„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Maðurinn á bakvið Super Size Me látinn, 53 ára: „Þetta var sorglegur dagur“

Maðurinn á bakvið Super Size Me látinn, 53 ára: „Þetta var sorglegur dagur“
Morgan Spurlock

Leik­stjór­inn Morgan Spurlock er lát­inn eftir harða bar­áttu við krabba­mein. Hann var aðeins 53 ára.

Morgan Spurlock sló í gegn fyrir tveimur ára­tugum með heim­ild­ar­mynd­ina Super Size Me, þar sem hann skoð­aði áhrif þess fyrir heilsu sína, að borða mat frá McDonald´s skyndi­bita­keðj­unni í heilan mánuð.

Fjöl­skylda leik­stjór­ans stað­festi að hann hefði lát­ist í New York í gær, eftir veik­indi.

„Þetta var sorg­legur dagur, þegar við kvöddum Morgan bróður minn,“ sagði bróðir hans og  sam­starfs­maður Craig Spurlock í yfir­lýs­ingu sem NBC News fékk senda í dag. „Morgan gaf svo mikið með list sinni, hug­myndum og örlæti. Heim­ur­inn hefur misst sannan skap­andi snill­ing og sér­stakan mann,“ hélt hann áfram. „Ég er svo stoltur af því að hafa unnið með honum.“

Morgan vakti gríð­ar­lega athygli eftir að Super Size Me kom út í maí 2004, þar sem hann sagði frá heilsu­ferð sinni þegar hann borð­aði McDonald’s mat í mánuð. Verk­efnið, sem varpar ljósi á áhyggjur af skyndi­bita­iðn­að­inum, hlaut ósk­ar­stil­nefn­ingu fyrir bestu heim­ild­ar­mynd­ina og var síðar fylgt eftir með Super Size Me 2: Holy Chicken! árið 2017.

Morgan lætur eftir sig börnin Laken, 17 ára, sem hann á með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, Alex Jamieson og Kallen, 8 ára, sem hann á með maka sínum Söru Bern­stein.

Þó að Morgan hafi að mestu haldið sig frá kast­ljós­inu árin fyrir and­lát hans, var síð­asta Instagram færsla hans til­einkuð elsta syni hans.

„Til ham­ingju með afmælið Laken!“ skrif­aði hann í des­em­ber 2022. „Ég elska þá skap­andi, hvetj­andi og ástríðu­fullu mann­eskju sem þú ert orð­inn (svo ekki sé minnst á að vera svona epískur stóri bróðir). Við erum svo heppin að hafa þig í lífi okkar – fáðu nú öku­leyfið þitt svo þú getir keyrt mig um!“

Aft­ur­hvarf Morgan úr hinu opin­bera lífi kom í kjöl­farið af því að hann skrif­aði opið bréf í des­em­ber 2017 þar sem hann við­ur­kenndi kyn­ferð­is­brot.

„Þegar ég sit og horfi á hetju eftir hetju, mann eftir mann falla vegna for­tíð­ar­brota þeirra, sit ég ekki hjá og velti fyrir mér „hver verður næstur?“ Ég velti því fyrir mér, „hvenær munu þeir sækja mig?“,“ skrif­aði hann á sínum tíma og vís­aði til fyr­ir­sagna um vafa­sama hegðun í Hollywood. „Sjáðu til, ég skil, eftir mán­uði af þessum opin­ber­unum, að ég er ekki ein­hver sak­laus áhorf­andi, ég er líka hluti af vanda­mál­inu.“

Í kjöl­far játn­ing­ar­innar ákvað hann að yfir­gefa fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sitt, Warrior Poets.

Eins og sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins Jeremy Chilnick og Matthew Galkin sögðu E! News á þeim tíma: „Fyrir hönd Warrior Poets höfum við sem sam­starfs­að­ilar alltaf stutt fyr­ir­tækið okkar og við­leitni þess. Frá og með deg­inum í dag mun Morgan Spurlock láta af störfum þegar í stað. Við munum halda áfram að leiða fyr­ir­tækið sem jafnir sam­starfs­að­ilar og fram­leiða, dreifa og skapa frá sjálf­stæða fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu okkar.“

E! News sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hollywood

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráðkvödd
Menning

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráð­kvödd

Playboy-stúlkan Ariane Bellamar er látin en hún var aðeins 46 ára gömul. Samkvæmt dán­ar­vott­orði sem fjöl­miðlar vest­an­hafs hafa undir höndum fékk fyr­ir­sætan hjarta­á­fall á aðfanga­dag í fyrra. Auk þess að vera fyr­ir­sæta kom hún fram í þátt­unum Beverly Hills Nannies og The Milli­onaire Matchmaker. Þá lék hún einnig lítil hlut­verk í kvik­mynd­unum Suicide Squad og The Hangover Part III. Hún...
Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá andláti eiginmannsins – MYNDSKEIÐ
Menning

Aubrey Plaza kom fram í fyrsta skipti frá and­láti eig­in­manns­ins – MYNDSKEIÐ

Aubrey Plaza kom fyrst fram opin­ber­lega í gær­kvöldi, eftir hörmu­legt and­lát eig­in­manns hennar sem féll fyrir eigin hendi fyrr á þessu ári. Aubrey kynnti tón­list­ar­at­riði Miley Cyrus og Brittany Howard á 50 ára afmæl­is­há­tíð „Saturday Night Live“ á sunnu­dags­kvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem almenn­ingur sér Aubrey síðan eig­in­maður hennar, Jeff Baena lést í byrjun jan­úar. Nokkrum dögum eftir...
Jóhannes Haukur buffaður
Menning

Jóhannes Haukur buff­aður

Íslend­ingar geta séð full­trúa sinn í nýj­ustu Marvel-ofur­hetju­mynd­inni, Captain America: Brave New World en Jóhannes Haukur Jóhann­es­son fer þar með hlut­verk. Jóhannes Haukur leikur þar mála­lið­ann Lawrence Chesney/Copperhead sem starfar náið með Seth Voelker/Sidewinder, sem Giancarlo Esposito túlkar. Um er að ræða fjórður Captain America kvik­mynd­ina frá Marvel en þetta er sú fyrsta þar sem Athony Dwane Mackie leikur kaftein­inn...
Ljósbrot heldur áfram að sigra heiminn – Hefur unnið 14 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun
Menning

Ljósbrot heldur áfram að sigra heim­inn – Hefur unnið 14 alþjóð­leg kvik­mynda­verð­laun

Það var mikið um dýrðir og margt um mann­inn við loka­at­höfn alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Gauta­borg í gær­kvöldi. Hápunktur athafn­ar­innar var þegar dóm­nefndin til­kynnti að íslenska kvik­myndin, Ljósbrot eftir Rúnar Rún­ars­son, hefði hlotið aðal­verð­launin á kvik­mynda­há­tíð­inni. Verð­launa­féð er eitt af þeim stæðstu í þessum geira, rétt rúm­lega fimm milljón króna. Kvik­mynda­hátíðin í Gauta­borg er helsta kvik­mynda­hátíð Norður­land­anna. Árlega sækja á annað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“