Maðurinn sem átti stóran þátt í að starta alþjóðlegt rifrildi sem kallað var „Kjólinn sem braut internetið“ situr nú á bak við lás og slá eftir að hafa játað að hafa reynt að kyrkja eiginkonu sína.
Samkvæmt The Guardian játaði Keir Johnson, 38 ára, sig sekan um að stofna lífi eiginkonu sinnar í hættu á fimmtudag, fyrir rétti í Glasgow, þar sem hann viðurkenndi að hafa reynt að kyrkja eiginkonu sína, Grace, sem lifði árásina af. Fréttastofan greinir frá því að Keir muni sitja á bak við lás og slá þar til hann hlýtur dóm þann 6. júní.
Saksóknarar segja að Grace hafi lifað í ótta í nokkurn tíma, en hið skelfilega ástand hafi náð suðumarki í mars 2022, þegar hjónin – sem bjuggu á afskekktri eyju undan Skotlandi – rifust eftir að Grace fór í starfsviðtal á meginlandinu.
Grace sagði yfirvöldum að hún óttaðist um líf sitt eftir að Keir á að hafa hótað henni og sagt: „Einhver mun deyja.“ Hið alvarlega ástand reyndist enn alvarlegra vegna þess að Grace sagði að „engin varanleg lögregla væri á eyjunni“.
Saksóknarar segja að Grace hafi á endanum ferðast til meginlandsins og farið í atvinnuviðtalið. Eftir að hún kom heim nokkrum dögum síðar sagði Keir henni að hann væri að fara frá henni. Í kjölfarið hófst rifrildi, sem að lokum endaði fyrir utan heimili þeirra, og það var þar sem saksóknarar segja að Keir hafi „haldið henni við jörðina og sett bæði hnén á handleggi hennar svo hún gat ekki hreyft sig.“ Hann hafi síðan „byrjaði að kyrkja hana með báðum höndum. Hún gat öskrað til að byrja með og óttaðist um líf sitt og taldi [Keir] hafa ætlað að drepa hana þar sem hann beitti miklum krafti.“
Guardian greinir frá því að það sé kraftaverki líkast að Grace hafi ekki þurft á læknisaðstoð að halda þrátt, fyrir að hafa fengið mikla marbletti á húðina. Keir tók ábyrgð á árásinni fyrir rétti sem varð til þess að dómarinn neitaði honum um tryggingu vegna hins „alvarlega og ofbeldisfulla brots“.
Það var vorið 2015 þegar hin svokallaða „Hinar miklu kjólarökræður“ – betur þekkt á samfélagsmiðlum sem #TheDress – heillaði heiminn eftir að móðir Grace sendi henni mynd af þremur kjólum til að skoða til að klæðast í brúðkaupinu sínu.
„Og ég sagði: „Ó, hvíta og gyllta?“ Og hún sagði: „Nei, sá blái og svarti.“ Og ég sagði: „Nei, mamma, þetta er hvítt og gyllt og ef þú heldur að það sé blátt og svart þá þarftu að fara til læknis,“ sagði Grace í þætti Ellen DeGeneres árið 2015.

Umræðan hélt síðan áfram þegar Keir sá kjólinn sem bláan og svartan líka. Vinur Grace endaði á því að birta myndirnar á Tumblr til að fá óhlutdrægara álit. Færslan varð samstundis vinsælt umræðuefni og jafnvel frægar stjörnur tóku þátt í rökræðunni um kjólinn.

























Athugasemdir