„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Öxi og átta fórnarlömb – Vettvangurinn var blóði drifinn

Öxi og átta fórnarlömb – Vettvangurinn var blóði drifinn
Villisca-morðin

Aðfara­nótt mánu­dags­ins 10. júní, árið 1912, voru allir í fasta­svefni á heim­ili Josiah B. Moore og fjöl­skyldu hans í bænum Willisca í Iowa-fylki í Banda­ríkj­unum. Auk hjón­anna, Josiahs, sem var 43 ára, og Söruh, 39 ára, og fjög­urra barna þeirra; Hermans Montgomerys,11 ára, Mary Katherine, 10 ára, Arthurs Boyds, 7 ára, og Pauls Vernons, 5 ára, voru tvær stúlkur gest­kom­andi, Still­in­ger-syst­urnar Ina May, 8 ára, og Lena Gertrude, 12 ára.

Moore-fjöl­skyldan ágæt­lega efnuð, vel þekkt og vel liðin í sam­fé­lag­inu og kvöldið áður hafði verið haldin athöfn fyrir börn í kirkju í grennd við heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Eig­in­kona Josiah hafði skipu­lagt athöfn­ina og hafði öll fjöl­skyldan og Still­in­ger-syst­urnar verið við­stödd hana, en síðan gengið heim á leið að henni lok­inni klukkan 21.30.

Dauðaþögn í morgunsárið

Fer engum frá­sögnum af svefn­förum heim­il­is­fólks og gesta þess, en klukkan sjö, morg­un­inn eftir var barið á úti­dyra­hurð heim­ilis Moore-fjöl­skyld­unnar. Var þar kom­inn nágranni, Mary Peckham, sem tekið hafði eftir að eng­inn virt­ist kom­inn ofan á heim­il­inu.

Mary fékk engin við­brögð við banki sínu og reyndi að opna en dyrnar voru harð­læstar. Nú, Mary hleypti hænsnum Moore-fjöl­skyld­unnar út, en var með böggum hildar og sótti bróður Josiahs, Ross Moore, en hið sama var upp á ten­ingnum þegar hann knúði dyra; ekk­ert svar. Ross bjó svo vel að hafa í fórum sínum auka­lykil að úti­dyr­unum og sá þann kost vænstan að nýta hann.

Blóði drifinn vettvangur

Mary beið úti á ver­önd­inni en Ross gekk inn í for­stof­una og opn­aði dyrnar að gesta­her­berg­inu. Þar mætti honum ófögur sjón; lík Still­in­ger-systr­anna alblóðug á rúm­inu. Ross beið ekki boð­anna og sagði Mary að haska sér og sækja vörð laga og réttar á þeim slóðum, Henry „Hank“ Horton, sem kom skömmu síðar á vett­vang.

Könn­un­ar­leið­angur Henrys um húsið leiddi í ljós nöt­ur­legan sann­leika – í því var eng­inn á lífi. Öll höfðu verið höggvin eða barin til bana og fannst morð­vopnið, öxi löðr­andi í blóði, í gesta­her­berg­inu við lík Still­in­ger-systr­anna. Talið var að morðin hefðu verið framin ein­hvern tím­ann á milli mið­nættis og klukkan fimm um morg­un­inn.

Tveir vindlingastubbar

Virtist sem ódæð­is­mað­ur­inn, eða -menn­irnir, hefði haf­ist handa á efri hæð húss­ins, í hjóna­her­berg­inu. Það sem studdi þá ályktun voru tveir vind­linga­stubbar sem fund­ust á háa­lofti húss­ins – að morð­ing­inn hefði beðið þar í róleg­heitum eftir að heim­il­is­fólk sneri heim frá kirkju og tæki á sig náðir.

Josiah fékk sýnu verri útreið en önnur fórn­ar­lömb. Ekki aðeins hafði hann verið bar­inn oftar í höf­uðið, heldur hafði axar­blað­inu verið beitt á hann en sú var ekki raunin í til­felli eig­in­konu hans eða barn­anna sex. Augu Josiah höfðu hrokkið úr tóft­unum við bar­smíð­arnar og var hvergi að finna í blóð­ugri káss­unni, sem and­lit hans var.

Frétt um hin óhugn­an­legu morð sem framin voru á heim­ili Moore-hjón­anna.

Varnarsár á handlegg Lenu

Síðan hafði morð­ing­inn snúið sér að börnum hjón­anna og hlutu þau sömu útreið og for­eldr­arnir. Að því loknu fór morð­ing­inn aftur inn til hjón­anna og bætti ein­hverra hluta um betur. Var atgang­ur­inn svo mik­ill að einn skór hafði fyllst af blóði og síðan oltið á hlið­ina.

Þá lá leið morð­ingj­ans niður á neðri hæð húss­ins og inn í gesta­her­bergið til Inu og Lenu.

Af verksum­merkjum þar að dæma var ályktað að Lena hefði verið vak­andi þegar þar var komið sögu. Á hand­leggjum hennar fund­ust áverkar sem benti til þess að hún hefði varist ódæð­is­mann­inum og einnig lá hún þversum í rúm­inu, nátt­slopp­ur­inn hafði verið dreg­inn upp að mitti og hún nær­klæða­laus.

