„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Breskur ofurhugi hrapaði til bana á Spáni: „Við reyndum öll að tala hann af þessu“

Breskur ofurhugi hrapaði til bana á Spáni: „Við reyndum öll að tala hann af þessu“
Ein af myndum ofur­hug­ans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Breskur áhrifa­valdur féll til bana þegar hann reyndi að klífa hæstu brú Spánar án örygg­is­bún­aðar.

Fjöl­skylda hins 26 ára Lewis Steven­son, 26, er sögð hafa varað hann við að klifra upp 192 metra háu Castilla La Mancha-brúnna í Talavera de la Reina á Spáni en að hann hafi tekið áskor­un­inni þrátt fyrir það. Hann ætl­aði sér að taka ljós­mynd fyrir sam­fé­lags­miðla sína en hrap­aði til dauða síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Instagram-síða hans er full af ljós­myndum þar sem sjá má hann stilla sér upp ofan á háum bygg­ingum og risa­stórum mann­virkjum um allan heim, þar á meðal í New York borg, en hinn ungi mað­ur­inn er sagður hafa „gert það sem hann gerði, sér til ánægju“.

En fjöl­skylda Lewis er nú algjör­lega miður sín. Kærasta hans, Savannah Parker fór á sam­fé­lags­miðla til að lýsa sorg sinni yfir harm­leiknum og lýsti dauða maka hennar sem „martröð“. Afi Lewis, Clifford Steven­son, 70, sagði: „Við reyndum öll að tala hann af þessu. Við vorum alltaf að reyna að tala hann af því að gera þessa hluti en svona var hann bara. Hann elskaði að gera þetta, hafði alltaf trú á því að þetta yrði í lagi. Hann gerði það sem hann gerði sér til ánægju. Hann fékk enga pen­inga fyrir það, hann var ævin­týra­maður.“

Lewis safn­aði fjöl­mörgum fylgj­enum á sam­fé­lags­miðlum með ógn­vekj­andi glæfra­brögðum sínum. Margir þeirra lýstu sorg sinni yfir and­láti hans. Einn skrif­aði á Instagram: „Að þekkja þig hefur verið ein mestu for­rétt­indi lífs míns. Og að missa þig er mesta sorg lífs míns. Engin orð á heimsku­legri Instagram-færslu munu lýsa því hversu mikið ég sakna þín. Þú munt alltaf vera hug­rakkasta, umhyggju­samasta og fyndn­asta mann­eskja sem ég hef kynnst. Ég er stoltur af hverri bygg­ingu, hverju þaki, hverri stundu okkar saman. Besti vinur minn, bróðir minn. Hvíldu í friði, við munum hitt­ast aftur einn dag­inn.“

Annar ofur­hugi birti ljós­mynd af Lewis sitj­andi á skýja­kljúfi í New York og skrif­aði: „Und­an­farin sjö ár kynntir þú fyrir mér nýjan skiln­ing á frelsi, sem breytti lífs­sýn minni gríð­ar­lega og gaf mér leið­sögn um mína eigin skap­andi vinnu, þú varst alltaf að hvetja mig og veita mér inn­blástur. Ég er ævin­lega þakk­látur fyrir tæki­færin sem þú gafst mér og fólkið sem þú kynntir fyrir mér.“

Lewis var skrif­stofu­maður frá Derby, þar sem kærasta hans, Parker, bjó en hún skrif­aði á sam­fé­lags­miðlum sínum: „Klukkan er fimm að morgni og ég hef hvorki borðað né sofið. Vill ein­hver segja mér að þetta sé martröð? Mér líður ofboðs­lega illa með að þú komir ekki aftur. Gerðu það, komdu aftur. Vin­sam­leg­ast svar­aðu í sím­ann.“

Að klifra mann­virki án beisla er áhættu­samt tísku­fyr­ir­brigði, sem hefur náð vin­sældum eftir að sam­fé­lags­miðlar komu til sög­unnar. Lewis sýndi sumar „þaktopp­anir (e. rooftopping)“ sínar sem hann fram­kvæmdi um allan heim á Instagram-síðu sinni undir nafn­inu expedition, segir í Mail Online.

Svimandi myndir af Steven­son ofan á skýja­kljúfi í New York og hvíla á málm­bjálka með útsýni yfir Lund­úna­borg voru meðal þeirra mynda sem Steven­son birti. Aðrar ljós­myndir sýndu ofur­hug­ann hang­andi neðan úr mann­virki í Króatíu og hót­el­þaki í Mexík­ó­borg.

Áhrifa­vald­ur­inn fannst lát­inn fyrir neðan brúnna á Spáni á sunnu­dag. Það er óljóst hversu hátt Lewis komst upp í mann­virkið þegar hann missti jafn­vægið, en hæst nær brúin um 192 metra. Yfirvöld segj­ast halda áfram að rann­saka harm­leik­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“