„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dularfull talskilaboð opnuðu rannsókn á hvarfi Madaleine upp á gátt: „Hún öskraði ekki“

Dularfull talskilaboð opnuðu rannsókn á hvarfi Madaleine upp á gátt: „Hún öskraði ekki“
Barn­a­níð­ing­ur­inn Brueckner gengur inn í rétt­ar­sal­inn Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá Met lög­regl­unni í Lundunúm sagði í dag frá því að skriður hafi loks kom­ist á mál Madaleine McCann árið 2017, þegar tal­h­ólfs­skila­boð bár­ust Scotland Yard lög­regl­unni.

Madel­eine McCann

Mark Draycott er fyrsti lög­reglu­mað­ur­inn til að svara spurn­ingum fyrir dóm­stólum um hvarf stúlkunnar árið 2007. Hann hefur unnið að aðgerð­inni sem kall­ast Grange, en það er 13 millj­óna punda rann­sóknin á Madel­eine-mál­inu, frá því hún hófst árið 2011. Draycott, 49 ára, var kall­aður til af verj­endum til að gefa vitni í rétt­ar­höld­unum yfir dæmda barn­a­níð­ingnum Christian Brueckner.

Það var árið 2020 sem sak­sókn­ari gaf Þjóð­verjandum stöðu grun­aðs í hvarfi Madel­eine. Fyrr­ver­andi vinur Brueckner, Helge Busching, sem þekkti hann á Algarve um mitt árið 2000, lét Scotland Yard árið 2017 af grun­semd sinni.

Hann hélt því fram að Þjóð­verj­inn hafi sagt honum í sam­tali að „hún hafi ekki öskrað“ þegar þeir félagar ræddi hvarf hennar. Draycott sagði fyrir rétti í Braunschweig að upp­runa­lega ábend­ingin hafi verið lesin inn á sím­svara Scotland Yard í maí 2017.

„Þá vorum við enn með opin­bert síma­númer sem var birt um allan heim,“ sagði hann. Almenn­ingur gat hringt og gefið upp­lýs­ingar í tengslum við Grange-aðgerð­ina, rann­sókn­ina á hvarfi Madel­eine McCann. Eitt af verkum mínum var að athuga sím­svör­un­ar­skila­boðin. Þann 18. maí skoð­aði ég sím­ann og þar biðu skila­boð.

„Þetta var frá karl­manni af rödd hans að dæma, hann tal­aði góða ensku og bað um að fá að tala við David Edgar (einka­spæj­ari). Hann sagð­ist hafa upp­lýs­ingar og hann skildi eftir grískt far­síma­númer. Ég hringdi síðan í þetta gríska far­síma­númer og tal­aði við karl­mann sem ég veit núna að er Helge Lars Busching. Hann vís­aði til sjálfs sín sem Lars og hann gaf upp­lýs­ingar í tengslum við rann­sókn á máli Madel­eine McCann.

Draycott deildi upp­lýs­ing­unum með þýskum og portú­gölskum yfir­völdum, sem varð til þess rann­sókn hófst á Brueckner. Hann var hluti af Scotland Yard teymi sem flaug til Aþenu nokkrum dögum síðar til að yfir­heyra Busching í fullri leynd. Viðtalið fór fram á hót­eli – eftir að tækja­bún­aður var fengið á stað­inn að athuga hvort hler­un­ar­bún­aður væru til staðar.

Busching hafði verið sleppt úr grísku fang­elsi nokkrum vikum áður og var á skil­orði á þeim tíma. „Við töl­uðum við hann í tvo daga og hann gaf okkur upp­lýs­ingar í tengslum við Madel­eine McCann málið,“ sagði Draycott lög­reglu­full­trúi. „Á því stigi vildi hann ekki gefa okkur yfir­lýs­ingu.

„Þegar rann­sóknin hélt áfram vildi hann endi­lega gefa bresku lög­regl­unni yfir­lýs­ingu. Hann sagð­ist hafa átt sam­tal við Christian á Orgiva-hátíð­inni árið 2008. Það sam­tal var í tengslum við Grange-aðgerð­ina. Ég get ekki talað um það.“

Aðspurður af dóm­ar­anum hvort Busching hafi verið gefin ein­hver „lof­orð“ af rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum svar­aði Draycott: „Við lofum ekki vitnum. Við borgum aldrei vitni fyrir upp­lýs­ingar. Við borgum kannski ein­hver útgjöld og við gerðum það í þessu til­felli. Við borg­uðum 35 evrur fyrir hann svo hann kæm­ist til Aþenu til að hitta okkur og við kost­uðum ferð­ina til baka, þangað sem hann bjó í Grikk­landi. Við bók­uðum líka ódýrt hótel fyrir hann á meðan hann var í Aþenu.“

Draycott sagði að Busching hafi flogið til London í febr­úar 2018 til að gefa form­lega yfir­lýs­ingu hjá Scotland Yard. „Þessi yfir­lýs­ing hafði þegar verið unnin fyr­ir­fram að vissu marki vegna upp­lýs­ing­anna sem hann hafði veitt,“ sagði hann. „Yfir­lýs­ingin var skrifuð á ensku. Busching fékk tæki­færi til að fara yfir yfir­lýs­ing­una og hann skrif­aði undir papp­íra þess efnis. Hann hafði þýskan túlk við­staddan allan tím­ann. Þessi yfir­lýs­ing var þýdd á þýsku og einnig portú­gölsku og deilt með sam­starfs­mönnum okkar í við­kom­andi löndum.“

Hann sagði að Busching hafi verið illa hald­inn þegar yfir­lýs­ingin var tekin – en hann var stað­ráð­inn í að aðstoða lög­reglu við að rann­saka hvarf Madel­eine. „Hann kvart­aði yfir því að líða ekki vel. Hann sagð­ist hafa borðað eitt­hvað grun­sam­legt,“ sagði Draycott. „En hann var ánægður með að yfir­lýs­ingin væri tekin. Hann var aðeins hjá okkur í nokkra klukku­tíma. Hann hafði ferð­ast um langan veg og vildi samt hjálpa lög­regl­unni.

Scotland Yard var, undir stjórn Theresu May, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, beðið um að taka yfir rann­sókn­ini á hvarfi Madel­eine árið 2011. Síðan þá hefur lög­reglan fengið meira en 13 millj­ónir punda í fjár­mögnun fyrir Grange-aðgerð­ina frá stjórn­völdum. Í síð­asta mán­uði sótti Scotland Yard um frek­ari styrk upp á 100.000 punda, sem búist er við að verði sam­þykkt.

Brueckner, 48 ára, er ákærður fyrir að hafa framið fjölda kyn­ferð­is­árása í Portúgal á árunum 2000 til 2017. Hann er ákærður fyrir að hafa nauðgað írskum ferða­full­trúa, ung­lings­stúlku og eldri konu í sum­ar­bú­stað hennar. Þjóð­verj­inn er einnig tal­inn hafa berað sig fyrir þýskri stúlku á strönd einni sem og hópi barna á leik­velli.

Madel­eine var í fjöl­skyldu­fríi í Praia da Luz þar sem hún hvarf í maí 2007. Brueckner neitar að hafa átt þátt í hvarfi hennar.

Hann var fang­els­aður árið 2019 fyrir naugðun á eldri borg­ara og dæmdur í sjö ára fang­elsi. Rétt­ar­höldin halda áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“