„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vildi aðeins borga þúsund krónur fyrir ferðina: „Þá reisir hann sig upp og bítur mig á barkann“

Vildi aðeins borga þúsund krónur fyrir ferðina: „Þá reisir hann sig upp og bítur mig á barkann“
Magnús var bit­inn af manni og líkti honum við Hannibal Lecter – Myndin er sam­sett

„Hann var eins og Hannibal Lecter þar sem hann beit í bark­ann á mér og hékk þannig,“ sagði Magnús Sig­urðs­son, leigu­bíl­stjóri, í sam­tali við DV mánu­dag­inn 3. jan­úar 2005 um far­þega sem hann sótti aðfara­nótt sunnu­dags.

Ástæða bits­ins var kostn­aður ferð­ar­innar að sögn Magnúsar en far­þeg­inn vildi aðeins borga 1000 krónur fyrir ferð­ina „Þau höfðu verið í fínu boði og litu vel út, hún var í síð­kjól og þetta var bara venju­leg ferð. Þegar við vorum komin á áfanga­stað við Háteigs­veg kom í ljós að ferðin kost­aði 1340 krónur. Hann réttir fram kortið og segir eins og fólk er byrjað að gera: Taktu þús­und­kall og málið er dautt. Ég gat ekki sætt mig við að hann ákvæði hvað ferðin ætti að kosta.“

„Mér leidd­ist þetta og sagði við hann að ég skyldi bara gefa þeim ferð­ina í nýárs­gjöf en ég gat ekki breytt gjald­skránni. Hann var til­bú­inn að vera með mikil læti út af 340 krónum. Ég straujaði kortið á end­anum og það gekk í gegn og þegar hann stígur út úr bílnum rífur hann með sér dót sem var á milli sæt­anna, penna, loft­mæli og svo­leiðis smá­dót. Ég opna hurð­ina og segi honum að láta ekki svona og þá greiðir hann mér svaka högg á kjammann. Ég sá bara stjörnur og varð dauð­hræddur. Fyrst reif hann gler­augun af og svo sló hann á kjammann,“ sagði Magnús og reyndi að bjarga sér eftir bestu getu og not­aði þyngd sína til að skella mann­inum niður og halda honum í göt­unni.

„Þegar hann lof­aði að hætta þess­ari vit­leysu sleppti ég honum og fæ þá annað högg á kjammann og sé stjörn­u­rnar aftur. Þá stökk ég aftur á hann og rétti kon­unni hans sím­ann til að hún gæti hringt í lög­regl­una. Ég hrópa á hjálp og þá reisir hann sig upp og bítur mig á bark­ann.“

„Mér datt líka í hug að hann væri eins og Mike Tyson þegar hann beit eyrað af Holyfi­eld. Hann hangir þarna í háls­inum á mér og ég reyni að rífa mig frá honum og vona að hann taki ekki stykki með sér. Þá heyri ég að lög­reglan er að koma og sleppi honum,“ sagði Magnús um hvernig árásin end­aði.

„Þetta var fólsku­legt hjá honum og eldsnöggt en ég vor­kenni stráknum að hafa látið svona. Ég hélt að þetta væri skikk­an­legt fólk og að það væri hægt að tala við það. Ég hélt af reynsl­unni að ég væri nokkuð mann­glöggur, það hefur dugað hingað til,“ sagði Magnús að lokum en hann sagði einnig frá því að hann væri ýmsu vanur sem leigu­bíl­stjóri og það væri voða­legt hvernig sumt fólk hegð­aði sér gagn­vart leigu­bíl­stjórum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður