„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gallhörð kvennasveit ver Úkraínu fyrir rússneskum drónum: „Guð forði Rússum að koma aftur hingað!“

Gallhörð kvennasveit ver Úkraínu fyrir rússneskum drónum: „Guð forði Rússum að koma aftur hingað!“

Úkra­ínski bær­inn Bucha, sem varð sam­heiti rúss­neskra stríðs­glæpa eftir að her­námsliðið myrti hund­ruði óbreyttra borg­ara þar árið 2022, er nú heim­kynni ein­stakrar and­spyrnu. Bucha Volunteer Ter­ritor­ial Community Formation byrj­aði nýlega að ráða ein­göngu kven­menn í fær­an­legar skotsveitir, þekktar sem „norn­irnar“ og „val­kyrj­urnar“. Blaða­menn frá úkra­ínska fjöl­miðl­inum Ukra­inska Pravda ræddu við nokkrar af þessum „Bucha nornum“ um ákvörðun þeirra um að grípa til vopna og hvernig það er að verja him­in­inn í Úkraínu fyrir rúss­neskum drónum og flug­skeytum. Meduza fjall­aði um málið.

Olena „litla“

Olena, sem er upp­runa­lega frá Lviv, flutti til Kænu­garðs árið 2023 og hóf störf sem heim­il­is­læknir á heilsu­gæslu­stöð í Bucha. Í júní 2024, þegar hún ók til baka frá því að halda upp á 26 ára afmælið sitt í Odesa með vin­konu sinni Anhelinu, rakst hún á Instagram færslu þar sem óskað var eftir sjálf­boða­liðum fyrir Bucha Ter­ritor­ial Community Formation. Bæði hún og Anhelina ákváðu að skrá sig í fær­an­legu skotsveit­ina „Nornir“.

Olena hafði lengi langað til að ganga til liðs við varn­ar­liðið en átti erfitt með að sinna krefj­andi starf sitt samlhliða her­þjón­ustu. Fjöl­skylda hennar á djúpar hern­að­ar­rætur: langafi hennar starf­aði í Samtökum úkra­ínskra þjóð­ern­is­sinna og langamma hennar var tengiliður þeirra. Guðfaðir hennar byrj­aði að fara með hana á skot­svæði þegar hún var aðeins fimm ára. „Í æfinga­mið­stöð­inni leyfðu þeir mér að skjóta Browning [vél­byssu]. Ég hitti 11 skot­mörk með 25 skotum. Mikil nákvæmni, lítil skot­vopna­notkun, svo her­for­ing­inn sagði: „Þú verður vél­byssu­maður!“, rifjar hún upp.

„Markmið mitt er að halda fólki öruggu og leyfa því að sofa rólega. Draumur minn er að stríð­inu ljúki og að allir snúi aftur frá víg­stöðv­unum og úr haldi,“ segir Olena.

Valentyna „Valkyrja“

Val­entyna, dýra­læknir að mennt, lenti í miðju her­námi Rússa í Kyiv-hér­aði í febr­úar 2022. Hún varð vitni að sprengju­árásinni á Hostomel-flug­völl­inn og skotárás­ina á Irpin og Bucha. Eftir þrjár vikur tókst henni að flýja ásamt sjö öðrum, sem allir þröngv­uðu sig í einn bíl.

Fyrir tveimur mán­uðum gekk Val­entyna í hóp­inn „Bucha Val­kyrj­urnar“. Á æfingum hafði hún mestar áhyggjur af lík­am­legum áskor­unum og hafði áhyggjur af því að hún myndi ekki geta klárað hindr­un­ar­braut­ina. Að lokum kláraði hún hana tvisvar.

„Stað­ur­inn minn er hér. Þetta stríð mun ekki enda án okkar,“ segir Val­entyna með sann­fær­ingu. „Það er kom­inn tími til að hætta að sitja heima í eld­hús­inu. Við getum gripið til vopna og varið landið okkar, sam­fé­lag okkar. Menn­irnir fara fremst og við komum í stað­inn. Og við sjáum að við erum vel færar.“

Anhelina „Fast & Furious“

Anhelina fékk kall­merkið sitt vegna þess hversu hratt hún ekur – einu sinni, þegar hún fór með kollega á skot­svæðið, grín­að­ist hann með að hann hefði misst nokkur kíló í ferð­inni.

Anhelina er upp­runa­lega frá Lutsk og starf­aði sem svæf­inga­læknir í Bucha. Meðan á rúss­nesku her­nám­inu stóð, sá hún um marga særða borg­ara á skurð­stofu sinni, þar á meðal börn. Þegar „grænn gangur“ [Flótta­leið, inn­skot blaða­manns] var opn­aður flúði hún ásamt sjúk­lingum sínum.

