„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Loftfimleikamaður féll af „Dauðahjóli“ í miðri sirkussýningu: „Bið til Guðs að allt sé í lagi“

Loftfimleikamaður féll af „Dauðahjóli“ í miðri sirkussýningu: „Bið til Guðs að allt sé í lagi“
Dauða­hjólið. Ekki úr Blackpool Tower sirku­snum.

Sirku­slista­maður slas­að­ist eftir hátt fall af „Dauða­hjóli“ í miðri sýn­ingu í Blackpool, Englandi.

Áhorf­endur í Blackpool Tower-sirku­snum, þar á meðal börn, horfðu skelf­ingu lostin á þegar annar tveggja loft­fim­leika­manna á svoköll­uðu „Dauða­hjóli“ (e. Wheel of Death) féll í miðri sýn­ingu skömmu eftir klukkan 17:00 í gær, að því er Mirror hefur eftir áhorf­anda.

Sjúkra­liðar flýttu sér að loft­fim­leika­mann­inum en hann var fluttur á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar á meðan sirku­stjaldið var rýmt, að sögn þrumu­lost­inna áhorf­enda eftir slysið. Ekk er vitað um ástand loft­fim­leika­manns­ins sem stendur.

The Mirror hafði sam­band við bæði Blackpool Tower-sirkus­inn og North West-sjúkra­flutn­inga­þjón­ust­una til að fá frek­ari upp­lýs­ingar. „Alvar­legt slys varð í Blackpool Tower-sirku­snum síð­degis í dag. Loft­fim­leika­maður féll nokkra metra úr „Dauða­hjól­inu“ niður á sirkus­gólfið. Sjúkra­liðar fluttu hann á sjúkra­hús og sirkus­inn var rýmdur. Bið til Guðs að allt sé í lagi,“ skrif­aði maður nokkur á X.

Ein móðir sem horfði á gjörn­ing­inn með börnum sínum óskaði loft­fim­leika­mann­inum „skjóts bata“ og hrós­aði starfs­fólk­inu fyrir „ótrú­leg“ við­brögð. Þriðja mann­eskjan skrif­aði á net­inu: „Var í Blackpool Tower-sirku­snum með krökk­unum þegar náungi sem var efst uppi á hjóli dauð­ans, féll til jarðar. Áhorf­endum var um leið fylgt út. Ég vona að hann sé í lagi.“

Önnur mann­eskja sem seg­ist hafa verið á sýn­ing­unni sagði á sam­fé­lags­miðlum að loft­fim­leika­mað­ur­inn hafi „missti jafn­vægið og fallið“ og sást „velt­ast um öskr­andi af sárs­auka og grípa um öxl sína“. Allt fólk á sýn­ing­unni var flutt út „örugg­lega og rólega“, bættu hún við.

Dauða­hjólið er fastur liður í sirkusum um allt land og um heim allan. Það felur í sér að tveir eða fleiri flytj­endur standa á hjólum á end­anum á  löngum armi sem snýst um miðás.

Árið 1994 komst Blackpool Tower Circus í frétt­irnar þegar loft­fim­leika­maður lést eftir að hafa fallið úr tæk­inu. Neville Campbell lét lífið aðeins tví­tugur að aldri þegar hann lenti á hausnum við verkn­að­inn. Árið 2022 féll annar loft­fim­leika­maður við að fram­kvæma sama atriði, en sem betur fer hlaut hann aðeins minni­háttar meiðsli, að sögn Daily Star.

Tals­maður Blackpool Shows and Attractions sagði við dag­blaðið á sínum tíma: „Dauða­hjólið er mjög algengt sirkusat­riði sem nú er sýnt í mörgum breskum sirkusum og reyndar um allan heim. Það er útreiknuð áhætta og sem betur fer eru slys mjög sjald­gæf. Sem sagt þessir ótta­lausu flytj­endur eyða mörgum árum í að þjálfa sig í að gera þessi atriði og lifa fyrir adrena­línið og skemmtun almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“