Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir „ítarlegri rannsókn“ á drápi á bandarísk-tyrkneskri konu á hernumdu svæði Vesturbakkans í Palestínu en hún var skotin í höfuðið í mótmælum síðastliðinn föstudag.
Staðbundnir fjölmiðlar greindu frá því að Aysenur Ezgi Eygi, 26 ára, hafi verið skotin til bana af ísraelskum hermönnum þegar hún tók þátt í vikulegum mótmælum gegn stækkun landnemabyggða gyðinga í bænum Beita nálægt Nablus.
Ísraelski herinn segist vera að „skoða tilkynningar um að erlendur ríkisborgari hafi verið drepinn vegna skota á svæðinu“.
Fjölskylda Eygi sagði í yfirlýsingu að þau væru í áfalli og sorg yfir því að hinn ástríki og „gífurlega ástríðufulli mannréttindafrömuður“ væri farinn. Fjölskyldan sagði að myndband sýndi að hún hafi verið myrt af byssukúlu frá ísraelska hernum og kallaði eftir því að Bandaríkin rannsaki málið.
Bandarísk yfirvöld hafa hvatt Ísraela til að rannsaka atvikið. Sean Savett, talsmaður þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, sagði að yfirvöld í Washington væri „mjög óróleg yfir hörmulegum dauða bandarísks ríkisborgara“. Bætti hann við: „Við höfum leitað til ríkisstjórnar Ísraels til að biðja um frekari upplýsingar og óska eftir rannsókn á atvikinu“.
Í yfirlýsingu sagði fjölskylda Eygi að í ljósi aðstæðna væri ísraelsk rannsókn „ekki fullnægjandi“ og hvatti Bandaríkin til að framkvæma óháða rannsókn og „tryggja fulla ábyrgð fyrir hina seku aðila“.
Stéphane Dujarric, talsmaður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sagði: „Við myndum vilja sjá ítarlega rannsókn á aðstæðum og að fólk verði látið sæta ábyrgð.“ Bætti hann við að almennir borgarar „verði að vernda öllum stundum“.
Á myndefni frá vettvangi skömmu eftir skotárásina má sjá hvernig sjúkraliðar drífa Eygi inn í sjúkrabíl.
Ísraelski aðgerðarsinni Jonathan Pollak, sem var við mótmælin, sagði í þætti BBC, World Service Newshour að hann hefði séð „hermenn á þakinu miða“. Sagðist hann hafa heyrt tvö aðskilin skothljóð, „það liðu um sekúnda eða tvær á milli þeirra“. „Ég heyrði einhvern kalla nafnið mitt og segja á ensku: „Hjálpið okkur. Við þurfum hjálp. Við þurfum hjálp.“ Ég hljóp á móti þeim,“ sagði hann ennfremur. Hann sagðist þá hafa séð Eygi „liggjandi á jörðinni undir ólífutré, blæðandi til bana frá skotsári á höfði“. „Ég setti höndina fyrir aftan bak hennar til að reyna að stöðva blæðinguna,“ sagði hann. „Ég leit upp, það var skýr sjónlína á milli hermannanna og hvar við vorum. Ég tók púlsinn á henni og hann var mjög, mjög veikur.“
Hann bætti við að mótmælin á föstudaginn hefði það verið í fyrsta skipti sem Eygi var viðstödd mótmæl með Alþjóðlegu samstöðuhreyfingunni, sem er styður málstað Palestínu.
Eygi var flutt með hraði á spítala í Nablus en var síðar úrskurðuð látin.
Dr. Fouad Nafaa, yfirmaður Rafidia-sjúkrahússins þar sem Eygi var lögð inn, staðfesti að bandarískur ríkisborgari á miðjum þrítugsaldri hefði látist af völdum „byssuskots í höfuðið“.
Í yfirlýsingu frá ísraelska hernum segir: „Meðan ísraelska öryggissveitin var að störfum við nærri Beita-svæðinu, svöruðu sveitirnar með skoti í átt að aðalhvatamanni ofbeldisverka sem kastaði grjóti að sveitunum og ógnaði þeim. IDF er að skoða fregnir um að erlendur ríkisborgari hafi látist af völdum skota á svæðinu. Verið er að skoða atvikið og aðstæður þar sem hún varð fyrir skotinu“.
Í viðtalinu við BBC var Jonathan Pollak, spurður út í yfirlýsingu Ísraelshers um að öryggissveitir hefðu brugðist við grjótkasti. Sagði hann að til átaka hefði komið en honum fannst hermennirnir „ekki í neinni hættu“. Það hefði ekki verið „neitt grjótkast“ þar sem hún [Eygi – innskot blaðamanns] hafði verið, að hans sögn.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, harmaði hið „hörmulega missi“ en Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði aðgerðir Ísraelsmanna „villimannslegar“.
Fjölskylda Eygi segist vera að glíma við þann raunveruleika að hún sé dáin. „Eins og ólífutréð sem hún lá undir þar sem hún dró síðasta andann, var Aysenur sterk, falleg og umhyggjusöm. Nærvera hennar í lífi okkar var tekin að óþörf með ólögmætum og ofbeldisfullum hætti af ísraelska hernum,“ sagði fjölskyldan í yfirlýsingu.
Fjölskylda lýsti henni sem „ástríkri dóttur, systur, maka og frænku“ sem var „blíð, hugrökk, kjánaleg, trygg og algjör sólargeisli“ og „lifði lífi þar sem hún hlúði að þeim sem voru í neyð með aðgerðum“.
Eygi fæddist í Antalya, samkvæmt tyrkneskum miðlum. Hún útskrifaðist fyrir þremur mánuðum frá Háskóla Washington í Seattle, það sem hún lærði sálfræði og tungumál og menningu Mið-austurlanda, samkvæmt fjölskyldu hennar. Hún var virk í mótmælum háskólanema og fann sig knúna til að ferðast til Vesturbakkans til að „sýna samstöðu með óbreyttum palestínskum borgurum“.
Forseti Washington-háskólans, Ana Mari Cauce, lýsti fréttum af andláti Eygi sem „hræðilegum“ og bætti við að nemandinn fyrrverandi hefði haft „jákvæð áhrif“ á aðra nemendur skólans.
Ísraelskar hersveiti drógu sig út úr borginni Jenin og flóttamannabúðum hennar á hernumdum Vesturbakkanum á föstudag, eftir stóra aðgerð þar sem stóð yfir í níu daga.
Palestínska heilbrigðisráðuneytið segir að að minnsta kosti 36 Palestínumenn hafi verið drepnir, 21 frá Jenin-héraði á þeim tíma. Flestir hinna látnu hafa verið meðlimir vopnaðra hópa en ráðuneytið segir að börn séu einnig meðal þeirra sem drepin voru.
Á undanförnum 50 árum hefur Ísrael byggt landnemabyggðir á Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem, þar sem nú búa yfir 700.000 gyðingar. Landnemabyggðirnar eru taldar ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum, það er meðal annars afstaða öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og breskra stjórnvalda, þó Ísrael hafni því.
Hér má sjá umfjöllun The Guardian um málið:


























Athugasemdir