„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ósamstæðir sokkar leystu áratuga gamalt mannshvarf: „Hann var myrtur á grimmilegan hátt“

Ósamstæðir sokkar leystu áratuga gamalt mannshvarf: „Hann var myrtur á grimmilegan hátt“
Alfred með syni sínum Gary Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fimmtíu og sex ára gam­alt mann­hvarfs­mál hefur nú verið leyst í Derby-skíri í Englandi.

Námu­verka­mað­ur­inn og dúfna­kapp­flugs­mað­ur­inn Alfred Swinscoe, 54 ára, týnd­ist í jan­úar 1967 eftir að hann hafði látið son sinn Gary fá pen­ing fyrir síð­ustu pönt­un­inni á Miner´s Arms Pub bar­inn í Pinxton í Derby-skíri. Alfred rétti syni sínum pen­ing­inn og skrapp á úti­kamar­inn. Hann kom aldrei aftur. Hann hvarf með húð og hári.

Þögn fjölskyldunnar

Ráðgátan um hvarfið var svo átak­an­legt að flestir í fjöl­skyld­unni neit­uðu að minn­ast á það.

Þegar Russell Lowbridge, barna­barn Alfreds ólst upp, vissi hann að hann mætti ekki ræða um afdrif afa síns, sem hvarf á köldu jan­ú­ar­kvöldi 1967.

Flestir töldu að hinn stolti námu­maður Derby-skíris, sem kall­aður var Sparrow, hefði stungið eig­in­konu sína af og sex börn þeirra en stuttu áður hafði hann farið frá henni.

Aðeins Gary, sonur Alfreds og frændi Russell, tal­aði um þann gamla en hann var sá síð­asti sem hafði séð hann á lífi. Hann neit­aði að trúa því að faðir sinn hefði látið sig hverfa frá fjöl­skyldu sinni og gaf von­ina aldrei upp á bát­inn, allt þar til hann lést árið 2012.

Ósamstæðu sokkarnir

Þegar Gary lést hélt Russell, 61 árs, sem var aðeins fjög­urra ára þegar Alfred hvarf, að hann myndi aldrei upp­götva sann­leik­ann um afa sinn. En þá skyndi­lega, þegar hann fletti sam­fé­lags­miðlum og rakst á lög­reglu­færslu um lík sem hafði verið grafið upp á akri bónda nokk­urs, þekkti hann sokk löngu horf­ins afa síns.

Sokk­arnir.

Upp­götv­unin þýddi að loks­ins hefði svarið við hinni ára­tuga­gömlu ráð­gátu var komið en Russell vissi að nú kæmu upp spurn­ingar sem hann sé ekki viss um að hann muni nokkru sinni geta fengið svör við.

Örlög Alfreds væru enn á huldu ef bónd­inn hefði ekki ákveðið að grafa skurð við hlið líks­ins og þannig fundið það fyrir ein­skæra til­viljun. Hann hafði hringt í lög­regl­una eftir að mennsk bein og karl­manns­föt komu upp með gaffli gröf­unnar. Áverkar á beina­grind­inni leiddu í ljós að Alfred hafði verið myrtur á ofbeld­is­fullan hátt.

Russell, sem býr í nokk­urra mílna fjar­lægð frá akrinum, hafði marg­sinnis keyrt fram­hjá honum á ævinni. Hann sagði: „Ég fylgd­ist ekk­ert sér­stak­lega með mál­inu, en þegar lög­reglan birti mynd af ósam­stæðum sokkum fékk ég skyndi­lega end­ur­lit (e. flashback), sér­stak­lega hvað varð­aði svörtu sokk­ana. Ég mundi allt í einu eftir því að ég hafi, sem krakki, klætt mig í sokk af afa og togað þá upp þannig að þeir náðu mér upp að hné. Ég hringdi í lög­regl­una og þeir komu og tóku lífs­sýni úr mér. Þá komust þeir að því að þetta var sann­ar­lega Alfred. Ég varð stein­hissa og sjokker­aður. Í ljós kom að hann klædd­ist einmitt ósam­stæðu sokk­unum þetta kvöld. Það fyrsta sem ég hugs­aði var „Aumingja mað­ur­inn, nýfar­inn frá eig­in­kon­unni og á vondum stað, leigði her­bergi og ekki með fata­málin á hreinu“. En kannski klædd­ist hann tvennu sokkap­ari, þetta var um miðjan vetur.“

