„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kris Kristofferson er látinn: „Þakka ykkur fyrir að elska hann í öll þessi ár“

Kris Kristofferson er látinn: „Þakka ykkur fyrir að elska hann í öll þessi ár“
Blessuð sé minn­ing meist­ar­ans.

Kris Kristoffer­son, sem náði vel­gengni sem bæði bylt­ing­ar­kenndur sveita­söngv­ari og kvik­mynda- og sjón­varps­stjarna í Hollywood, lést í gær, laug­ar­dag­inn 28. sept­em­ber, á heim­ili sínu í Maui á Hawaii. Engin dán­ar­or­sök hefur verið gefin upp en hann er sagður hafa lát­ist frið­sam­lega umkringdur fjöl­skyldu. Hann var 88 ára gam­all.

Fjöl­skylda hans sagði í yfir­lýs­ingu: „Það er með sorg í hjarta sem við deilum frétt­unum að eig­in­maður okkar/faðir/afi, Kris Kristoffer­son, lést á frið­sælan hátt laug­ar­dag­inn 28. sept­em­ber á heim­ili sínu. Við erum öll svo þakk­lát fyrir tíma okkar með honum. Þakka ykkur fyrir að elska hann í öll þessi ár, og þegar þið sjáið regn­boga, vitið þið að hann brosir niður til okkar allra.“ Yfir­lýs­ingin var birt fyrir hönd eig­in­konu Kristoffer­son, Lisu og hans átta barna, Tracy, Kris Jr., Casey, Jesse, Jody, John, Kelly og Blake; og barna­barna hans sjö.

Kyle Young, for­stjóri Country Music Hall of Fame and Museum, sagði: „Kris Kristoffer­son trúði því inni­lega að sköp­un­ar­kraft­ur­inn væri Guði gef­inn og að þeir sem hunsa eða afvega slíka heilaga gjöf séu dæmdir til að mis­takast og til óham­ingju. Hann pré­dik­aði að hug­ar­lífið gefur sál­inni rödd og síðan skap­aði hann verk sem gaf rödd ekki aðeins sálu hans heldur okkar líka. Meðal þeirra Kris leit upp til voru verð­launa­box­ar­inn Muhammad Ali, stór­skáldið William Blake og „Hill­billy Shakespe­are,“ Hank Williams. Hann lifði lífi sínu á þann hátt sem heiðr­aði og sýndi gildi hvers og eins þess­ara manna, og hann skilur eftir sig rétt­láta, hug­rakka og eft­ir­tekt­ar­sama arf­leifð sem rímar við þeirra.“

Kristoffer­son hafði þegar eytt nokkrum hóf­lega far­sælum árum í söngverkum Music City þegar hann sló í gegn sem höf­undur Country-smella á borð við „For the Good Times“ (Ray Price, 1970), „Sunday Morning Coming Down“ ( Johnny Cash, 1970) og „Help Me Make It Through the Night“ (Sammi Smith, 1971). Lag hans „Me and Bobby McGee“ náði efst á vin­sæld­ar­lista með fyrrum elsk­huga hans, Janis Joplin árið 1971, eftir ótíma­bært and­lát hennar.

Þá þótti Kris frá­bær leik­ari en hann lék í kvik­myndum á borð við Pat Garrett & Billy the Kid (1973), A Star is born (1976), Lone Star (1996), Blade (1998) en árið 1985 var hann til­nefndur til Ósk­arsverð­laun­anna fyrir tón­list­ina í kvik­mynd­inni Songwriter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“