„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biden þótti óskýr og kraftlaus í kappræðunum: Sagði Trump hafa „siðferði á við villikött“

Biden þótti óskýr og kraftlaus í kappræðunum: Sagði Trump hafa „siðferði á við villikött“

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti þótti ekki standa sig vel í kapp­ræð­unum á CNN í gær en hann þótti óskýr í máli og kraft­laus.

Kate Bed­ing­fi­eld, fyrr­ver­andi sam­skipta­stjóri Biden, var á CNN strax eftir kapp­ræð­urnar og hún var skýr: „Það eru ekki hægt að neita því, þetta var ekki góð kapp­ræða fyrir Joe Biden.“

Sagði hún að aðal­málið fyrir hann hafi verið að sanna að hann hefði orku og þol og það hafi mis­tek­ist.

Þegar leið á umræð­una byrj­aði Biden eins og hnefa­leika­maður sem er kom­inn upp við reipið, að taka miklar sveiflur gegn and­stæð­ingi sínum til að reyna að breyta skrið­þung­anum. Nokkrar af þessum sveiflum lentu á og ögr­uðu for­set­anum fyrr­ver­andi sem brást reiði­lega við.

Að fyrstu umræð­urnar sem stjórn­endur CNN tóku upp voru um helstu kjós­enda­málin, efna­hags- og inn­flytj­enda­mál, sem kann­anir sýna að Banda­ríkja­menn treysta Donald Trump meira fyrir, gerði hins vegar vanda­málið verra fyrir for­set­ann.

„Ég veit í raun ekki hvað hann sagði í lok þess­arar setn­ingar, og ég held að hann hafi ekki gert það heldur,“ sagði Trump eftir annað svar Biden. Sú lína gæti hafa súmmerað upp kvöldið.

For­set­inn fyrr­ver­andi bauð að mestu upp á agaða og lipra frammi­stöðu. Hann forð­að­ist hvers konar trufl­anir og skot sem gróf undan fyrstu kapp­ræðum hans árið 2020 og sneri umræð­unni aftur að árásum á feril Bidens í hvert skipti sem hann gat.

Hann setti ítrekað fram full­yrð­ingar sem voru ekki studdar af stað­reyndum sem og beinum lygum, en herra Biden gat að mestu leyti ekki komið honum í hornið, svo mynd­lík­ingin við boxið haldið áfram.

Þegar umræðu­efnið sner­ist um fóst­ur­eyð­ingar, beindi for­set­inn fyrr­ver­andi ítrekað athygli að því sem hann sagði vera öfgar Demókra­ta­flokks­ins. Hann hélt því fram, rang­lega, að demókratar styðji fóst­ur­eyð­ingar eftir að börn eru fædd.

Fóst­ur­eyð­ingar er mál sem hefur reynst vera veik­leiki fyrir Trump og repúblik­ana almennt frá því að Roe gegn Wade- dóms­málið, sem hafði verndað stjórn­ar­skrár­var­inn rétt til fóst­ur­eyð­inga, var hnekkt af hæsta­rétti árið 2022. En árásir Biden á þann veika punkt Trumps, þar sem hann hefði getað skorað stig, mistók­ust.

„Þetta hefur verið hræði­legt, það sem þú hefur gert,“ sagði for­set­inn.

Stuttu eftir að umræð­unni lauk, við­ur­kenndi Kamala Harris vara­for­seti að for­set­inn hefði byrjað „hægt“ en sagði hann hafa endað sterkur. Samkvæmt BBC sem fjall­aði um málið, er um að ræða of bjart­sýna skýr­ingu á kapp­ræð­unum hjá Harris en tekur þó fram að Biden hafi skánað þegar leið á.

Í einni eft­ir­minni­legri línu benti Biden á sak­fell­ingu Donalds Trump vegna ákæru sem staf­aði af meintum kyn­ferð­is­legum tengslum við klám­stjörn­una Stormy Daniels og sagði að for­set­inn fyrr­ver­andi hefði „sið­ferði á við villi­kött“.

„Ég stund­aði ekki kyn­líf með klám­stjörnu,“ svar­aði Trump reiði­lega.

Trump þurfti einnig að verja sig þegar svar­aði um við­brögð sín við árásinni á höf­uð­borg Banda­ríkj­anna 6. jan­úar. Hann reyndi upp­haf­lega að breyta spurn­ingu um ábyrgð sína á þingupp­þot­inu, með því að for­dæm­ina feril Bidens, en að þessu sinni vildi for­set­inn ekki sleppa honum af öngl­inum, svo veiði­mynd­lík­ing sé notuð.

„Hann hvatti þetta fólk til að fara upp að Capitol Hill. Hann sat þarna í þrjár klukku­stundir þegar aðstoð­ar­menn hans báðu hann um að gera eitt­hvað,“ sagði Biden. „Hann gerði ekki neitt.“

For­set­inn fyrr­ver­andi vék sér ítrekað undan því að svara hvort hann myndi sætta sig við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna 2024.

Í nútíma­sögu Banda­ríkj­anna hefur engin kapp­ræða verið haldin svo snemma en ástæðan er að hluta til vegna þess að Biden-teymið vildi hafa það þannig. Ein ástæðan er að teymið vildi reyna beina fók­u­snum á Trump fyrr á kosn­inga­tíma­bil­inu í von um að banda­rískir kjós­endur yrðu minntir á óreiðu­kennda for­seta­tíð hans.

En fleiri munu tala um frammi­stöðu Bidens eftir þessa kapp­ræðu en fyrr­ver­andi for­set­ann.

Önnur ástæða fyrir því að Biden-teymið gæti hafa viljað kapp­ræð­urnar þetta snemma er sú að það myndi gefa fram­bjóð­anda sínum meiri tíma til að jafna sig eftir slaka frammi­stöðu. Á end­anum getur þetta verið það sem veitir þeim huggun eftir gær­kvöldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

L.A. Times styður ekki Harris í forsetakosningunum: „Við drögum línuna við þjóðarmorð“
Heimur

L.A. Times styður ekki Harris í for­seta­kosn­ing­unum: „Við drögum lín­una við þjóð­ar­morð“

Dóttir eig­anda Los Angeles Times segir að dag­blaðið hafi ákveðið að lýsa ekki yfir stuðn­ingi við fram­boð Kamölu Harris í for­seta­kosn­ing­un­inum sem fara fram í næstu viku, vegna afstöðu hennar til þjóð­ar­morðs­ins á Gaza. Dóttirin, Nika Soon-Shiong sagði í til­kynn­ingu: „Fjöl­skylda okkar tók þá sam­eig­in­legu ákvörðun að styðja ekki for­seta­fram­bjóð­anda. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég hef...
Billie Eilish lýsir yfir stuðningi við Harris: „Við getum ekki látið öfgamenn stjórna lífi okkar“
Menning

Billie Eilish lýsir yfir stuðn­ingi við Harris: „Við getum ekki látið öfga­menn stjórna lífi okkar“

Súper­stjörnu­systk­inin Finneas og Billie Eilish lýstu yfir stuðn­ingi við Kamölu Harris í gær. Tón­list­ar­dúóið og systk­inin Finneas og Billie Eilish birtu í gær mynd­band á Instagram í til­efni af Degi kosn­inga­skrán­ingar Banda­ríkj­anna sem var í gær. Þar kvöttu systk­inin fólk til að skrá sig og jafn­vel kjósa snemma, eins og þau gerðu. „Við kjósum Kamölu Harris og Tim Walz af...
Biden táraðist á landsfundi Demókrata: „Hún er hörð, hún hefur reynslu og hefur gríðarleg heilindi“
Heimurforsetakosningar

Biden tárað­ist á lands­fundi Demókrata: „Hún er hörð, hún hefur reynslu og hefur gríð­ar­leg heil­indi“

Joe Biden tárað­ist þegar hann steig á sviðið á lands­fundi Demókra­ta­flokknum í Chicago-borg í gær­kvöldi. Biden hélt ræðu fyrir troð­fullum sal í Chicago fyrsta kvöld lands­þings Demókrata, þar sem hann varði for­seta­tíð sína og snerti á mörgum þeirra mála sem hann barð­ist fyrir árið 2020 og aftur á þessu ári áður en hann ákvað að stíga til hliðar um miðjan...
Tim Walz er varaforsetaefni Kamala Harris
Heimurforsetakosningar

Tim Walz er vara­for­seta­efni Kamala Harris

Tim Walz, rík­is­stjóri Minnesota-fylkis í Banda­ríkj­unum, hefur verið val­inn sem vara­for­seta­efni Kamala Harris í kom­andi for­seta­kosn­ingum Banda­ríkj­anna en frá þessu greina fjöl­miðlar vest­an­hafs. Valið á Walz hefur þótt lík­legt um nokk­urt skeið en Walz er gríð­ar­lega vin­sæll stjórn­mála­maður en hann er fyrr­ver­andi kenn­ari og her­maður. Walz hefur verið rík­is­stjóri Minnesota frá 2019 og telja margir ljóst að hann mun draga...
Ásdís Rán stendur með Höllu forseta: „Það er nú í lagi að gera smá forseta díl í bílakaupum“
Innlentforsetakosningar

Ásdís Rán stendur með Höllu for­seta: „Það er nú í lagi að gera smá for­seta díl í bíla­kaupum“

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­sæta og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, virð­ist standa með Höllu Tóm­as­dóttur, verð­andi for­seta Íslands, á þeim erf­iðu tímum sem hún er að ganga í gegnum en Halla hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir hegðun sína. For­set­inn verð­andi fékk ríf­legan afslátt á bíla­kaupum hjá Brimborg og sat fyrir í aug­lýs­ingu fyrir fyr­ir­tækið en hún hefur sagt að mynd­birt­ingin af henni með...
Steinunn Ólína gerir upp kosningabaráttuna með rothöggi: „Sóðasveit Katrínar kom sögum á kreik“
Innlentforsetakosningar

Steinunn Ólína gerir upp kosn­inga­bar­átt­una með rot­höggi: „Sóða­sveit Katrínar kom sögum á kreik“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tók af sér box­hansk­ana og skrif­aði niður þrumupistil á Facebook í gær. Þar tætir hún í sig alla sem henni fannst hafa smánað for­seta­kosn­inga­bar­átt­una sem nú er nýaf­staðin.„Money can’t buy you loveÉg sé mig knúna til að segja nokkur orð um þessa kosn­inga­bar­áttu svo ég losni við óþolið úr kerf­inu. Síðan vona ég að ég þurfi aldrei...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“