Sonurinn gafst aldrei upp

Russell sagði að hann hefði senni­lega ekki vitað neitt um afa sinn ef ekki væri fyrir Gary, hans nán­asta frænda, sem deildi með honum áhuga á dúfna­kapp­flugi, rétt eins og afi hans. „Mamma tal­aði aldrei um hann og ekki amma heldur. Það var bara Gary frændi. Ég held að það hafi verið eitt­hvað ósætti í fjöl­skyld­unni af því að hann hafði flutt að heima tæpu ári áður. Alfred gat orðið nokkuð æstur eftir nokkra bjóra og olli oft rifr­ildum. Restin af fjöl­skyld­unni hætti bara að hugsa um málið og héldu áfram með líf sitt. Gary hins vegar hætti aldrei að tala um hann en hann sagði sögur af honum og sagði oft „ég vildi að ég vissi hvar pabbi væri“. Hann sagði mér að hann hefði farið aftur til Pinxton og leitað í úti­húsum, yfir­gefnum bygg­ingum, skurðum og ofan í gömlum brunnum, hvar sem Alfred hefði getað dottið eða verið settur, og hann gaf aldrei upp von­ina. Hann hélt jafn­vel áfram að leita eftir að hann varð eldri, á meðan hann hafði styrk til þess. Hann hélt alltaf að eitt­hvað glæp­sam­legt hefði gerst. Hann var bara venju­legur og ein­faldur maður. Hann átti ekki vega­bréf, ekki bíl­próf og engan bíl. Hann hefði ekki getað hafið nýtt líf ein­hvers­staðar ann­ars staðar.“

Russell heldur áfram: „Gary skrif­aði Hjálp­ræð­is­hernum en þeir fundu aldrei neinar vís­bend­ingar um Alfred. Síðar á ævinni fékk hann lög­fræð­inga til að leita að dán­ar­vott­orði hans, en þeir fundu aldrei neitt heldur. Hann borg­aði meira að segja einka­spæj­ara en allt án árang­urs og hann fór með þetta allt á dán­ar­beð sitt. Þegar Gary lést hugs­aði ég strax: „Æ, hvað ger­ist nú? Við munum aldrei finna út hvað gerð­ist“. Þegar ég heyrði af lík­fund­inum vissi ég að ég þyrfti að hafa sam­band, jafn­vel þó að restin af fjöl­skyld­unni vildi það ekki. Ég varð að gera það fyrir Gary frænda.“

Janúarkvöldið 1967

Gary, sem var þrí­tugur þegar faðir hans hvarf, hélt áfram að hitta pabba sinn eftir að hann hafði farið frá konu sinni Caroline, sem hafði flutt nærri Sutton-inAs­hfi­eld með börnin og barna­börnin, þar á meðal Russell og móður hans Julie. Þeir voru vanir að hitt­ast á Miners´Arms barnum og fá sér að drekka.

Föstu­dags­kvöldið 27. jan­úar 1967, var launa­dagur hjá námu­verka­mönn­unum, að sögn Russell, sem segir: „Gary hafði farið út með félaga sínum um kvöldið og hitt afa á kránni. Hann man eftir því að pabbi hans gaf honum pen­ing fyrir síð­ustu umferð­inni af bjór og leit svo í kringum sig og sá hann fara út. Hann gerði ráð fyrir að hann væri að fara á útisal­ernið og kæmi strax aftur.

„Næsta morgun kom mað­ur­inn, sem hann hafði gist hjá, heim til okkar í Ashfield og leit­aði að honum, því hann hafði ekki komið heim um nótt­ina og það var dag­ur­inn sem hann þurfti að borga fyrir gist­ing­una. Hann hélt að hefði strokið í burtu til að losna við að borga.“

Hrottalegt morð

En allar kenn­ingar um að Alfred hefði látið sig hverfa af sjálf­stæðum hurfu þegar lík hans upp­götv­að­ist á akrinum.

