„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brueckner líklega sýknaður af nauðgunarákærum: „Þessi réttarhöld hefðu aldrei átt að fara fram“

Brueckner líklega sýknaður af nauðgunarákærum: „Þessi réttarhöld hefðu aldrei átt að fara fram“
Brueckner er sak­aður um við­bjóðs­lega glæpi. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Verjandi Christian Brueckner, sem grun­aður er um að vera valdur að hvarfi Madel­eine McCann, segir að Brueckner hefði aldrei átt að vera ákærður fyrir hina viðu­styggi­lega kyn­ferð­is­glæpi sem hann er grun­aður um að hafa framið í Portúgal um ára­bil. Þessu hélt hann fram í rétti í Þýska­landi í dag.

Réttað er nú yfir Brueckner, sem er 47 ára, í Þýska­landi, en hann er sak­aður um að hafa nauðgað konum og berað sig fyrir börnum á Algarve, Portúgal. Ákær­urnar eru ótengdar Madel­eine mál­inu, sem þýski barn­a­níð­ing­ur­inn neitar allri aðild að. Sak­sókn­arar kröfð­ust þess í síð­ustu viku að Brueckner yrði dæmdur í 15 ára fang­elsi fyrir hina meintu glæpi í Portúgal.

En Ute Engemann dóm­ari úrskurð­aði í júlí að sönn­un­ar­gögnin gegn honum væru „ófull­nægj­andi“, sem er sterk vís­bend­ing um að hann verði sýkn­aður. Sak­sókn­arar hafa stuðst við sönn­un­ar­gögn Helge Busching, sem seg­ist hafa séð mynd­bönd af Brueckner nauðga tveimur konum. Busching gaf lög­reglu einnig ábend­ingar um meinta þátt­töku þýska barn­a­níð­ings­ins í hvarfi Madel­eine.

Hann hélt því fram að Brueckner hafi sagt sér að „hún hafi ekki öskrað“ þegar þeir ræddu málið alræmda á spænskum bar. Þeir urðu vinir í Praia da Luz um mið­part fyrsta ára­tugar þess­arar aldar. Í loka­ræðu sinni í dag gagn­rýndi Friedrich Fuelscher, lög­maður Brueckner, aða­vitnið Busching. Hann sagði hann vera lygara og lýsti Busching sem „mann­eskju sem lýgur og reynir að láta sjálfan sig líta út fyrir að vara mik­il­vægur“.

Fuelscher sagði við hér­aðs­dóm­stól­inn í Braunschweig: „Það eru alls engar sann­anir sem styðja það sem hann sagði. Brueckner sat hreyf­ing­ar­laus við hlið lög­fræð­ings síns í morgun, klæddur í sama gráa blazer-jakk­anum og hann hefur klæðst í hinum átta mán­aða löngu rétt­ar­höldum. Fuelscher sagði við dóm­ara: „Þessi rétt­ar­höld hefðu aldrei átt að fara fram. Ef það væri ein­hver annar aðili, þá hefði aldrei komið til rétt­ar­halda, á grund­velli sönn­un­ar­gagn­anna. Sá dagur er löngu lið­inn þar sem við lokum fólk inni á grund­velli þeirra en ekki glæps þeirra.“ Hann sak­aði sak­sókn­ara um að „reyna að hafa áhrif á álit almenn­ings“.

Fuelscher benti á að tvö af meintum nauðg­un­ar­fórn­ar­lömbum Brueckners hefðu aldrei verið fundin. „Þú verður að spyrja, hversu lík­legt er að fólk sem hefur lent í þessu hefði ekki til­kynnt það? sagði hann. „En samt lögðu þýsk yfir­völd og lög­regla mikið á sig til að rann­saka þetta og fundu ekk­ert.“

Þjóð­verj­inn er grun­aður um að hafa rænt og myrt hina þriggja ára gömlu Madel­eine í Praia da Luz í maí 2007. Hann afplánar nú sjö ára fang­els­is­dóm fyrir að hafa nauðgað banda­rískum elli­líf­eyr­is­þega í portú­gölsku sum­ar­húsi. Ef Brueckner verður sýkn­aður verður hann lát­inn laus á næsta ári, sem er martröð fyrir þá sem rann­saka mál Madel­eine.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn virð­ast ekki nærri því að sanna að hann hafi staðið á bak við hvarf hennar, þrátt fyrir að halda því fram að þeir hafi sann­anir fyrir því að hún sé látin. Sýkni­dómur myndi auka þrýst­ing­inn á þá að ákæra Brueckner fyrir hvarf Madel­eine. Búist er við að sak­sókn­arar áfrýi til æðra dóm­stóls í Þýska­landi verði hann sýkn­aður af ákærunni. Dómur gæti fallið strax á morgun.

Brueckner er sak­aður um að hafa framið við­ur­styggi­lega glæpi í Algarve á árunum 2000 til 2017. Meðal þeirra er meint nauðgun á írska ferða­full­trú­anum Hazel Behan, sem var ráð­ist á í íbúð hennar í Praia da Rocha árið 2004. Brueckner er einnig sak­aður um að hafa nauðgað tán­ings­stúlku á heim­ili hans í Praia da Luz og nauðgað eldri konu í sum­ar­hús sem hún dvaldi í.

Þá á hann yfir höfði sér ákæru fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum fyrir að hafa berað sig fyrir framan þýska stúlku á strönd í Salema í apríl 2007. Síðasta ákæra hans snýr að meintri ósæmi­legri berun fyrir framan 11 ára stúlku árið 2017.

Mirror fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“