„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Bandaríkin senda Netanyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“

Dr. Gilbert birtir lista yfir vopn sem Bandaríkin senda Netanyahu: „Hættið að vopna Ísrael strax!“
Dr. Mads Gilbert Mynd: X.com

Dr. Mads Gilbert hvetur til þess að þjóðir heims þrýsti á að Banda­ríkin hætti að senda Ísraelum vopn.

Í nýlegu mynd­skeiði sem norski lækn­ir­inn og mann­úð­ar­fröm­uð­ur­inn Dr. Mads Gilbert, birtir hann lista yfir þau vopn sem Banda­ríkin hefur sent Ísrael frá 7. októ­ber í fyrra og hvetur þjóðir heims til að þrýsta á Banda­ríkin að hætta að senda vopnin til Ísrael.

Mads er staddur í Suður-Líbanon þar sem hann starfar á sjúkra­húsi sem tekur á móti slös­uðum Líbönum eftir árásir Ísra­els­hers. „Hæ. Ég er enn staddur í Nabati­yeh, á sjúkra­hús­inu en núna ætlum við að sýna ykkur þær teg­undir vopna sem Banda­ríkin hafa sent her­námsliði Ísraela,“ segir Mads í upp­hafi mynd­skeiðs­ins. Og heldur áfram: „Um er að ræða vopna­búr hrylli­legra vopna og það er erfitt að ímynda sér að ekk­ert vest­rænt ríki eða Evr­ópu­sam­bandið hefur staðið upp og gagn­rýnt Banda­ríkin! fyrir að vopna Ísrael á meðan á rétt­ar­höld standa yfir hjá Alþjóð­lega glæpa­dóm­stólnum vegna þjóð­ar­morðs á Palest­ínu­mönnum. Hvers vegna krafði ekk­ert evr­ópskt ríki Banda­ríkin um að hætta hinum ban­vænu vopna­send­ingum?“ Því næst birti Mads lista og tölur yfir þau vopn sem Joe Biden hefur sent Ísraelum und­an­farið ár.

Eftir að list­inn hefur verið sýndur heldur Mads áfram en suð úr drónum Ísra­els­hers heyr­ist greini­lega í mynd­skeið­inu: „Og drón­arnir eru yfir okkur öllum stundum. En ég vil einnig sýna ykkur nokkur dæmi um þau meiðsl sem árásir Ísra­els­hers valda manns­lík­am­anum. Fórn­ar­lamb sprengju­árásar sem kom til okkar í gærnótt, senni­lega eftir dróna­eld­flaug sem Ísraelar bjuggu til, eða Banda­ríkja­menn, við vitum það ekki. Hann hlaut fjölá­verka, fætur hans voru illa farnir og hann var með sprengju­brot í háls­inum. Hinir snjöllu og vinnu­sömu skurð­læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir, svæf­ingateymið og fólkið á bráða­mót­tök­unni hér á spít­al­anum, bjarg­aði lífi hans. Þeir reyndu að drepa hann en heima­menn björg­uðu honum.“

Mads birtir síðan nokkrar ljós­myndir og mynd­skeið frá lífs­björg­inni og segir síðan harður: „Stöðvið þetta. Hættið að vopna Ísrael strax!“

Hér má sjá mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“