Russell segir: „Hann var myrtur á grimmi­legan hátt. Hann var bar­inn í höf­uðið og það fund­ust stungu­á­verkar við kjálk­ann, þannig að það gæti hafa verið eftir skóflu eða hugs­an­lega hnífstungur eftir á. Þeir sögðu að hann hefði barist fyrir lífi sínu. Það voru merki um hand­leggs­brot, eins og að hann hafi gefið ein­hverjum gott hægri handar krók. Þeir fundu einnig áverka á rif­beinum hans og baki, eins og hann hefði glímt við ein­hvern sem hefði kýlt hann í rif­beinin. Lög­reglan telur að hann hefði verið skil­inn eftir í um viku áður en hann var graf­inn, vegna þess að það vant­aði nokkra fingur og rif­bein, sem bendir til þess að refir eða greif­ingjar hafi nartað í líkið. Hver sá sem drap hann sneri aftur til að koma í veg fyrir að hann fynd­ist.“

Skóg­ar­rjóðrið við akur­inn þar sem líkið fannst, var þekktur staður þar sem hommar hitt­ust í leyni á sjö­unda ára­tugnum, þegar sam­kyn­hneigð var ólög­leg.

„Var hann graf­inn þar af því að þeir vissu að eng­inn myndi þora að til­kynna eitt­hvað frá þessum stað? Eða komst afi að því að morð­ing­inn væri sam­kyn­hneigður og var hann myrtur svo hann segði ekki frá því?“ spyr Russell. „Lög­reglan telur einnig að morð­ing­inn hafi verið á bíl, af því að leiðin að akrinum var nokkuð löng og það voru ekki margir bílar á göt­unum á þessum tíma. Drápu þeir hann fyrst, eða plöt­uðu þeir hann til þess að þiggja far og stopp­uðu síðan og drápu hann?“

Tveir grunaðir

Mesta sjokkið við upp­götv­un­ina er sú stað­reynd að lög­reglan er með tvo menn grun­aða um verkn­að­inn en þeir eru báðir látnir og geta ekki verið nefndir á nafn en Russell er góður vinur barna­börn beggja mann­anna. „Þetta er fólk sem ég á í dag­legum sam­skiptum við. Þessar fregnir var algjört sjokk í raun,“ sagði Russell.

Einn hinna grun­uðu var þekktur ofbeld­is­maður og þjófur og var á Miners´Arms barnum kvöldið sem Alfred hvarf. Sumir áverk­anna sem fund­ust á lík­ama Alfreds voru svip­aðir þeim sem sá grun­aði hafði veitt manni sem hann var dæmdur fyrir að ráð­ast á í apríl 1966, að sögn lög­reglu.

Russell segir: „Frændi minn hafði þegar grunað einn þeirra. Hann hafði sjálfur sleg­ist við hann einu sinni eða tvisvar og hann hafði verið í hernum svo hann þekkti hern­að­ar­að­ferðir. Hann hélt alltaf að hann væri aðal grun­aður og ögraði honum jafn­vel margoft í gegnum árin vegna þeirra grun­semda. En ég er ekki sam­mála lög­regl­unni um hinn grun­aða mann­inn. Ég get ekki fengið mig til þess að trúa því að hann hafi líka verið þátt­tak­andi í morð­inu. „Lög­reglan rakti gögn og segir að ágrein­ingur þeirra hafi verið tengdur pen­ingum. Ég veit samt ekki hvers vegna, þar sem afi var í vel laun­uðu starfi.“

Loksins haldin jarðarför

Í jan­úar gat fjöl­skyldan loks­ins haldið jarða­för fyrir Alfred, ofan á Gary og við hlið dóttur sinnar Carol og eig­in­kon­unnar Caroline, sem aldrei gift­ist aftur, í Sutton-in-Ashfield-kirkju­garð­inum. Útförina var fram­kvæmd af Stephen Blakeley, sem lék PC Younger í sjón­varps­þátt­unum Heart­beat og starfar nú sem við­burða­stjóri.

