„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fötluð samfélagsmiðlastjarna mætir gríðarlegu hatri í athugasemdum:„Þú ættir bara að drekkja honum“

Fötluð samfélagsmiðlastjarna mætir gríðarlegu hatri í athugasemdum:„Þú ættir bara að drekkja honum“
Shane og Hannah, eig­in­kona hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rit­höf­und­ur­inn og sam­fé­lags­miðla­stjarnan Shane Burcaw skrif­aði hjart­næma færslu á Facebook á dög­unum en þar tal­aði hann um and­styggi­legar athuga­semdir sem skrif­aðar voru við mynd­band sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum en mynd­bandið sló ræki­lega í gegn.

Shane er bund­inn við hjóla­stól en mynd­bönd sem hann og eig­in­kona hans, Hannah birta á sam­fé­lags­miðl­unum vekja gjarnan athygli fyrir húmor en þau birta einnig mynd­bönd þar sem þau ræða um fatl­anir og hjálpa áhorf­endum að skilja betur heim fatl­aðra. Fyrir ólymp­íu­leik­ana í París í ágúst, tóku þau þátt í vin­sælu „trendi“ eins og það kall­ast á ensku, þar sem fólk birti mynd­skeið af sér þar sem sjá mátti hversu arfa­slakir íþrótta­menn það væri og við mynd­skeiðin var yfir­leitt ritað eitt­hvað á borð við „ég náði því miður ekki ólymp­íu­lág­mark­inu“. Shane og Hannah birtu mynd­skeið þar sem Hannah kemur Shane var­lega ofan í sund­laug en við mynd­skeiðið skrif­aði Shane: „Því miður komst ég ekki í dýf­ing­ar­liðið fyrir Ólymp­íu­leik­ana 2024“.

„Hæ allir, Shane hér. Þetta er sárs­auka­fullt að skrifa, en verður að vera gert. Mynd­skeið frá okkur hefur nú slegið ræki­lega í gegn, sem ætti að vera ástæða til þess að gleðj­ast. Þess í stað neyðir þetta mig til þess að horfast í augu við þá sárs­auka­fullu stað­reynd að bók­staf­lega hund­ruðir þús­unda mann­eskja hata mig og telja mig til­gangs­lausan vegna fötl­unar minnar.“ Þannig hefst færsla Shane en því næst útskýrir hann málið:

„Ég skal útskýra … Mynd­skeiðið er nokkuð ein­falt: Það er æði í gangi þar sem fólk birtir fyndin mynd­skeið þar sem þau sjást mis­takast hrap­ar­lega í íþróttum, með kald­hæðnum texta þar sem fólk „til­kynnir“ að það hafi ekki náð Ólymp­íu­lág­mark­inu þetta árið. Þar sem við höfum gaman af því að gera grín að okkur sjálfum, pass­aði þetta æði full­kom­lega við okkur, þannig að við tókum þátt í æðinu og birtum mynd­skeið af mér „dýfa“ mér í sund­laug, nema að dýf­ingin mín var aug­ljós­lega bara Hannah að leggja mig var­lega ofan í vatnið. Textinn minn til­kynnti  að ég hefði „því miður ekki kom­ist í dýf­ing­ar­liðið fyrir Ólymp­íu­leik­ana 2024“. Í besta falli kjána­legt, nokkuð heimsku­legt í versta falli, en pass­aði æðinu full­kom­lega.“

Mynd­bandið sló ræki­lega í gegn eins og áður segir en nærri því 20 millj­ónir hafa skoðað það. „Í augna­blik­inu, hafa nærri því 20 millj­ónir horft á mynd­bandið. Í okkar starfi, er það frá­bær árangur. Ég ætti að vera him­in­lif­andi. Ég ætti að vera stoltur. Ég ætti að vera að fagna. En vitið þið hvað gerir það erfitt fyrir mig að finna þessar til­finn­ingar? Athuga­semd­irnar sem birt­ast í hrönnum við mynd­bandið. Leyfið mér að deila með ykkur sumu af þeim hrotta­lega fáfróðu og skelfi­lega hat­urs­fullu hlut­unum sem fólk fann sig knúið til að láta út úr sér við þetta létta og skemmti­lega mynd­band sem ég bjó til.“

Sagt er að grimmasta dýr ver­aldar sé mann­eskjan og athuga­semd­irnar sem Shane birtir næst í færsl­unni rennur sanna­lega stoðum undir þá stað­hæf­ingu.

