„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjölskylda Jay Slater leitar enn þó lögreglan sé hætt: „Við verðum að gera eitthvað“

Fjölskylda Jay Slater leitar enn þó lögreglan sé hætt: „Við verðum að gera eitthvað“

Fjöl­skylda hins 19 ára Jay Slater, sem hvarf á Tenerife 17. júní síð­ast­lið­inn, skipu­leggur nú eigin leit að drengnum, eftir að opin­berri leit var hætt.

Frændi Jay Slater, Glen Duncan, lof­aði því að fjöl­skyldan myndi halda áfram „örvænt­ing­ar­fullri“ leit sinni að ung­lingnum. „Við verðum að gera eitt­hvað,“ sagði hann.

Múr­ara­lær­ling­ur­inn Jay Slater sást síð­ast 17. júní þar sem hann yfir­gaf Airbnb íbúð í fjalla­þorp­inu Masca til þess að ganga til baka þaðan sem hann gisti. Gangan hefði tekið hann 11 klukku­stundir.

Fjöl­skyldu­með­limir hans, auk litlum hópi sjálf­boða­liða, fara nú gang­andi um svæðið þar sem Jay sást síð­ast en yfir­völd á Tenerife hættu leit­inni 30. júní.

Glen (41), frændi Jay, ræddi við Sky News í gær þar sem hann var staddur í þorp­inu Santiago del Teide á eyj­unni, en hann sagði aðstæður fjöl­skyld­unnar sem „örvænt­ing­ar­fullar.“

Segir Glen að fjöl­skyld­unni líði eins og þau hafi verið skilin eftir ein og þegar hann er spurður hvort hún myndi vilja hjálp frá bresku lög­regl­unni svar­aði hann: „Við myndum  gjarnan vilja það, en það er bara ekki það ein­falt“. Bætti hann við: „Hingað til höfum við verið í sam­bandi við bresku ræð­is­manna­skrif­stof­una hér sem segir að enn sé verið að leita, við þurfum bara að bíða. „Þetta eykur bara á von­leysið í raun.“

Faðir Jay, Warren Slater (58) og eldri bróðir Jay, Zak (21), eru meðal þeirra fáu sem eru að rann­saka djúpu, grýttu gljúfrin í Rural de Teno garð­inum, nálægt hinu afskekkta þorpi Masca í norð­ur­hluta eyj­unnar. „Það eru ekki bara Warren og Zak að leita, það er fleira fólk þarna,“ sagði Glen. Bætir hann við að fjöl­skyldan hafi ekki gefið upp von­ina og muni leita að Jay þar til hann finnst. „Við verðum bara að gera eitt­hvað því ann­ars sitjum við bara í íbúð­inni og störum á sömu fjóra vegg­ina.“

Leit lög­regl­unnar fór fram á bröttu grýttu svæði, giljum og slóðum þar sem þyrlur, drónar og leit­ar­hundar voru sendir á vett­vang til að finna Jay Slater en án árang­urs. Eftir að leit­inni var hætt í lok júní sagði Guardia-lög­reglan við Sky News að fjöl­skyldan gæti leitað með eigin flokki og björg­un­arteymi. Segist lög­reglan enn vera að rann­saka hvarfið en vilja ekki gefa frek­ari upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“