„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Björguðu“ Skota við leit að Jay Slater á Tenerife: „Ég þurfti ekki að láta bjarga mér“

„Björguðu“ Skota við leit að Jay Slater á Tenerife: „Ég þurfti ekki að láta bjarga mér“
David Larkin

Breti sem var í fjall­göngu á Tenerife, þegar björg­un­ar­sveit sem leitar nú að hinum 19 ára Jay Slater, fann hann og „bjarg­aði“, hefur nú opnað sig um málið. Segist hann ekki hafa þurft á björgun að halda.

Spænska lög­reglan birti færslu á Facebook þar sem talað er um vel heppn­aða björgun á 51 árs skota. Sagðist hún hafa „flýtt sér að bjarga 51 árs gömlum skoskum göngu­manni“. Skotinn, David Larkin, er reyndur göngu­garpur og seg­ist ekki hafa þurft á aðstoð að halda.

Sagðist hann ekki vilja „hljóma óþakk­látur“ og þakk­aði þeim „fyrir að hafa áhyggjur“ en að hann hafi verið í góðum málum. Larkin hafði verið á göngu á svip­uðum slóðum og hinn breski ung­lings­strák­ur­inn Jay Slater, en hans hefur verið leitað í rúma viku, án árang­urs.
Larkin ræddi við blaða­menn um „björg­un­ina“: „Ég get sagt ykkur þetta núna, ég var ekki þreyttur og ég var ekki ringlaður, og ég þurfti ekki að láta bjarga mér. Ég held að tungu­mála­örð­ug­leikar hafi sett strik í reikn­ing­inn. Ég útskýrði fyrir þeim að ég væri með nægi­legt vatn, ég var vel kæddur, ég var með mat og ég er vanur göngu­maður.“

Larkin kom til Tenerife fyrr í þessum mán­uði og dvaldi í eins sverfn­her­bergja kofa nærri kletta­brún og stund­aði göngur á göngu­leiðum á svæð­inu. Bætti hann við í sam­tali sínu vð MailOn­line: „Ég fór í gilið og sá þyrlurnar leita og hélt að þeir væru að leita að drengnum en ég hélt ekki í eina mín­útu að þeir myndu að end­ingu sækja mig. Ég held að þeir hafi viljað sýna hvað þeir væru góðir, en ég þurfti ekki að láta bjarga mér. Ég finn til með fjöl­skyldu drengs­ins og vona að hann finnst sem fyrst.“

Bætti hann við: „“Ég skamm­ast mín eig­in­lega fyrir þetta, ég var með göngustafi mína og ég veit hvað ég er að gera og vissi að ef það yrði rok myndi ég leita skjóls í helli. Ég þekki þessar slóðir, ég hef komið hingað í fjöldi ára, svo ég veit hvað ég er að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Björgun

Landsbjörg bjargaði fiskiskipi norðvestur af Garðskaga – MYNDBAND
Landið

Lands­björg bjarg­aði fiski­skipi norð­vestur af Garð­skaga – MYNDBAND

Björg­un­ar­skipið Hannes Þ. Hafstein bjarg­aði í gær fiski­skipi sem var í vand­ræðum 15 sjó­mílur norð­vestur af Garð­skaga en Vík­ur­fréttir greindu fyrst frá mál­inu. Fiski­skipið hafði sent út aðstoð­ar­beiðni síð­degis í gær en sam­kvæmt þeirri beiðni var aðal­skrúfa skips­ins óvirk en vélar í lagi. Sem betur var ekki nein yfir­vof­andi hætta á ferðum en var engu að síður ljóst að skiptið...
Ferðamenn voru hætt komnir við Vatnajökul
Innlent

Ferða­menn voru hætt komnir við Vatna­jökul

Það var rétt upp úr klukkan tíu í gær­kvöldi þegar björg­un­ar­sveit­ar­menn Lands­bjargar fundu týnda ferða­menn vestan við Vatn­jökul. Ferða­menn­irnir höfðu virkjað neyð­arsendi klukkan fjögur seinni­part­inn í gær sem barst stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar. Ekki var talið ráð­legt að kom­ast að fólk­inu landeið­ina þar sem færðin var mjög slæm en neyð­ar­sendir­inn sýndi stað­setn­ingu þeirra sem var við Sylgju í vest­an­verðum jökl­inum. Þyrla var...
Björgunarsveitir leituðu erlends ferðamanns við gosstöðvarnar
Innlent#Björgun

Björg­un­ar­sveitir leit­uðu erlends ferða­manns við gos­s­töðv­arnar

Erlendur ferða­maður villt­ist við gos­s­töðv­arnar, hann hringdi í neyð­ar­lín­una og björg­un­ar­sveitir hófu leit af mann­inum um klukkan fimm í morgun, við gos­s­töðv­arnar í Geld­inga­dal. Mbl.is greindi fyrst frá. Björg­un­ar­sveitir fundu mann­inn kaldan, hrakin en óslas­aðan en hann hafði labbað fram hjá göngu­leið­inni og villts. Maðurinn var búin að ganga í langan tíma og var að vonum þreyttur. Það vildi til...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“