„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólympíuhlaupari látinn eftir að fyrrum kærasti kveikti í honum: „Megi sál hennar hvíla í friði“

Ólympíuhlaupari látinn eftir að fyrrum kærasti kveikti í honum: „Megi sál hennar hvíla í friði“
blessuð sé minn­ing hennar Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ólymp­íu­hlaupar­inn Rebecca Cheptegei lést af sárum sínum eftir að fyrr­ver­andi kær­asti hennar kveikti í henni.

Hin 33 ára gamla Rebecca hafði verið á gjör­gæslu­deild síðan á sunnu­dag en hún hafði hlotið bruna­sár á 80 pró­sent af lík­ama sínum. Hin hrotta­lega árás átti sér stað í Kenýa skömmu eftir heim­komu hennar frá Ólymp­íu­leik­unum í París í sumar.

Fyrr­ver­andi kær­asti hennar, Dickson Ndiema er sagður hafa hellt bens­íni úr brúsa á Cheptegei og kveikt í henni eftir ósætti þeirra á milli. Nágrannar hjálp­uðu til við að slökkva eld­inn, sam­kvæmt fréttum í Kenýa, en bæði Cheptegei og Ndieman voru flutt á sjúkra­hús með mikla áverka.

„Því miður misstum við hana eftir að öll líf­færi hennar gáfu sig í gær­kvöldi,“ sagði for­stjóri sjúkra­húss­ins sem Recca var flutt á, Dr. Owen Menach.

Því var haldið fram að parið fyrr­ver­andi hafi verið að ríf­ast um landið sem hús Cheptegei er byggt á. Rebecca keypti jörð­ina sem stað­sett er nálægt landa­mærum heima­lands hennar, Úganda og byggði þar heim­ili sitt.

Í yfir­lýs­ingu frá frjáls­í­þrótta­sam­bandi Úganda á sam­fé­lags­miðlum segir: „Við erum mjög sorg­mædd að til­kynna lát íþrótta­kon­unnar okkar, Rebeccu Cheptegei, snemma í morgun sem varð fórn­ar­lamb hörmu­legs heim­il­is­of­beldis. Sem sam­band for­dæmum við slík verk og köllum eftir rétt­læti. Megi sál hennar hvíla í friði.“

Cheptegei hafði æft í Kenýa eftir að hún kom heim frá Ólymp­íu­leik­unum í París 2024. Hún var full­trúi Úganda í mara­þon­inu á fyrstu leikum sínum en náði ekki til verð­launa og end­aði í 44. sæti.

Lög­reglu­stjór­inn Jeremiah ole Kosiom sagði: „Parið heyrð­ist ríf­ast fyrir utan húsið þeirra. Á meðan á átökum stóð sást kærast­inn hella vökva yfir kon­una áður en hann brenndi hana. Hinn grun­aði varð einnig fyrir eld­inum og hlaut alvar­leg bruna­sár.“

Lög­reglan stað­festi einnig að fimm lítra bens­ín­brúsi, poki og svið­inn sími fannst á vett­vangi eftir atvikið.

Árásin á Cheptegi er aðeins nýjasta skelfi­lega atvikið þar sem lang­hlaup­ari frá Úganda kemur við sögu. Ólymp­íu­hlaupar­inn og hindr­un­ar­hlaupar­inn Benjamin Kiplagat fannst lát­inn í lok árs­ins 2023 með stungu­sár á lík­am­anum. Tveir menn eru grun­aðir um morðið en þeir neita sök.

Hann hafði verið full­trúi Úganda á þremur Ólymp­íu­leikum og fannst lát­inn í Kenýa. Í yfir­lýs­ingu frá World Athletics á þeim tíma sagði: „Við hjá World Athletics erum sjokkeruð og sorg­mædd að heyra af and­láti Benjamin Kiplagat. Við sendum vinum hans, fjöl­skyldu, liðs­fé­lögum og öðrum íþrótta­mönnum okkar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. Hugur okkar er hjá þeim öllum í þessu máli á þessum erf­iða tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“