Margir lágu undir grun

Ekkert var fast í hendi hvað mögu­legan morð­ingja áhrærði og voru þó nokkuð margir karlar nefndir til sög­unnar í því til­liti. Þeirra á meðal var prestur að nafni George Kelly. Hann þótti svo álit­legur að hann var kærður og réttað yfir honum í tvígang. Í fyrra skiptið komst kvið­dómur ekki að nið­ur­stöðu og í hið síð­ara féll sýknu­dómur.

Annar var Henry Lee Moore, sem þrátt fyrir ætt­ar­nafnið var ekki skyldur Josiah B. Moore.

Henry Lee var síðan úti­lok­aður sem mögu­legur morð­ingi í mál­inu. Hvort það var skyn­sam­leg ákvörðun eða ekki skal látið liggja á milli hluta, en þetta sama ár framdi hann tvö morð sem þóttu í mörgu líkj­ast morð­unum á heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Þau morð framdi hann í des­em­ber árið 1912 er hann gekk af móður sinni og ömmu dauðum og not­aði til þess öxi.

En það er önnur saga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sakamálið

Sundurlimuð líkin lágu eins og hráviði um kjallaragólfið
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Sund­ur­limuð líkin lágu eins og hrá­viði um kjall­ara­gólfið

Árið 1940 mar­ser­uðu nas­istar inn í París og lækn­ir­inn Marcel Petiot sá sér leik á borði og ákvað að koma sér upp smá hlið­ar­grein sem myndi hvort tveggja í senn færa honum auð og full­nægja kvala­lost­anum. Gestapo, leynilög­regla Þriðja rík­is­ins, hafði sömu áhrif í París og ann­ars staðar og borgin varð ótt­anum að bráð. Gyðingar hurfu í útrým­ing­ar­búðir og gasklefa,...
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Illvirki um miðja nótt – Heim­il­is­fólk bundið og rænt á Kambi í Flóa

Aðfara­nótt hins 9. febr­úar, 1827, svaf heim­il­is­fólk á bænum Kambi í Flóa svefni hinna rétt­látu og uggði ekki að sér. Þrátt fyrir að úti fyrir geis­aði stormur mik­ill ríkti friður innan veggja heim­il­is­ins. Næt­ur­frið­ur­inn var rof­inn þegar fjórir menn, ill­þekkj­an­legir, brut­ust þar inn. Heim­il­is­fólk var bundið á höndum og fótum, þar sem það lá nakið í rekkjum sínum. Fjór­menn­ing­arnir fóru...
Blóðbað í barnaherberginu – Stakk fjögur börn sín til bana
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Blóðbað í barna­her­berg­inu – Stakk fjögur börn sín til bana

„Kennari að nafni Wagner bil­að­ist fyr­ir­vara­laust á geði í Mühlhausen í gær. Brjál­æð­ing­ur­inn byrj­aði á að stinga eig­in­konu sína og fjögur börn til bana, síðan fór hann, vopn­aður skamm­byssu, í hjarta bæj­ar­ins þar sem hann bar eld að nokkrum húsum.“ Þannig hefst frétt í The New Zealand Herald, 8. sept­em­ber árið 1913. Umræddur maður hét Ernst August Wagner. Hann fædd­ist...
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Dul­ar­fullur dauð­dagi á Bessa­stöðum – Heitkona amt­manns mögu­lega myrt

Rétt fyrir Jóns­messu, árið 1724, and­að­ist erlend stúlka, Appollónía Schwartzkopf, á Bessa­stöðum, aðsetri amt­manns­ins Níelsar Fuhrmanns. Appollónía var heit­kona amt­manns­ins en hann hugð­ist ekki efna heit sitt. Appollónía hafði undir sitt síð­asta sakað ráðs­konu amt­manns og dóttur hennar, lags­konu hans, um að brugga henni laun­ráð. Maður að nafni Níels Fuhrmann var sendur hingað til lands árið 1718, hafði þá verið...
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Eit­ur­byrlun í Dúkskoti – „Glitti í spýj­una í myrkri sem á maur­ildi sæi“

Þann 13. nóv­em­ber, 1913, lést karl­maður á Landa­kots­spít­ala. Fannst lög­reglu og læknum sitt­hvað grun­sam­legt við and­lát manns­ins. Að krufn­ingu lok­inni og í ljósi nið­ur­stöðu hennar, sá lög­regla sér ekki fært annað en að taka málið til rann­sóknar. Banamein manns­ins var fos­fóreitrun. Í Morg­un­blað­inu 17. nóv­em­ber sama ár var haft á orði að voða­at­burður hefði átt sér stað „sem eigi á...
Fólskuverk á Flögu – Vanfær kona myrt um miðja nótt í Vatnsdal
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Fólsku­verk á Flögu – Vanfær kona myrt um miðja nótt í Vatnsdal

Á bænum Kornsá, í Vatnsdal í Austur-Húna­vatns­sýslu, bjuggu árið 1766 hjónin Jón Þór­ar­ins­son og Gróa Jóns­dóttir og áttu þau tvo syni. Á bænum var vinnu­kona að nafni Helga Sím­on­ar­dóttir og þegar eft­ir­far­andi atburðir áttu sér stað, í júní, 1766, var Helga, þá hálf­fertug, van­fær eftir eldri son hjón­anna, Jón yngri, sem þá var tví­tugur. Þannig var mál með vexti að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“