„Í efstu athuga­semd­inni segir: „Það er alltaf mik­il­vægt að þvo græn­metið sitt“, en þar er átt við að ég sé græn­meti. Athuga­semdin er með yfir 97.000 „læks“. Það þýðir að næstum því hund­ruð þús­und raun­veru­legar mann­eskjur á þess­ari jörð, eru sam­mála þess­ari nið­ur­lægj­andi móðgun! Í næstu athuga­semd, sem er með 79.000 „læks“ segir: „Ég er enn að reyna að átta mig á því að þau séu í sam­bandi“. 10.000 „læks“: „Einn dag­inn mun hún ekki draga hann aftur upp úr“. Og önnur athuga­semd: „Að deita hann er eins og að vinna góð­gerð­ar­starf“. „Þú ættir bara að drekkja honum“. Það eru þús­undir ann­arra athuga­semda í þessa átt­ina. Þúsundir.“Shane seg­ist vera þreyttur á að eyða ævinni í að reyna að fá heim­inn til að sam­þykkja sig.„Ég er þreyttur, krakkar. Þreyttur á að eyða öllu lífi mínu í að reyna að fá heim­inn til að sam­þykkja mig. Þreyttur á að helga feril minn því að fræða fólk um hina sönnu upp­lifun fatl­aðra, aðeins til að vera minntur á það – DAGLEGA, af hund­ruðum þús­unda manna – að ég er enn almennt álit­inn „græn­meti“ sem að þeirra mati ætti frekar að vera dauður. Þreyttur á að vera nið­ur­lægður og vísað frá. Mikið magn þess­ara skelfi­legu athuga­semda er yfir­þyrm­andi, svo vin­sam­leg­ast, ég bið þig, ekki segja mér að hunsa þau ein­fald­lega. Þetta er raun­veru­legt, raun­veru­legt fólk, með fjöl­skyldur og störf, með áhrif og atkvæði, sem er úti í heim­inum á hverjum degi og geymir þessar algjör­lega ógeðs­legu hug­myndir um fatlað fólk. Það er sjúk­legt.“

Og Shane heldur áfram:

„Það eru augna­blik eins og þessi þegar ég vil bara kasta inn hand­klæð­inu. Ég og Hannah höfum gefið heim­inum þús­undir klukku­stunda af ekta og per­sónu­legu efni um líf okkar. Við höfum unnið af ástríðu og sleitu­laust að því að sýna fólki að fatlað líf er jafn gilt, verð­ugt, þrosk­andi og gleði­legt og hvert annað, en samt fyllir hatur öll athuga­semda­kerfi sem við mynd­böndin sem við búum til.“

Að lokum seg­ist Shane ekki ætla að gef­ast upp.

„Ég mun þó ekki gef­ast upp. Þetta er of mik­il­vægt fyrir mig og það er of mikið í húfi. Þangað til fatlað fólk er tekið af heim­inum okkar sem jafn­ingjar, mun ég vera hér, deila fötl­uðu lífi mínu sem ég hef svo gaman af og þykir vænt um og vona (kannski gegn skyn­semi) að það breyti ein­hverju.
Ég trúi því að fólk geti skipt um skoðun. Ég trúi því að fólk geti vaxið.
Ef þú trúir því líka og ef þú trúir því að það sé eng­inn staður í þessum heimi fyrir það hatur sem við fáum, þá myndi það skipta mig öllu máli ef þú myndir deila þess­ari færslu. Berjumst gegn hatri með ást. Þakka þér af öllu mínu hjarta fyrir allan stuðn­ing­inn sem þú gefur okkur. Þú heldur mér svo sann­ar­lega gang­andi þegar ég stend frammi fyrir því sem lítur út eins og yfir­þyrm­andi skrímsli.
Ást­ar­kveðjur, Shane“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hatursorðræða

Páll Vilhjálmsson ákærður: „Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi“
InnlentHatursorðræða

Páll Vil­hjálms­son ákærður: „Börn eru gerð mót­tæki­leg fyrir þátt­töku í kyn­lífi“

„Vin­gjarn­legur lög­reglu­maður bank­aði upp á hjá til­fallandi á mið­viku­dag. Erindið var að afhenda ákæru frá lög­reglu­stjór­anum í Reykja­vík. Til­fallandi var kunn­gjört að ef hann mætti ekki í fyr­ir­kall á til­settum tíma í hér­aðs­dómi Reykja­vík yrði hann hand­tek­inn og færður í járnum fyrir dóm.“ Þannig hefst ný blogg­færsla fram­halds­skóla­kenn­ar­ans Páls Vil­hjálms­sonar en hann talar um sig í þriðju per­sónu af ein­hverri...
Hjóla í formann Fjölskylduhjálparinnar: „Eins og skoðanir rasistans séu bláköld staðreynd“
InnlentHatursorðræða