Í sjálf­boða­liða­varna­deild­inni ekur hún pall­bíl sem hún kallar „Kúst­skaft“. Upp­haf­lega fannst Anhelinu nýja hlut­verk sitt krefj­andi, þar sem hún hafði enga fyrri hern­að­ar­reynslu.

Félagi hennar bauð sig fram fyrir úkra­ínska fót­göngu­liðið í upp­hafi rúss­nesku inn­rás­ar­innar. „Hann hefur miklar áhyggjur en hann styður mig. Hann sendir mér skila­boð: „Farðu var­lega þarna úti. Þegar þú kemur aftur eftir að við­vör­un­ar­bjöllur klingja, vertu viss um að láta mig vita að þú sért í lagi.“ Hann reyndi aldrei að hindra mig [frá því að þjóna]. Hann veit að við erum bæði að leggja okkar af mörkum til sama mál­staðar,“ segir Anhelina. „Í hvert skipti sem við skjótum niður Shahed-sprengju­dróna veitir það mér gleði og hvetur mig áfram því þessi dróni mun ekki lenda á heim­ili ein­hvers.

Yulia „Skopparakringla“

Yulia vann áður á snyrti­stofu í Kænu­garði. Á fjórða degi inn­rásar Rússa flúði hún til Póllands með barnið sitt. Þremur mán­uðum síðar sneri hún hins vegar aftur. „Mig lang­aði virki­lega að koma heim. Nú get ég ekki einu sinni útskýrt fyrir sjálfum mér hvers vegna ég fór til að byrja með. Þetta var sjálf­sprott­inn ákvörðun, lík­lega knúin áfram af til­finn­ingum. „Ég vildi vernda geð­heilsu barns­ins míns, en sál­fræði­lega var það miklu verra þar en heima,“ segir hún.

Þegar hún kom aftur setti Yulia á sig eyrna­lokka í lag­inu eins og hin fræga Mriya („draum“) flug­vél sem rúss­neski her­inn eyði­lagði í upp­hafi inn­rás­ar­innar og gekk til liðs við Bucha sjálf­boða­liða­sveit­ina. Hún stýrir nú „Val­kyrj­urnar“, fær­an­lega skotsveit­inni og sér um með­ferð skot­færa.

„Ég er alltaf á ferð­inni og er að pæla í öllu. Þess vegna er kall­merkið mitt „Dzyga“ [úrka­ínska orðið fyrir skopp­ara­kringlu]. Þegar ég ákvað að vera með kom það fjöl­skyldu og vinum mínum ekki á óvart því þeir þekkja mig vel,“ sagði hún við blaða­menn.

Yulia við­ur­kennir að henni finn­ist borg­ara­legt líf meira krefj­andi, umkringd fólki sem finnur ekki fyrir áhrifum stríðs­ins. „Strák­arnir fara fram á víg­völl­inn og við verðum hér, verjum him­in­inn, börnin okkar og óbreytta borg­ara fyrir aftan okkur. Hvað gæti verið meira hvetj­andi en það?“ spyr hún orð­rétt.

Konurnar harðari en karlarnir

Í apríl 2024 stefndu margir karl­anna frá Bucha Volunteer Ter­ritor­ial Community Formation í fremstu víg­línu og skildu eftir um 70 stöður lausar.

Tvær af „norn­unum“ hafa einnig skrifað undir samn­inga við úkra­ínska her­inn. Önnur þeirra varð yfir­maður skotsveitar í árás­ar­her­fylki, en hin er að þjálfa sig í verða liðs­for­ingi og und­ir­býr sig fyrir að stjórna þremur áhöfnum eld­flauga­her­deildar.

„Ég sé að kon­urnar sem ganga til liðs við okkur eru stundum enn áhuga­sam­ari en karl­arnir,“ segir Andrii Verlatyi ofursti, 51 árs starfs­manna­stjóri Bucha-sam­tak­anna. „Margar þeirra voru mæður og í umönn­un­ar­störfum fyrir þetta, en svo komu þessir ræflar og eyðilögðu líf þeirra. Þeir vöktu kraft sem þeir hefðu betur mátt láta ósnort­inn. Guð forði Rússum að koma aftur hingað! Það myndi ekki enda vel fyrir þeim, því úkra­ínskar konur eru harð­ari en karlar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríðsátök

Zelensky til Aðalsteins: „Þú mátt segja mér frá því og ég skal svo ræða það við forsætisráðherrann“
InnlentStríðsátök