Russell við gröf afa síns

„Það er nokkur huggun fyrir fjöl­skyld­una að vita að hann hafi ekki yfir­gefið hana og að hann sé ekki lengur týndur. En það er svo sorg­legt að greyið Gary frændi fékk aldrei að vita hvað kom fyrir hann,“ sagði Russell. Þó að ráð­gátan sem ásótt hefur fjöl­skyld­una í ára­tugi sé leyst, eru þó enn fjöl­mörgu ósvarað.

„Nú er það spurn­ingin um ástæð­una,“ segir Russell. „Af hverju gerði ein­hver honum þetta? Honum kom ekki illa saman við neinn. Hann var ekki ofbeld­is­maður, hann lenti ekki í slags­málum og hann var þekktur fyrir að vera gjaf­mildur. Ég bara skil ekki hvers vegna ein­hver hefði viljað drepa hann“. Og hann heldur áfram: „Ég trúi því að ein­hver, ein­hvers staðar, viti sann­leik­ann. Það gæti verið að sá sem gerði það hafi haldið þessu leyndu allt sitt líf og játað á dán­ar­beði sínu og að synir þeirra eða dætur viti eitt­hvað en vilji ekki segja. Ótti minn er að lög­reglan muni loka mál­inu og við munum aldrei kom­ast að því. Ég vona bara að ein­hver komi fram svo fjöl­skylda Alfreds geti loks­ins fundið frið.“

Enn fjölmörgum spurningum ósvarað

Rob Griffin, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, hjá lög­regl­unni í Nott­ing­ham-skíri, sagði í sam­tali við fjöl­miðla: „Alfred dó á hræði­leg­asta hátt sem hægt er að hugsa sér. Ekki nóg með að hann hafi orðið fyrir miklum áverkum heldur var hann síðan graf­inn á akri svo eng­inn fyndi hann.

„Það sem gerir þennan glæp enn erf­ið­ari er að það hefur tekið meira en 50 ár að finna lík­ams­leifar hans og fyrir fjöl­skylda hans að sam­ein­ast ást­vini sínum svo hann geti fengið almenni­lega greftrun. Auðvitað er þetta aðeins lít­ill léttir fyrir fjöl­skyldu hans þar sem enn er svo mörgum spurn­ingum ósvarað um hvað gerð­ist þessa nótt og hvers vegna.“

„Margir þeira sem höfðu verið með Alfred um nótt­ina, eða þekktu Alfred, eru ekki lengur á lífi og við fáum kannski aldrei heild­ar­mynd­ina af því sem gerð­ist í jan­úar 1967. Það hefur vissu­lega ekki breytt ákvörðun okkar um að rann­saka þennan glæp og láta engu ósnortið við að finna morð­ingj­ann eða morð­ingj­ana. Í rann­sókn okkar höfum við fundið tvo hugs­an­lega grun­aða menn sem hefðu undir venju­legum kring­um­stæðum verið hand­teknir og færðir til yfir­heyrslu ef Alfreð hefði verið myrtur í dag. „Við höfum ekki það tæki­færi þar sem þeir eru ekki lengur á lífi.“

Umfjöll­unin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lögreglurannsókn

Telja þrautþjálfaðan leigumorðingja hafa drepið framkvæmdarstjórann: „Þetta er fagmaður“
HeimurLögreglurannsókn

Telja þraut­þjálf­aðan leigu­morð­ingja hafa drepið fram­kvæmd­ar­stjór­ann: „Þetta er fag­maður“