Hjóla í for­mann Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar: „Eins og skoð­anir ras­ist­ans séu bláköld stað­reynd“

Bragi Páll Sig­urð­ar­son hjólar í Ásgerði Jónu Flosa­dóttur, for­mann Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands og blaða­mann Vísis vegna fréttar þar sem Ásgerður seg­ist vera með sér­daga fyrir Íslend­inga þegar hún útdeilir mat­ar­gjöfum, vegna hót­ana og yfir­gangs erlendra aðila. Lögmaður tekur undir orð rit­höf­und­ar­ins. Rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll Sig­urð­ar­son lætur for­mann Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands og Vísi heyra það í nýrri Facebook-færslu sem hann skrif­aði við frétt...
Menntaskólakennari kallaði Bashar „illa skeindann Palestínuaraba“
InnlentHatursorðræða

Mennta­skóla­kenn­ari kall­aði Bashar „illa skeind­ann Palest­ínu­araba“

Ummæli fram­halds­skóla­kenn­ar­ans Helga Helgason, vegna Söngvakeppni sjón­var­spins, hefur valdið mik­illi reiði meðal fólks á sam­fé­lags­miðl­unum en þar kallar hann Bashar Murad „grenj­andi og illa skeind­ann Palest­ínu­araba.“ Helgi Helgason, kenn­ari við Mennta­skól­ann að Laug­ar­vatni og fyrr­ver­andi for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar, skrif­aði færslu á Facebookhóp fylk­ing­ar­innar á laug­ar­dag­inn, þar sem hann hlekkjar við frétt mbl.is þar sem upp­lýst er um að fram­kvæmd­ar­stjóri Söngvakeppn­innar...
Solaris fordæmir orðræðu Bjarna Ben: „Getur haft alvarlegar afleiðingar“
Innlent

Solaris for­dæmir orð­ræðu Bjarna Ben: „Getur haft alvar­legar afleið­ingar“

Solaris-hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, for­dæmir orð­ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar um Palest­ínu­fólk á Íslandi og mót­mæli þeirra við Aust­ur­völl. Hjálp­ar­sam­tökin Solaris sendi frá sér yfir­lýs­ingu rétt í þessu þar sem orð­ræða utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Bjarna Bene­dikts­sonar er for­dæmd. Eins og fjallað hefur verið um áður, skrif­aði utan­rík­is­ráð­herr­ann færslu á Facebook um helg­ina sem féll væg­ast sagt í grýtt­ann jarð­veg hjá...
Hatursorðræða þrífst undir frétt vegna kvennaverkfallsins: „Hættið þessu vók kvára kjaftæði“
InnlentHatursorðræða

Hat­urs­orð­ræða þrífst undir frétt vegna kvenna­verk­falls­ins: „Hættið þessu vók kvára kjaftæði“

Undir frétt á fés­bók­ar­síðu mbl.is þrífst hat­urs­orð­ræða um þátt­töku kvára í kvenna­verk­fall­inu. Fjöl­margir hafa ritað athuga­semdir og opin­berað skoð­anir sínar. Fréttin sem um ræðir er vegna til­kynn­ingar sem sveit­ar­fé­lagið Árborg gaf út um að konum væri bann­aður aðgangur í sund­laug­ina á Selfossi, á þriðju­dag­inn næst­kom­andi vegna kvenna­verk­falls­ins. Fjöl­margar konur hafa ákveðið að leggja nið­ur­störf og er lok­unin, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu sveit­ar­fé­lags­ins,...
Helga Vala segir hatrið vella ítrekað frá Davíð Oddssyni: „Stöndum saman – látum í okkur heyra“
InnlentHatursorðræða

Helga Vala segir hat­rið vella ítrekað frá Davíð Oddssyni: „Stöndum saman – látum í okkur heyra“

Helga Vala Helga­dóttir segir hat­rið vella ítrekað frá Davíð Oddssyni, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Í færslu sem Helga Vala, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar skrif­aði á Facebook í gær­kvöldi, setti hún hlekk við frétt mbl.is um yfir­lýs­ingu Kenn­ara­sam­bands Íslands en sam­bandið for­dæmir „hat­urs­orð­ræðu“ Helgu Daggar Sverr­is­dóttur grun­skóla­kenn­ara á Akureyri. Kenn­ar­inn hefur legið undir ámæli síðan Morg­un­blaðið birti aðsenda grein eftir hann þar sem Helga Dögg...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“