skylda aðstoð­ar­ráð­herr­ans ætti margar dýrar eignir á Moskvu svæð­inu. Síðar sama ár greindi teymið frá því að fyrsta eig­in­kona Ivanovs hefði eytt hund­ruð þús­unda evra í skart­gripi, fatnað og frí í gegnum árin, þar sem milli­göngu aðilar og fyr­ir­tæki borg­uðu reglu­lega reikn­ing­inn. Ivanov hefur orðið fyrir refsi­að­gerðum af hálfu Banda­ríkj­anna og ESB.

Fréttin er unnin upp úr frétt Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“