„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir lögregluna hafa stækkað leitina á Tenerife: „Við höldum enn í von um að hann sé á lífi“

Segir lögregluna hafa stækkað leitina á Tenerife: „Við höldum enn í von um að hann sé á lífi“
Jay Slater hvarf fyrir 11 dögum.

Móðir hins 19 ára Jay Slater, sem hvarf á Tenerife fyrir sex dögum síðan, segir að spænska lög­reglan hafi gefið í við leit­ina að syni hennar.

Sjá einnig: Ung­ling­ur­inn á Tenerife skarst á löpp rétt fyrir hvarfið: „Það er eitt­hvað skrítið í gangi“

Í dag eru leit­ar­hópar, lög­reglan og slökkvi­liðs­menn að kemba stórar part af dalnum þar sem Jay sást síð­ast, með hjálp leit­ar­hunda.

Móðirin, Debbie Duncan sagði The Guardian að hún hefði verið átta klukku­stundir á lög­reglu­stöð­inni í gær þar sem lög­reglan útskýrði leit sína skref fyrir skref, af hinum unga múr­ara­lær­lingi frá Lancas-skíri. „Ég held að gefið hefur verið í við leit­ina,“ sagði hún, sem hún sagði vera „það rétta“ í stöð­unni.

Duncan, sem flaug til Tenerife á þriðju­dag­inn, dag­inn eftir að Jay hvarf, seg­ist enn trúa að „eitt­hvað óvið­eig­andi“ gæti hafa komið fyrir son hennar, og að lög­reglan seg­ist „rann­saka allar vís­bend­ingar“.

Í dag var lög­reglan stödd í AirBnB-hús­næð­inu þar sem Jay heim­sótti áður en hann hvarf. Lög­reglan sást einnig nærri húsi nokkru lengra í dalnum, nærri pálma­tré þar sem sími Jay tengd­ist síð­ast við símamastur, en það er síð­asta þekkta stað­setn­ing drengs­ins.

Lög­reglan við sveita­þorpið í dag.

Á föstu­dag sögð­ust björg­un­ar­menn vera að ein­beita sér að 30 kíló­metra svæði og þá sér­stak­lega og að göngu­stígum í dalnum umhverfis sveita­þorpið Masca, auk tveggja gilja.

Þar sem Slater hefur nú verið saknað í næstum viku halda sögu­sagnir og sam­sær­is­kenn­ingar um hvarf hans áfram að birt­ast á net­inu, þar sem „gervi­sér­fræð­ingar“ á sam­fé­lags­miðlum eru að spek­úlera, þar á meðal á TikTok og á Facebook.

Stjórn­andi opin­berrar Facebook-síðu sem sett var upp til að finna hann, Rach Louise Harg, sagði í færslu á síð­unni að ein­hver hefði skráð sig inn á Instagram reikn­ing Slater sem væri ekki hann.

Móðir Jay sagði að lög­reglan á Spáni hefði áhyggjur af „hávað­inn“ í kringum málið gæti haft nei­kvæð áhrif á leit­ina.

„Þeir hafa í raun sagt að það sé of mik­ill hávaði, sem hefur áhrif,“ sagði hún. „Þeir hafa allar áætl­anir, stað­setn­ingar sínar. Þeir hafa fengið þetta kort sem þeir voru að sýna okkur, með mis­mun­andi litum.

Duncan sagði frá sím­tölum frá fjöl­skyld­unni til bresku lög­regl­unnar um að hún myndi fljúga til Tenerife til að taka þátt í leit­inni. En í gær­kvöldi sagði lög­reglu­stjór­inn í Lanca-skíri í yfir­lýs­ingu, að til­boði þeirra um hjálp hefði verið hafnað af spænskum starfs­bræðrum þeirra.

„Við höfum átt í tungu­mála­ves­eni,“ sagði Duncan. „Það er erfitt með alla spænsku lög­regl­una og bresku lög­regl­una, þeir verða að láta spænsku lög­regl­una sjá um rann­sókn­ina, en ég vil að ein­hver komi hingað.

Lög­reglan í Lanca-skíri sagði að sér­fræð­ingar frá lög­regl­unni héldu áfram aðstoð sinni við fjöl­skyld­una.

„Þó að þetta mál falli utan lög­sögu breskrar lög­gæslu höfum við boðið Guardia Civil stuðn­ing til að sjá hvort þeir þurfi ein­hver við­bót­ar­úr­ræði,“ sagði tals­maður lög­regl­unnar.

„Þeir hafa stað­fest að á þessum tíma eru þeir ánægðir með þau úrræði sem þeir hafa, en það til­boð er enn opið og þeir munu hafa sam­band við okkur ef sú staða breyt­ist.“

Á föstu­dag sögð­ust leit­ar­hópar í Rural De Teno nátt­úru­garð­inum ekki hafa gefið upp von­ina um að finna Slater á lífi. Þeir sögðu að leitin beind­ist að þremur aðskildum svæðum sem ná yfir 30 fer­kíló­metra vega­lengd.

„Við höldum enn í von um að hann sé á lífi, allt til síð­ustu stundar þegar síð­asta vonin er úti,“ sagði einn björg­un­ar­mað­ur­inn. „Sann­leik­ur­inn er sá að við erum svo­lítið svekktur vegna þess að við finnum hann ekki. Þetta svæði er svo stórt og það er mjög erfitt að leita á svona bröttu svæði. En við gerum allt sem við getum.“

„Við höfum ekki fundið neitt, við höfum kembt alla þessa slóð, við höfum verið upp og niður en hingað til, ekk­ert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“