Leikarinn Johnny Wactor er látinn, að því er fram kemur í
frétt TMZ
.
Johnny Wactor, sem þekktastur er fyrir leik sinn í þáttunum General Hospital, var skotinn til bana í miðborg Los Angeles, snemma á laugardagsmorgun, samkvæmt móður hans, Scarlett. Sagði hún að Johnny hafi verið með samstarfsmanni sínum þegar þeir sáu þrjá menn vesenast í kringum bíl hans. Þó að yfirvöld hafi ekki gefið upp nafn hans, passar þetta við lýsingu á atviki þar sem þrír grunaðir menn reyndu að stela hvarfakút úr bifreið.
Scarlett segir að henni hafi verið sagt að Johnny hafi ekki reynt að berjast eða stöðva þá en mennirnir skutu hann samt áður en þeir fóru hlupu í burtu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru sjúkraflutningamenn fljótir á vettvang, rétt eftir klukkan þrjú að morgni laugardags. Hann var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi.
Lögreglan hefur ekki gefið lýsingu á hinum grunuðu en móðir Johnnys segist vona að þeir finnist fljótt.
Johnny byrjaði a[ leika árið 2007, í hinni vinsælu Lifetime-þætti „Army Wives“ og lék nokkur mismunandi hlutverk áður en ferillinn varð meira stabíll næstu tvo áratugina. Stærstu hlutverkið hans voru í þáttunum Westworld, The OA, NCIS, Station 19, Criminal Minds og Hollywood Girl.Margir af aðdáendum Johnnys muna mest eftir honum úr General Hospital, þar sem hann lék Brando Corbin sem giftur var eiturlyfjafíklinum Sasha Corbin í þáttaröðinni. Hann lék hlutverkið frá 2020 og allt þar til persóna hans var skrifuð út úr þættinum árið 2022. Móðir Wactors minnist hans sem ástríks ungs manns og bætir að dauði hans skilur eftir stórt gat í hjarta fjölskyldunnar.Johnny lætur eftir sig móður sína og yngri bræður sína, Lance og Grant. Hann var 37 ára gamall.


























Athugasemdir