„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kvendansari kyrktur af kærastanum í kynlífsleik: „Við erum algjörlega niðurbrotin“

Kvendansari kyrktur af kærastanum í kynlífsleik: „Við erum algjörlega niðurbrotin“
Georgia May Brooke Mynd: Facebook.

Atvinnu­dans­ari lést á hrylli­legan hátt þegar hún var kyrkt í miðjum kyn­lífs­at­höfnum. Kærasti hennar tók sitt eigið líf stuttu síðar.

Hin 26 ára Georgia May Brooke, frá Ossett í Vestur Jór­vík­ur­skíri lést föstu­dag­inn 4. febr­úar árið 2022. Kærasti hennar, Luke Cannon, fannst lát­inn seinna þann dag en hann hafði þá framið sjálfs­víg. Dán­ar­dóm­stjóri sagði frá nið­ur­stöðu sinni í dag en hann komst að því að um mann­dráp sé að ræða í til­felli Brooke.

Rann­sóknin leiddi í ljós að kyrk­ing hafi dregi Georgiu til dauða, ásamt notkun hennar á „partýlyf­inu“ GHB og kóka­íni. Í rétt­ar­sal vegna máls­ins í Bradford sagði móðir Georgiu, Samantha Beaumont, á til­finn­inga­þrung­inn hátt frá lífi dóttur sinnar og afrekum.

Með tár­fylltum augum lýsti Samantha dóttur sinni sem hæfi­leik­a­ríkum og dug­legum dans­ara sem hefði skarað fram úr í dans­prófum og unnið sér inn náms­styrk við virtan sviðs­lista­skóla í Lundúnum. Hún hafði starfað sem dans­ari á Krít og var spennt að snúa aftur til Grikk­lands þegar hún lést.

Miss­ir­inn skyldi fjöl­skyld­una eftir í molum, sagði Samantha, sam­kvæmt Yorks­hire Live. „Áhrifin á fjöl­skyldu mína hafa verið gríð­ar­leg. Við erum algjör­lega nið­ur­brotin. Georgia er farin og skilur eftir sig stórt gat.“

Samantha sagði einnig frá því hvernig per­sónu­leiki dóttur sinnar breytt­ist eftir að hún hitti Luke, og lýsti hegðun hans sem „manískri og ofvirkri“ á meðan Georgia varð „und­ir­gefin“. Hún sak­aði Luke um að vera „stjórn­andi“.

Eftir hörmu­legt and­lát Georgíu upp­lýsti móðir hennar Samantha að henni hafi verið til­kynnt að dóttir hennar hefði verið „kyrkt við kyn­líf“ og hún telur að Luke hafi borið ábyrgð á frá­falli hennar. Sjúkra­liðar voru kall­aðir í hús í Thorn­bury, Bradford, þar sem þeir fundu Georgiu í hjarta­stoppi.

Kærasti hennar, Luke, ját­aði fyrir sjúkra­liða að hafa neytt áfengis og „kyn­lífslyfja“ sem kall­ast „G“ – GHB. Læknir, sem skoð­aði Georgiu í Bradford Royal bráða­deildi­inni, sagði að svo virt­ist sem Georgia hefði verið látin í lengri tíma en Luke hafði gefið til kynna. Rannsókn leiddi í ljós fjólu­blá „bind­is­far“ um háls Georgiu.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem ræddi við Luke, upp­lýsti að hann hafi við­ur­kennt að þau hefðu notað GHB fyrir „vellíð­un­ar­til­finn­ingu“ á inni­legum augna­blikum þeirra. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn lýsti Luke sem æstum, líkt og ein­hvern sem væri undir áhrifum kóka­íns. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn upp­lýsti enn­fremur að Luke minnt­ist á að Georgia hefði byrjað að finna fyrir mæði áður en hún missti með­vit­und. Luke yfir­gaf síðan sjúkra­hús­inu í gegnum bruna­út­gang og fannst síðar hengdur í nágrenn­inu.

Í yfir­lýs­ingu lýsti vinur sam­bandi Georgiu og Luke sem kyn­lífi og eit­ur­lyfja sam­bandi og bætti við að þau stund­uðu oft það að „kæfa hvort annað“. Vinurinn lýsti Luke sem „stjórn­sömum“ og að hann hafi verið „kjaft­for kvenna­bósi“.

