Kona frá Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, sem starfaði sem skólahjúkrunarfræðingur í skóla fyrir börn með sérþarfir, hefur verið handtekin, grunuð um að hafa handjárnað ættleidda dóttur sína við rúm hennar en stúlkan er þroskahömluð.
Marylou Dewitt hefur verið ákærð fyrir vanrækslu á umönnunarháðum einstaklingi, að stofna velferð umönnunarháðs einstaklings í hættu, líkamsárás, að stofna einstaklingi í hættu, áreitni, að halda manneskju fanginni, ólöglega handjárnun og fyrir að hafa átt við sönnunargögn, samkvæmt yfirlýsingu um handtöku í gegnum Law&Crime.
Handtaka hennar kom í kjölfar neyðarlínusímtals rétt fyrir klukkan 02:00, aðfaranótt fimmtudags. Dóttir Dewitts er sú sem hringdi í lögguna eftir að hún kom heim úr búð um miðnætti og „heyrði öskur koma frá efri hæð húsnæðisins,“ að sögn gögnum málsins..Konan sagði að móðir hennar hefði hlekkjað andlega fatlaða, ættleidda systur sína við rúm í óþekktan tíma þar sem hún hefði aðeins aðgang að samlokum en ekki öðrum mat. Konan á að hafa skjalfest það sem hún sá í herberginu með myndum og myndböndum, áður en hún fann lykla að keðjunum í nestisboxi og losaði systur sína.Samkvæmt lögreglu sýndu myndirnar og upptökurnar stúlkuna „handjárnaða við rúmgrind úr viði og keðju sem vafðist um háls hennar. Keðjan var vafin inn í bleikan stuttermabol. Þá hélt hjólakeðja stúlkunni við mjaðmasvæði hennar.“Andliti fórnarlambsins á myndum systurinnar frá vettvangi glæpsins var lýst sem „bólgnu“ á meðan konan sagði að Marylou „hafi byrjað að gera þetta í síðustu viku og skildi aðeins eftir samlokur fyrir hana að borða. Hún sagði einnig að Dewitt „hafi verið að láta hana „pissa og kúka“ sjálf,“ en myndirnar sýndu einnig marbletti á fæti hennar.Í yfirlýsingu segir að þegar móðir þeirra kom heim eftir að hafa skroppið út, hafi hún „reynt að taka til í herberginu með því að setja dýnuna aftur á rúmið. Á meðan systirin sagðist hafa „boðið móður sinni byrginn og komið í veg fyrir að hún gæti fiktað við vettvanginn“. Marylou fór þá úr húsinu með nestisboxið fósturdóttur sinnar.Lögreglumenn á vettvang ræddu við fórnarlambið, sem fullyrti að hún hefði verið bundin við rúmið síðan 24. maí með „engan aðgang að vatni“. Hún fullyrti einnig að Dewitt hefði „ekki látið hana fara í sturtu síðan í febrúar eða bursta tennurnar,“ og haldið frá henni lyfjum en hún „ætti á hættu að fá flogaköst“ án þeirra. Lögregluþjónar tóku eftir „sterkri þvaglykt og líkamslykt“ frá henni, sem og herberginu.Dewitt er sögð hafa „neitað að snúa aftur í húsnæðið“ eftir að hafa orðið vör við lögregluna, segja lögreglumenn, og að hún hafi byrjað að „senda sjálfsvígsskilaboð til fjölskyldumeðlima“. Samningaviðræður við Dewitt í síma báru ekki árangur, en hægt var að staðsetja síma hennar í nálægð við Pittsburgh. Samkvæmt yfirlýsingu lögreglunnarhófst eftirför eftir að Dewitt neitaði að stoppa bifreið sína. Að lokum náði ríkislögreglan að sannfæra hana, í gegnum síma, að gefast upp.„Móðirin var mögulega í einhvers konar geðrofi … það tók hana smá tíma að stoppa,“ sagði talsmaður ríkislögreglunnar við
Observer-Reporter
.Samkvæmt WPXI starfaði hin grunaða sem hjúkrunarfræðingur hjá Spectrum Charter-skólanum í Monroeville, en hefur nú verið rekin. Samkvæmt Facebook síðu þeirra er skólinn gjaldfrjáls, opinber skóli sem þjónar nemendum á aldrinum 13-21 árs, með sérþarfir.Konan er í haldi lögreglu en formeðferð á málinu fer fram 12. júní.




















Athugasemdir