„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Foreldrar fá vöggugjafir í Fjarðabyggð: „Okkur finnst dásamlegt að geta létt undir með fjölskyldum“

Foreldrar fá vöggugjafir í Fjarðabyggð: „Okkur finnst dásamlegt að geta létt undir með fjölskyldum“

Sveit­ar­fé­lagið Fjarða­byggð og Kjör­búðin hafa gert með sér sam­komu­lag um að gefa nýbök­uðum for­eldrum í sveit­ar­fé­lag­inu vöggu­gjöf.

Samkvæmt Aust­ur­frétt er vöggu­gjöfin pakki með nauð­synja­vörum fyrir fyrstu vik­urnar í lífi nýfæddra barna og for­eldra þeirra en hægt er að nálg­ast pakk­ann í Kjör­búðum í sveit­ar­fé­lag­inu.

„Vöggu­gjöfin er okkar fram­lag til þess að bjóða nýj­ustu íbúa Fjarða­byggðar vel­komna í heim­inn. Við vitum að það er að mörgu að huga fyrstu vik­urnar í lífi barns og okkur finnst auð­vitað dásam­legt að geta létt undir með fjöl­skyldum með þessum hætti.

Við höfum í gegnum tíð­ina átt í góðu sam­starfi við Fjarða­byggð, og það er frá­bært að taka þetta stóra skref saman,“ segir Bergrún Ósk Ólafs­dóttir, verk­efna­stjóri umhverfis- og sam­fé­lags­mála hjá Sam­kaupum í til­kynn­ingu.

Eft­ir­far­andi er síðan haft eftir Haraldi Líndal Har­alds­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Fjarða­byggðar:

„Fjarða­byggð er stolt af því að fá að taka þátt í þessu verk­efni með Sam­kaupum og vera þar með fyrsta sveit­ar­fé­lagið til þess. Fjarða­byggð er barn­vænt sveit­ar­fé­lag þar sem börn kom­ast í leik­skóla eftir fyrsta ald­ursár og viljum við gera vel á fyrstu vikum barns með því að létta undir og stuðla að jákvæðri upp­lifun meðal nýbak­aðra for­eldra.”

En hvað inni­heldur vöggu­gjöfin? Þar má meðal ann­ars finna bleyjur, bossakrem, snuð, barnolíu, blaut­þurrkur, leka­hlífar, bóm­ull og brjóstakrem. Er hug­myndin fengin erlendis frá þar sem sér­stakir barns­burð­ar­pakkar af svip­uðum toga þekkj­ast og inni­halda nauð­synja­vörur fyrir allt frá nokkrum vikum og upp í fyrstu mán­uð­ina eftir fæð­ingu barns. Þar sem slíkar gjafir eru í boði hafa þær slegið í gegn og í kjöl­farið hlotið nokkra athygli á Íslandi.

Fram kemur í umfjöllun Aust­ur­fréttar að sveit­ar­fé­lagið veiti upp­lýs­ingar um fjölgun á heimli sem síðan gefur Kjör­búð­inni kleyft að bjóða stækk­andi fjöl­skyldum mögu­leika á að þiggja gjöf­ina. Vilji fjöl­skylda þiggja vöggu­gjöf­ina getur hún nálg­ast upp­lýs­ingar á vef­svæði Kjör­búð­ar­innar og velja að fá gjöf­ina afhenta í verslun.

Alls er að finna Kjörbúð í þremur bæjum í Fjarða­byggð en það er á Eski­firði, Fáskrúðs­firði og í Nes­kaups­stað. „Við viljum að íbúum í nágrenni Kjörbúða líði vel og upp­lifi öryggi með aðgengi að nauð­synja­vörum. En við erum oftar en ekki eina versl­unin í þeim bæjum þar sem við störfum og leggjum alltaf höf­uð­á­herslu á að sinna því hlut­verki vel, ekki ein­ungis sem mat­vöru­verslun, heldur einnig sem þátt­tak­andi í sam­fé­lag­inu. Því finnst okkur dýr­mætt að fá að styðja við vax­andi fjöl­skyldur í okkar næsta nágrenni og vonum að gjöfin komi að góðum notum,” bætir Bergrún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

foreldrar

Námskeið fyrir nýbakaða feður. „Gefa nýjum feðrum innsýn í föðurhlutverkið“
Menning

Námskeið fyrir nýbak­aða feður. „Gefa nýjum feðrum inn­sýn í föð­ur­hlut­verkið“

Heilsu­m­ið­stöðin 9 mán­uðir býður upp á nýtt og gjald­laust nám­skeið sem vakið hefur mikla athygli en heitir það „Að verða pabbi: Jákvæð sál­fræði fyrir feður“. Á Facebook síðu heilsu­m­ið­stöðv­ar­innar er nám­skeið­inu lýst betur en virð­ist það hafa fengið frá­bær við­brögð frá því að það var kynnt. Nám­skeið­inu stýrir Tryggvi Þór Krist­jáns­son en er það hluti af loka­verk­efni hans í Diplóma­námi...
Anna sálfræðingur um andlega líðan barna vegna sýnatöku: „Við sjálf erum miklu stressaðari“
Menning

Anna sál­fræð­ingur um and­lega líðan barna vegna sýna­töku: „Við sjálf erum miklu stress­að­ari“

„Við sjálf erum miklu stress­að­ari fyrir þessu heldur en að þvo hárið eða tann­bursta börnin,“ sagði Anna María Valdi­mars­dóttir, sál­fræð­ingur á Sál­stof­unni í við­tali við Mannlíf í morgun. Þá hefur borið á því að for­eldrar hafi áhyggjur af mögu­legum lang­tíma­á­hrifum sem sýna­tökur geti haft á börn þeirra. Þá séu dæmi um að for­eldrar hafi þurft að fara með börn sín...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Landið

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Landið

Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Landið

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Landið

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir