„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Unglingurinn á Tenerife fór heim með dulurafullum Bretum: „Hann þekkti þá ekki neitt“

Unglingurinn á Tenerife fór heim með dulurafullum Bretum: „Hann þekkti þá ekki neitt“
Jay Slater Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglan, með hjálp þyrlu, leit­ar­hunda og dróna, ásamt fjalla­björg­un­ar­sveita, hefur leitað að hinum 19 ára Jay Slater, nærri Airbnb-hús­næði sem hann fór í ásamt tveimur breskum karl­mönnum.

Airbnb-húsið er ein­angrað bónda­býli sem stað­sett er í 30 kíló­metra fjar­lægð frá hinu vin­sæla Play des Los Americas, amer­ísku strönd­inni, í suð­ur­hluta Tenerife í þorp­inu Masca.

Jay kom til Tenerife 12. júní með tveimur vinum sínum, Brad og Lucy Mae Law, sem var síð­asta mann­eskjan sem Jay var í sam­bandi við áður en hann hvarf.

Vina­hóp­ur­inn mætti svo á tón­list­ar­há­tíð­ina NRG festi­val sem byrj­aði síð­asta föstu­dag og end­aði á eft­irpartýi árla morg­uns á Papagayo á hinni alræmda Playa des Los American strönd­inni.

Tón­list­ar­há­tíðin sem vin­irnir fóru á, auk hund­ruði ann­arra gesta, var aug­lýst sem „helgi af raf­magn­aðri tón­list, töfr­andi myndefni og nýstár­legri fram­setn­ingu.“

Myndband sem tekið var í partý­inu sýnir Jay brosa og dansa en það var þá sem Lucy og Brad sáu vin sinni í síð­asta skipti en þau yfir­gáfu bæði partýið í kringum klukkan tvö en Jay varð eftir ásamt tveimur breskur mönnum sem hann hafði hitt.

Það er vitað að í kringum fjögur, þegar partýið var við það að hætta, hafi lög­reglan verið kölluð á Veronica-strönd­ina til að bregð­ast við „atviki“ en ekk­ert bendir til þess að Jay hafi verið við­rið­inn það mál.

Vitað er að Jay hafi um fimm­leytið farið með Bretunum tveimur í Airbnb-hús­næði sem þeir höfðu leigt, sem kall­ast Casa Abuele Tina, en mikið er um hlykkj­ótta fjall­vegi á leið­inni þangað.

Lucy sagði MailOn­line að Jay hefði sagt henni að hann ætl­aði með Bretunum en hún hvatti hann til „koma aftur“ í her­bergi þeirra á Paloma Beach-hót­el­inu en hann neit­aði því og sagð­ist ætl­aði með mönn­unum.

„Ég skil bara ekki af hverju hann fór til þeirra, hann var bara nýbú­inn að hitta þá og þekkti þá ekki neitt. Við Brad sögðum honum að koma aftur en hann gerði það ekki, ef hann hefði gert það, væri hann ekki horf­inn,“ sagði Lucy.

Lítið er vitað um Bretana tvo en Lucy lýsti þeim sem „hör­unds­dökkum og breskum“ en bar­eig­andi í næsta húsi við sveita­býlið sagði MailOn­line að hún hefði heyrt í fólki í hús­inu klukkan sex um morg­un­inn.

Þegar Jay var enn í hús­inu sendi hann móður sinni og Lucy tvær ljós­myndir á Snapchat en önnur þeirra sýndi útsýnið frá hús­inu yfir nær­liggj­andi dal og hin sýndi hann með sígar­ettu í hend­inni á plan­inu fyrir utan húsið.

Hér er tíma­línan yfir málið:

12. júní – Jay lendir á Tenerife síð­asta mið­viku­dag með vinum sínum, til að fara á NRG, sem er þriggja daga reif tón­list­ar­há­tíð frá 14 til 16. júní á Los Cristianos.

17. júní – Snemma nætur næst mynd­band af Jay njóta sín í eft­irpartýi á Xanadu-skemmti­staðnum, ásamt vin­konu sinni, Lucy Mae West.

Klukkan 02:00 – Lucy og Brad ákveða að yfir­gefa partýið og fara aftur í íbúð sem þau leigðu en Jay verður áfram í partý­inu og spjallar við tvo Breta sem hann hitti þar.

Klukkan 05:00 – Jay og Bret­arnir tveir yfir­gefa svæðið og fara í klukku­tíma bíla­ferð um hlykkj­óttan fjall­veg að AirBnB-sveita­býli í Masca, þar sem hinir dul­ar­fullu Bretar dvelja.

Klukkan 06:00 – Nágrannar heyra hávaða frá hús­inu.

Klukkan 07:40 – Jay sendir mynd af útsýn­inu frá hús­inu og mynd af sér hald­andi á sígar­ettu á stétt­inni fyrir utan húsið.

Í kringum 08:00 – Jay spyr konu sem býr á svæð­inu hvernig hann geti kom­ist aftur til Los Cristianos með rútu. Hún segir honum að næsta rúta fari ekki fyrr en klukkan 10:00.

Klukkan 8:15 – Sama kona sér Jay ganga upp fjallið og í ranga átt.

Klukkan 08:50 – Jay hringir í Lucy til að segja henni að hann sé aðeins með eitt pró­sent eftir að batt­erýi í sím­anum og að hann sé villtur og hafi enga hug­mynd hvar hann sé en að hann sé að reyna að ganga aftur til Los Cristianos.

Stuttu síðar teng­ist sími Jay við símamastur nærri Mirador La Cruz De Hilda veit­inga­stað­inn en þar nærri er stærð­ar­innar gljúfur en þar leitar lög­reglan að honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“