Morðið á fram­kvæmd­ar­stjóra UnitedHealthCare trygg­inga­fé­lag­inu í New York í gær, ber ein­kenni „reynds, vand­aðs og þjálfaðs atvinnumorð­ingja“, að sögn fyrr­ver­andi full­trúa Alrík­is­lög­regl­unar (e. FBI). Terry Rankhorn sagði Kay Burley á Sky News Break­fast að upp­tökur af skotárásinni í New York-borg, sem lög­reglan lítur á sem skipu­lagða skotárás, hafi verið „hroll­vekj­andi“. Fram­kvæmda­stjóri UnitedHealthcare, Brian Thompson, 50, varð fyrir laun­sátri klukkan 6:45...
Búið að endurheimta hluta af Elko-þýfinu: „Við erum bara á fullu að yfirheyra og tengja saman fólk“
Innlent

Búið að end­ur­heimta hluta af Elko-þýf­inu: „Við erum bara á fullu að yfir­heyra og tengja saman fólk“

Lög­regl­unni hefur tek­ist að end­ur­heimta hluta af þeim verð­mætum sem stolið var úr tveimur Elko versl­unum í síð­ustu vikur. RÚV segir frá því að búið sé að ná hluta af þeim verð­mætum sem stolið var úr versl­unum Elko í Skeif­unni og á Dalvegi í síð­ustu viku en verð­mætum fyrir tugum millj­óna var stolið. Talið er að fleiri aðilar teng­ist mál­inu...
Hæstaréttarlögmaður vill láta rannsaka starfshætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra
InnlentLögreglurannsókn

Hæsta­rétt­ar­lög­maður vill láta rann­saka starfs­hætti lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra

Jakob R. Möller hæsta­rétt­ar­lög­maður segir síma­stuldar- og byrl­un­ar­mál skip­stjór­ans Páls Stein­gríms­sonar vera stórfurðu­legt og að rann­saka þurfi starfs­hætti lög­erglunnar á Norð­ur­landi eystra. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Jakob R. Möller hæsta­rétt­ar­lög­maður að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi áttað sig á því alltof seint „að hún væri í tómri vit­leysu með rann­sókn­ina“ í máli Páls Stein­gríms­sonar. Segir hann að útskýr­ingar lög­regl­un­anr...
Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um mansal á unglingsstúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð
Innlent

Íslend­ingur í gæslu­varð­haldi vegna gruns um man­sal á ung­lings­stúlkum: Önnur ólétt og hin HIV-smituð

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur haft íslenskan karl­mann í haldi í eina viku vegna gríð­ar­lega umfangs­mik­illar rann­sóknar sem snýr meðal ann­ars að man­sali og skipu­lögðu smygli á fólki. Samkvæmt RÚV er grunur um að fleiri teng­ist mál­inu. Sögðust vera dætur manns­ins Fram kemur í gæslu­varð­halds­úr­skurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur fyrir viku, að tvær ung­lings­stúlkur undir átján ára aldri, hafi komið til lands­ins með...
Nafn stúlkunnar sem fannst látin á sunnudagskvöld
InnlentLögreglurannsókn

Nafn stúlkunnar sem fannst látin á sunnu­dags­kvöld

Stúlkan sem fannst látin á sunnu­dags­kvöld hét Kolfinna Eldey Sig­urð­ar­dóttir. Kolfinna Eldey var 10 ára og var búsett í Reykja­vík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. Faðir hennar hringdi á lög­regl­una á sunnu­dags­kvöld og sagð­ist hafa banað dóttur sinni. Var hann þá staddur á Krýsur­vík­ur­vegi en þegar lög­reglan og sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra mætti á vett­vang fannst Kolfinna þar látin. Faðir...
Sá grunaði í Selfossmálinu lést í Taílandi – Engin ákæra gefin út
InnlentLögreglurannsókn

Sá grun­aði í Sel­foss­mál­inu lést í Taílandi – Engin ákæra gefin út

Maðurinn sem grun­aður er um að hafa banað Sofiu Sarmite Kol­senikovu á Selfossi í apríl í fyrra, lést í vik­unni. Rannsókn á and­láti Sofiu Sarmite Kol­senikovu verður lokið þó svo að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út á hendur manni á þrí­tugs­aldri, sem grun­aður var um að vera valdur að dauða hennar. Í sam­tali við Vísi stað­festir Karl...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“