„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Baby Shark rapparinn Ralan Styles skotinn til bana: „Hjarta mitt er gjörsamlega brostið“

Baby Shark rapparinn Ralan Styles skotinn til bana: „Hjarta mitt er gjörsamlega brostið“
Blessuð sé minn­ing hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fjöl­skylda rapp­ar­ans Michael Robinson, hefur stað­fest að hann hafi verið skot­inn til bana í Columbus í Ohio í gær­kvöldi. Hann var 22 ára gam­all.

Rapp­ar­inn sem sló í gegn með end­ur­hljóð­blöndun (e. remix) af hinu gríp­andi barna­lagið Baby Shark, var skot­inn til bana í gær, að sögn í kjöl­far götu­ráns.

Hinn 22 ára gamli Michael Robinson var skot­inn til bana í Columbus í Ohio-ríki eftir að ræn­ingi reyndi að stela af honum háls­meni. Vitni segja mann­inn hafa skotið rapp­ar­ann eftir að hann neit­aði að afhenda háls­menið. Rapp­stjörn­unni, sem var þekkt undir nafn­inu Ralan Styles, blæddi út á meðan sjúkra­liðar gerðu sitt besta við að bjarga lífi hans.

Samkvæmd The Columbus Dispatch var Mahamood Hassan hand­tek­inn nokkru síðar og kærður fyrir morðið á rapp­ar­anum. Hinn 24 ára Hassan, sem hafði áður verið hand­tek­inn fyrir inn­brot og þjófnað sam­kvæmt lög­reglu­skýrslum, var færður í fang­elsi Franklin-sýslu en mun mæta fyrir dóm á mánu­dag.

Rapp­ar­inn sló í gegn fyrir tveimur árum með end­ur­hljóð­blöndun sína á kóreska barna­lagiðnu Baby Shark sem kom út 2019. Horft var á útgáfu hans meira en fjórum milljón sinnum og skil­aði honum plötu­samn­ingi við Republic Records.

Bróðir tón­list­ar­manns­ins, sem einnig er rapp­ari, þekktur sem „Lil Goat“, birti til­finn­inga­þrungna færslu á sam­fé­lags­miðlum sínum þar sem hann heiðr­aði bróður sinni. Birti hann mynd­bönd og myndir af þeim saman og skrif­aði. „Ekki litli bróðir minn maður. Ég er enn að bíða eftir að þú hringir í mig og segir mér að þetta sé grín. Hjarta mitt er gjör­sam­lega brostið. Ég verð aldrei samur. Við fórum frá því að rappa saman við hádeg­is­verða­borðið í gaggó, yfir í að verða heims­frægir. Við sváfum saman á gólf­inu, við borð­uðum saman, við börð­umst saman, skrif­uðum undir okkar fyrsta samn­ing saman. Ég elska þig bróðir og á meðan ég er á lífi, munt þú aldrei deyja. Vaktu yfir mér. Hvíldu í friði litli bróðir. Taktu frá pláss fyrir mig þarna uppi, hjarta mitt.“

Vinur rapp­ar­ans, Jared Krumm birti einnig færslu á Instagram nokkrum klukku­stundum eftir morðið. Hann skrif­aði: „Missti þig allt of ungan. Und­an­farin tvö ár fengum við [bróðir minn] Jake að upp­lifa þá fyndnu, kraft­miklu og hæfi­leik­a­ríku mann­eskju sem þú varst.“ Bætti hann við: „Það var aldrei dauf stund með þér þegar við vorum í stúd­í­ónu, slak­andi á í kjall­ar­anum hans Jake eða jafn vel bara að rúnta á McDonald´s. Þú hafði orku sem mun ALDREI gleym­ast.“

Hér má sjá Baby Shark með hinum fallna rapp­ara:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“