„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Átján ára seglbrettamaður lést við köfun – Stefndi á Ólympíuleikana

Átján ára seglbrettamaður lést við köfun – Stefndi á Ólympíuleikana
J.J.

Jackson James „J.J.“ Rice, banda­rískur segl­bretta­maður sem stefndi á ólymp­íu­leik­ana, lést í köf­un­ar­slysi við strendur Tonga (áður Vin­áttu­eyjar), en faðir hans, Darren Rice, stað­festi fregn­irnar. J.J. var ein­ungis 18 ára gam­all.

J.J. var frík­öfun frá báti 15. júní þegar hann lést en talið er að hann hafi misst með­vit­und í grunnu vatn­inu (e. shallow water blackout), sam­kvæmt föður hans. Að sögn föð­urs­ins fannst lík hans á hafs­botni undir bátnum af öðrum köf­urum en til­raunir til að end­ur­lífga hann mistók­ust.

Hinn efni­legi íþrótta­maður fædd­ist í Banda­ríkj­unum en ólst upp í eyja­kla­s­anum Ha’apai, á Tonga en faðir hans og móðir, Nina Rice, eiga Mata­fonua Island Lodge gisti­heim­ilið og veit­inga­stað­inn. J.J. sem var með tongóskan rík­is­borg­ara­rétt, keppti fyrir hönd lands­ins í segl­bretta­í­þrótt­inni á alþjóð­legum mótum í gegnum árin. Hafði hann von­ast til að kom­ast á Ólymp­íu­leik­ana í París 2024.

Systir J.J., Lily Rice skrif­aði nokkur orð á sam­fé­lags­miðl­ana eftir að and­látið bar að:

„Ég var blessuð með ótrú­leg­asta bróður í öllum heim­inum og það er sárt að þurfa að segja að hann sé lát­inn,“ skrif­aði hún á Facebook. „Hann var ótrú­legur segl­bretta­maður og hann hefði kom­ist á Ólymp­íu­leik­ana og endað með stóra glans­andi medalíu … hann eign­að­ist svo marga ótrú­lega vini um allan heim.

Hún hélt áfram, „Ég mun reyna mitt besta til að nota það sem hann kenndi mér til að vera jafn­vel bara pínu­lítið eins ótrú­leg og hann var. Síðast þegar ég sá hann gaf hann mér stórt faðm­lag og ég vildi að ég hefði haldið í lengur.“

Samkvæmt Matangi Tonga frétta­miðl­inum, minnt­ist Darren, faðir J.J. þau skipti þegar sonur hans hafði á óeig­in­gjarnan hátt lagt sig í lífs­hættu til að bjarga öðrum – fyrst þegar hann var 15 ára en þá synti hann út til að bjarga far­þegum um borð í ferju sem hvolfdi undan Faleloa árið 2021, og aftur þegar hann synti út til að bjarga og koma í land tveimur stúlkum sem höfðu sóp­ast af sand­rifi út á sjó.

Í maí keppti J.J. á Last Chance Reggata-keppn­inni í Hyères, Frakk­landi þar sem hann von­að­ist til að vinna sér inn sæti á Ólymp­íu­leik­unum 2024. Fréttir herma að J.J. hafi verið að und­ir­búa þátt­töku á Ólymp­íu­leik­unum í ár, en í kjöl­far keppn­innar skrif­aði hinn 18 ára gamli afreks­maður á Instagram að von­irnar um Olymp­íu­leik­ana í þetta skiptið, væri lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“