Í rétt­inum kom fram að á meðan sumir þekktu Luke sem fast­eigna­sala, sagði eitt vitni að hann hefði verið við­rið­inn eit­ur­lyfja­sölu. Leigu­sali hans upp­lýsti að Luke hefði áður starfað sem einka­þjálf­ari og átt sína eigin lík­ams­rækt­ar­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Manndráp

Lögreglumaður fundinn sekur um manndráp – Skaut 95 ára langömmu með rafbyssu
HeimurManndráp

Lög­reglu­maður fund­inn sekur um mann­dráp – Skaut 95 ára langömmu með raf­byssu

Lög­reglu­maður sem stuð­aði 95 ára gamla heila­bil­aða langömmu til bana á hjúkr­un­ar­heim­il­inu þar sem hún bjó hefur verið fund­inn sekur um mann­dráp af gáleysi. Kristian White, sem er 34 ára, not­aði vopn sitt, raf­byssu, á Clare Nowland eftir að hún fannst ráf­andi um Yallambee Lodge umönn­un­ar­heim­ilið í bænum Cooma, bæ sem er um 275 km suður af Canberra í Ástralíu,...
Kominn á Vernd innan við ári eftir manndrápsdóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“
InnlentManndráp

Kominn á Vernd innan við ári eftir mann­dráps­dóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“

Ungur karl­maður sem dæmdur var í 12 ára fang­elsi fyrir mann­dráp við Fjarð­ar­kaup í apríl í fyrra er laus úr fang­elsi og afplánar nú á vernd. Ýmislegt þarf að koma til svo fólk þurfi ekki að aflána heilan fang­els­is­dóm að sögn fang­els­is­mála­stjóra. Maðurinn, sem er 19 ára, var dæmdur í fang­elsi í nóv­em­ber í fyrra en frá refs­ingu hans dregst...
Viðurkennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Gerandinn nýsloppinn úr fangelsi
HeimurManndráp

Við­ur­kennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Ger­and­inn nýslopp­inn úr fang­elsi

Maður hefur við­ur­kennt sök í mann­dráps­máli en hann stakk 87 ára gamlan mann sem var á raf­skutlu. Hinn 45 ára Lee Byer, stakk hinn 87 ára gamla Thomas O´Halloran í háls­ins og bring­una í Grenn­ford í Vestur-Lundunum, í ágúst 2022. Bryer hefur á bak­inu fjöldi dóma en nokkrum dögum fyrir árás­ina hafði hann verið lát­inn laus úr Wormwood Scrubs fang­els­inu....
Dagbjört ákærð fyrir manndrápið í Bátavogi
InnlentManndráp

Dagbjört ákærð fyrir mann­drápið í Bátavogi

Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára, hefur verið ákærð af hér­aðs­sak­sókn­ara, fyrir mann­drápið í Bátavogi. Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir, sak­sókn­ari hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, stað­festi að búið sé að ákæra grun­aðan sak­born­ing í Báta­vogs­mál­inu, fyrir mann­dráp. Samkvæmt DV er sú ákærða Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára. Ekki verður ákæran birt fjöl­miðlum fyrr en sak­born­ingi hefur verið birt hún. Dagbjört er ásökuð um að hafa banað 58...
Tíu ára fangelsi fyrir manndráp
InnlentManndráp

Tíu ára fang­elsi fyrir mann­dráp

Ungur karl­maður var í dag dæmdur fyrir mann­dráp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness og var hann dæmdur í tíu ára fang­elsi en mann­drápið átti sér stað á bíla­stæði Fjarð­ar­kaupa í apríl. Tveir karl­menn fengu tveggja ára dóm og 17 ára stúlka fékk 12 mán­aða skil­orðs­bundin dóm. Samkvæmt heim­ildum Vísis kom upp ósætti milli manns og hóps­ins, sem hlaut dómana, vegna fíkni­efna­neyslu á...
Gæsluvarðhaldi framlengt um tvær vikur
InnlentManndráp

Gæslu­varð­haldi fram­lengt um tvær vikur

Gæslu­varð­haldi yfir konu sem grunuð er um að hafa orðið karl­manni að bana í fjöl­býl­is­húsi við Bátavog, hefur verið fram­lengt um tvær vikur, eða til 18. októ­ber. Samkvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni hefur gæslu­varð­haldi yfir konu, 42 ára, verið fram­lengt til 18. októ­ber en það átti að renna út í dag. Konan er grunuð um mann­dráp en sam­býl­is­maður hennar fannst lát­inn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“