„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eftirlýstur morðingi handtekinn eftir að hafa farið yfir á rauðu – MYNDBAND

Eftirlýstur morðingi handtekinn eftir að hafa farið yfir á rauðu – MYNDBAND

Gamalt og óleyst morð­mál leyst­ist þegar maður fór yfir á rauðu ljósi í Palm Coast í Flórída í síð­ustu viku.

Hinn 43 ára gamli Timothy Hickerson var hand­tek­inn í Palm Coast í Flórída í síð­ustu viku eftir að full­trúar lög­reglu­stjór­ans í Flagler-sýslu (FCSO) sögð­ust hafa stöðvað hann fyrir akstur á rauðu ljósi. Meðan á stopp­inu stóð, upp­götv­uðu lög­reglu­menn­irnir að mað­ur­inn var eft­ir­lýstur í Virginíu vegna ann­ars stigs morðs og inn­brots.

Hann var sam­stundis settur í hand­járn og færður í Perry Hall-fang­elsið. Myndband sem lög­reglu­emb­ættið sendi frá sér sýnir augna­blikið sem hann var hand­járn­aður, en hann virð­ist hneyksl­aður þegar lög­reglu­menn­irnir segja honum að hann sé hand­tek­inn fyrir inn­brot.

Hickerson var eft­ir­lýstur fyrir morðið á Shane Donahue frá Nokes­ville í Virginíu sem framið var árið 2010.

Sá 23 ára gamli Shane sást síð­ast 22. mars 2010 og var hvarf hans til­kynnt af fjöl­skyldu hans tveimur dögum síðar. Hann fannst aldrei og málið kóln­aði. Rann­sak­endur í Virginíu end­ur­virkj­aðu rann­sókn­ina nýlega eftir að hafa fengið nýjar upp­lýs­ingar, sam­kvæmt FCSO.

WUSA 9 segir að málið hafi verið end­ur­upp­tekið vorið 2024, þar sem rann­sókn­ar­lög­reglu­menn end­ur­skoð­uðu sönn­un­ar­gögn og gömul við­töl með háþró­aðri tækni og lög­reglu­venjum.

En hverjar voru þessar nýju upp­lýs­ingar sem lög­reglan fékk í vor? Hickerson er sagður hafa verið með fórn­ar­lamb­inu kvöldið sem Donahue sást síð­ast yfir­gefa heim­ili for­eldra sinna, áður en þeir tveir sneru aftur á heim­ili fórn­ar­lambs­ins í nágrenn­inu. Hickerson er einnig sagður tengj­ast inn­broti á heim­ili Donahue dögum áður en hann hvarf. Hinn grun­aði var 28 ára þegar Donahue hvarf.

„Hvorki sást til Donahue né heyrð­ist aftur og telja yfir­völd í Virginíu að hann sé lát­inn. Lík­ams­leifar hans hafa ekki fund­ist,“ sagði FCSO.

Hickerson hefur að sögn búið í Palm Coast síðan 2022 og verður haldið án trygg­inga þar til hann verður fram­seldur aftur til Virginíu.

„Þetta sýnir að það er ekk­ert til sem heitir ein­falt umferð­ar­stopp. Þetta end­aði með því að rétt­lætið fann flótta­mann sem var eft­ir­lýstur var fyrir morð sem átti sér stað fyrir meira en 14 árum,“ sagði Rick Staly lög­reglu­stjóri í yfir­lýs­ingu. „Ef þú ert flótta­maður munum við ná þér, sama hvaðan þú flúðir, og stinga þér í fang­elsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“