„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skotmaðurinn í Pennsylvanínu vann á hjúkrunarheimili – Faðir hans keypti riffilinn sem notaður var

Skotmaðurinn í Pennsylvanínu vann á hjúkrunarheimili – Faðir hans keypti riffilinn sem notaður var
Tomas Matthew Crook

Thomas Matthew Crooks er nafn þess sem reyndi að drepa Donald Trump í gær með rifli en hæfði for­set­ann fyrr­ver­andi í eyrað. Þá drap hann einn áhorf­anda og særði tvo alvar­lega, áður en leyniskytta leyni­þjón­ust­unnar skaut hann til bana. En hver var þessi tvíugi maður?

Hann var frá Bethel Park í Penn­syl­vaníu, um 70 kíló­metra frá staðnum þar sem bana­til­ræðið var framið. Hann útskrif­að­ist árið 2022 úr Bethal Park mennta­skól­anum en hann hlaut 68 þús­und króna verð­laun fyrir fram­úr­skar­andi árangur í vís­indum og stærð­fræði, sam­kvæmt stað­bundum fjöl­miðli í Bethal Park.

Crooks vann í eld­húsi á hjúkr­un­ar­heim­ili í stuttri akst­urs­fjar­lægð frá heim­ili sínu, að því er fram kemur í frétt BBC. Kjós­enda­skrár rík­is­ins sýna að hann var skráður repúblikani, sam­kvæmt banda­rískum fjöl­miðlum. Þá styrkti hann einnig sam­tökin ActBlu um 15 doll­ara árið 2021 en það er póli­tísk aðgerða­nefnd og fjár­öfl­un­ar­vett­vangur sem stofn­aður var til að þjóna vinstri sinn­uðum og félaga­sam­tökum Demókrata og stjórn­mála­mönnum.

Samkvæmt banda­rískum fjöl­miðlum var Crooks í stutt­erma­bol frá Demolition Ranch, YouTube rás sem er þekkt fyrir byssur sínar og nið­ur­rifs­efni. Rásin er með millj­ónir áskrif­enda sem sýna mynd­bönd af mis­mun­andi byssum og sprengi­bún­aði.

Lög­reglu­menn telja að vopnið ​​sem notað var til að skjóta á Donald Trump hafi verið keypt af faðir Crook, að því er Associated Press frétta­stofan greinir frá. Tveir ónafn­greindir lög­reglu­menn sögðu við AP að faðir Crooks hafi keypt vopn fyrir að minnsta kosti sex mán­uðum.

Daginn eftir skotárás­ina, sem sagt í dag, sögðu heim­ild­ar­menn lög­regl­unnar einnig CBS, sam­starfs­að­ila BBC í Banda­ríkj­unum, að grun­sam­legur tækja­bún­aður hefði fund­ist í bif­reið Crooks. Samkvæmt CBS var hinn grun­aði með búnað sem var fáan­legur í venju­legri verslun sem virt­ist geta komið bún­að­inum af stað. Sprengju­tæknir var kall­aður á vett­vang til að tryggja og rann­saka tækin.

Hvert var tilefnið?

Eftir að hafa stað­fest hver Crooks er, eru lög­regla og stofn­anir ríks­ins að rann­saka til­efni hans.

„Við höfum ekki til­greindar ástæður eins og er,“ sagði Kevin Rojek, full­trúi FBI í Pitts­burgh, sem fer með rann­sókn máls­ins, á kynn­ing­ar­fundi í gær­kvöldi.

Rann­sóknin á því sem átti sér stað gæti staðið yfir í marga mán­uði og rann­sak­endur munu vinna „sleitu­laust“ að því að greina hvers vegna Crooks var, sagði Rojek.

Í sam­tali við CNN sagði faðir Crooks, Matthew Crooks, að hann væri að reyna að átta sig á „hvað í fjand­anum er í gangi“ en myndi „bíða þangað til ég tala við lög­regl­una“ áður en hann tal­aði um son sinn. Lög­reglan lok­aði veg­inum að hús­inu þar sem Crooks bjó með for­eldrum sínum, að því er CBS News greinir frá. Nágranni sagði við CBS að lög­reglu­menn hafi flutt hana á brott um miðja nótt án við­vör­unar. Lög­reglan í Bethel Park sagði að sprengju­rann­sókn væri í gangi í kringum heim­ili Crooks.

Heim­ild­ar­menn lög­regl­unnar sögðu CBS að þeir teldu ákveðna skipu­lagn­ingu hafi verið gerð fyrir skotárás­ina. Hversu miklum tíma var varið í þá áætl­ana­gerð er hins vegar enn við­fangs­efni áfram­hald­andi rann­sóknar.

Lög­reglan telur að hann hafi verið einn að verki, en heldur áfram að rann­saka hvort hann hafi verið í fylgd ein­hvers á fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“