„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Cate Blanchett lúmsk á rauða dreglinum: „Smáatriðin skipta máli. Goðsögn“

Cate Blanchett lúmsk á rauða dreglinum: „Smáatriðin skipta máli. Goðsögn“

Cate Blanchett vakti athygli á rauða dregl­inum á Cannes kvik­mynda­há­tíð­inni í fyrra­dag. Kjóllinn sem hún klædd­ist þótti minna mikið á palest­ínska fán­ann.

Hin 55 ára stór­leik­kona gekk rauða dreg­il­inn við frum­sýn­ingu á The Apprentice í fyrra­kvöld en aðdá­endur hennar eru vissir að Jean Paul Gaultier kjóll­inn sem hún kædd­ist, hafi verið sér­stak­lega hann­aður til að sýna sam­stöðu með Palest­ínu, vegna þjóð­ar­morðs Ísra­els­hers sem hefur verið í gangi frá því að Hamas-liðar frömdu hryðju­verk í Ísrael 7. okt­o­ber síð­ast­lið­inn.

Grunur kvikn­aði þegar Cate tók upp kjólfald­inn og sýndi óvenju­lega ljós­grænt fóður á inn­an­verðum fald­inum. Kjóllinn sjálfur var svartur að framan og ljós að aftan. Þannig að þegar Cate veif­aði græna fóðr­inu á rauðum dregl­inum þótti mörgum þeir sjá þar palest­ínska fán­ann.

Ritjóri Vogue Arabia, Livia Firth, birti mynd af Cate á rauða dregl­inum, sam­fé­lags­miðli sínum og virt­ist telja að leik­konan hefði sýnt sam­stöðu með Palest­ínu: „ÉG ELSKA ÞIG CATE. #cannesfilmfesteival þegar dreg­ill­inn hefur mein­ingu,“ skrif­aði Firth.

Aðrir aðdá­endur skrif­uðu einnig færslur um atvikið á sam­fé­lags­miðlum sínum. Einn þeirra, Zaharia Jaser sagði: „Þegar ég verð stór vil ég vera Cate Blanchett, sem er það lúmsk að átta sig á því að dreg­ill­inn er rauður, svo ég geti bara klæðst svörtum og hvítum kjól með grænni fóðrun, til að koma með jafn sterk skila­boð.“

Annar skrif­aði: „Cate Blanchett í Jean Paul Gaultier á Cannes kvik­mynda­há­t­ið­inni 2024. Smá­at­riðin skipta máli. Goðsögn.“

Lúmsk Cate eða bara til­viljun?

Aðrir voru þó ekki eins sann­færðir og bentu á að í raun líti kjóll­inn út fyrir að vera ljós­bleikur að aftan, en ekki hvítur.

Í októ­ber var Cate meðal 55 Hollywood-leik­ara sem skrif­uðu undir áskorun til Joe Biden Banda­ríkja­for­seta, um að ýta á vopna­hlé á Gaza.

„Við hvetjum stjórn þína, og alla leið­toga heims­ins, til að heiðra allt líf í land­inu helga og hvetja til og greiða fyrir vopna­hléi án tafar – bindi enda á loft­árásir á Gaza og örugga lausn gísla,“ sagði í bréf­inu. Meðal ann­arra leik­ara sem skrif­uðu undir voru Kristen Stewart, Ramy Youssef, Joaquin Phoenix og Riz Ahmed.

Mánuði síðar hvatti Cate – sem er vel­vild­ar­sendi­herra Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNHCR – Evr­ópu­þingið til að véfengja þá „hættu­legu goð­sögn“ að allir flótta­menn sé á leið­inni til Evrópu.

„Ég er ekki Sýr­lend­ingur. Ég er ekki Úkra­ínu­maður. Ég er ekki Jemeni. Ég er ekki Afgani. Ég er ekki frá Suður-Súdan. Ég er ekki frá Ísrael eða Palest­ínu,“ sagði hún í upp­hafi ræðu sinnar. „Ég er ekki stjórn­mála­maður. Ég er ekki einu sinni sér­fræð­ingur í mál­inu. En ég er vitni.“ Og hún hélt áfram: „Og eftir að hafa orðið vitni að mann­legum kostn­aði af stríði, ofbeldi og ofsóknum, og heim­sótt flótta­menn alls staðar að úr heim­inum, get ég ekki litið undan. Ég hvet hvert og eitt ykkar hér í dag til að standa stað­fast­lega í að ögra hinni hættu­legu goð­sögn sem er gengur allt of víða og ýtir undir allt of mik­inn ótta og fjand­skap um að hver ein­asti flótta­maður sé á leið hingað til Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hollywood

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráðkvödd
Menning

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráð­kvödd

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar er látin en hún var aðeins 46 ára gömul. Samkvæmt dán­ar­vott­orði sem fjöl­miðlar vest­an­hafs hafa undir höndum fékk fyr­ir­sætan hjarta­á­fall á aðfanga­dag í fyrra. Auk þess að vera fyr­ir­sæta kom hún fram í þátt­unum Beverly Hills Nannies og The Milli­onaire Matchmaker. Þá lék hún einnig lítil hlut­verk í kvik­mynd­unum Suicide Squad og The Hangover Part III. Hún...
Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá andláti eiginmannsins – MYNDSKEIÐ
Menning

Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá and­láti eig­in­manns­ins – MYNDSKEIÐ

Aubrey Plaza kom fyrst fram opin­ber­lega í gær­kvöldi, eftir hörmu­legt and­lát eig­in­manns hennar sem féll fyrir eigin hendi fyrr á þessu ári. Aubrey kynnti tón­list­ar­at­riði Miley Cyrus og Brittany Howard á 50 ára afmæl­is­há­tíð „Saturday Night Live“ á sunnu­dags­kvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem almenn­ingur sér Aubrey síðan eig­in­maður hennar, Jeff Baena lést í byrjun jan­úar. Nokkrum dögum eftir...
Jóhannes Haukur buffaður
Menning

Jóhannes Haukur buff­aður

Íslend­ingar geta séð full­trúa sinn í nýj­ustu Marvel-ofur­hetju­mynd­inni, Captain America: Brave New World en Jóhannes Haukur Jóhann­es­son fer þar með hlut­verk. Jóhannes Haukur leikur þar mála­lið­ann Lawrence Chesney/Copperhead sem starfar náið með Seth Voelker/Sidewinder, sem Giancarlo Esposito túlkar. Um er að ræða fjórður Captain America kvik­mynd­ina frá Marvel en þetta er sú fyrsta þar sem Athony Dwane Mackie leikur kaftein­inn...
Ljósbrot heldur áfram að sigra heiminn – Hefur unnið 14 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun
Menning

Ljósbrot heldur áfram að sigra heim­inn – Hefur unnið 14 alþjóð­leg kvik­mynda­verð­laun

Það var mikið um dýrðir og margt um mann­inn við loka­at­höfn alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Gauta­borg í gær­kvöldi. Hápunktur athafn­ar­innar var þegar dóm­nefndin til­kynnti að íslenska kvik­myndin, Ljósbrot eftir Rúnar Rún­ars­son, hefði hlotið aðal­verð­launin á kvik­mynda­há­tíð­inni. Verð­launa­féð er eitt af þeim stæðstu í þessum geira, rétt rúm­lega fimm milljón króna. Kvik­mynda­hátíðin í Gauta­borg er helsta kvik­mynda­hátíð Norður­land­anna. Árlega sækja á annað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“