Zelensky til Aðal­steins: „Þú mátt segja mér frá því og ég skal svo ræða það við for­sæt­is­ráð­herr­ann“

Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seti seg­ist ekki vera búinn að ræða við Bjarna Bene­dikts­son um áfram­hald­andi við­skipti Íslands við Rúss­lands í gegnum Belarús. Úflutn­ings­bann til Rúss­lands er í gildi hér á landi vegna stríðs­ins í Úkraínu. Vand­ræða­leg upp­á­koma varð á sam­eig­ini­legum blaða­manna­fundi tengdum þingi Norð­ur­landa­ráðs í morgun þegar Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Heim­ild­inni spurði gátt­aðan Zelensky spurn­ingar sem kom sér illa fyrir...
Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Bandaríkin senda Netanyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“
HeimurStríðsátök

Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Banda­ríkin senda Net­anyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“

Dr. Mads Gilbert hvetur til þess að þjóðir heims þrýsti á að Banda­ríkin hætti að senda Ísraelum vopn. Í nýlegu mynd­skeiði sem norski lækn­ir­inn og mann­úð­ar­fröm­uð­ur­inn Dr. Mads Gilbert, birtir hann lista yfir þau vopn sem Banda­ríkin hefur sent Ísrael frá 7. októ­ber í fyrra og hvetur þjóðir heims til að þrýsta á Banda­ríkin að hætta að senda vopnin til...
Ísraelsher gerði árás á friðargæsluliða í Líbanon: „Þetta voru ekki mistök og ekki slys“
HeimurStríðsátök

Ísra­els­her gerði árás á frið­ar­gæslu­liða í Líbanon: „Þetta voru ekki mis­tök og ekki slys“

Ísra­els­her særði tvo ítalska frið­ar­gæslu­liða í árás á bæki­stöð þeirra í Suður-Líbanon í gær. Kína er meðal þeirra ríkja sem for­dæma árás­irnar. Ísra­elskar her­sveitir hafa beitt sér ólög­lega með því að skjóta á bæki­stöðvar sem frið­ar­gæslu­liðar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNIFIL) nota í Líbanon, að sögn ítalska varn­ar­mála­ráð­herr­ans Guido Crosetto, sem for­dæmdi árás­ina sem mögu­legan „stríðs­glæp“. „Þetta voru ekki mis­tök og ekki...
Persaflóaríki þrýsta á Bandaríkin að koma í veg fyrir árásir Ísrael á olíusvæði Írans
Heimur

Persaflóa­ríki þrýsta á Banda­ríkin að koma í veg fyrir árásir Ísrael á olíu­svæði Írans

Á meðan ríki við Persaflóa bíða við­bragða Ísraels við eld­flauga­árás Írans í síð­ustu viku, hafa þrír heim­ild­ar­menn sagt Reuters-frétta­stof­unni að Persaflóa­ríki séu að beita sér fyrir því að Banda­ríkin komi í veg fyrir að Ísraelar ráð­ist á olíu­svæði Írans vegna áhyggja af því að þeirra eigin olíu­verk­smiðjur gætu orðið fyrir árásum frá stuðn­ings­hópum Írans ef stríðið stig­magn­ast. Löndin, þar á...
Norskur læknir minnist tveggja sem létust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“
HeimurStríðsátök

Norskur læknir minn­ist tveggja sem lét­ust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“

Norski lækn­ir­inn Mads Gilbert er staddur í Suður-Líbanon þar sem hann starfar á sjúka­húsi og minn­ist sér­stak­lega tveggja sjúk­linga sem hann missti í gær, nú þegar ár er liðið frá því að þjóð­ar­morð Ísraela hófst á Gaza. Dr. Mads Gilbert hefur í fjöldi ára vakið athygli á hrylli­legri með­ferð ísra­el­skra stjórn­valda á Palest­ínu­mönnum en hann hefur starfað sem læknir á...
Illugi skýtur á Bjarna Benediktsson eftir nýjustu stríðglæpi Ísraela: „Sagðirðu árás?“
InnlentStríðsátök

Illugi skýtur á Bjarna Bene­dikts­son eftir nýj­ustu stríð­glæpi Ísraela: „Sagðirðu árás?“

Illugi Jök­uls­son skýtur fast á Bjarna Bene­dikts­son í nýrri Facebook-færslu um stríðs­glæpi Ísra­els­manna. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði stutta en firn­ar­sterka Facebook-færslu í morgun þar sem hann segir frá nýj­ustu morðum Ísra­els­hers í Líbanon og á Gaza en í gær voru 12 börn drepin í Khan Younis á Gaza. Skýtur hann svo fast á Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sem í byrjun nóv­em­ber...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“