„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Læknir sendir neyðarbeiðni frá Kamal Adwan-spítalanum á Gaza: „Ástandið er skelfilegt“

For­stjóri Kamal Adwan-spít­al­ans á Norður-Gaza, Dr. Hussam Abu Safiya kom frá sér neyð­ar­beiðni frá spít­al­anum í bréfi, þar sem búið er að slökkva á inter­net­inu og síma­sam­band­inu. Segir hann ástandið innan spít­al­ans skelfi­legt.

Norski lækn­ir­inn Dr. Mads Gilbert birti bréf frá Dr. Hussam Abu Safiya, for­stjóra Kamal Adwan-spít­al­ans á Norður-Gaza, sem Ísra­els­her hefur gert gengnd­ar­lausar árásir á síð­ustu daga, á Instagram-síðu sinni, í formi mynd­band þar sem maður les upp orð lækn­is­ins.

„22. októ­ber, 2024. Þetta bréf er raun­veru­legt,“ þannig byrjar mynd­skeiðið. Og heldur síðan áfram:

„Dr. Hussam Abu Safiya, for­stjóri Kamal Adwan-spít­al­ans er hvorki með síma­sam­band né inter­net sam­band. Hann bað um að þessu bréfi verði komið til vest­rænna fjöl­miðla og mann­úð­ar­sam­taka!“

Í bréf­inu lýsir lækn­ir­inn skelfi­legu ástandi innan spít­al­ans og segir raun­veru­legt þjóð­ar­morð í gangi á Norður-Gaza.

Hér má lesa íslenska þýð­ingu á bréfi Dr. Safiya:

„Staðan er ein­stak­lega erfið. Við erum núna í neyð­ar­á­standi og skot­hríðin hættir ekki í kringum Kamal Adwan-spít­al­ann, átj­ánda dag­inn í röð. Umsátr­inu um heil­brigð­is­fólkið heldur áfram og mik­ill fjöldi særðra eru í nágrenni spít­al­ans. Innan spít­al­ans erum við með fleiri en 150 sjúk­linga sem er verið að með­höndla, þar á meðal fleiri en 15 nýbura og sjúk­lingar á gjör­gæslu.

Við vonum að við getum komið þessum skila­boðum á fram­færi til heims­ins. Búið er að skera á sam­skipta­leiðir okkar og inter­netið liggur niðri og heil­brigð­is­kerfið er óvirkt. Við erum að veita særðum þjón­ustu sem er vel undir lág­marks við­miðum. Í dag er fjöldi písla­vætta á milli 35 og 40 og neyð­arteymi geta ekki nálg­ast hina særðu því það er sér­stak­lega skotið á þau. Það eru enn fjöl­margir slas­aðir í bráða­mót­tök­unni og við eigum engar blóð­ein­ingar, engin lyf, sjúkra­gögn né grunn­lækn­inga­tæki, því miður. Ástandið er skelfi­legt.

Fjöldi písla­vætta á sjúkra­hús­inu sem við höfum eru fleiri en 35 og fjöldi særðra er einnig gríð­ar­lega mik­ill auk þeirra sem eru á gjör­gæsl­unni. Við höfum ekk­ert að bjóða þeim. Við erum meira að segja búin með drenslöng­urnar; læknis­tæki okkar og lækn­is­með­ferðir eru á þrotum. Við erum að tala um aðstæður sem eru örvænt­ing­ar­fullar í öllum skiln­ingi þess orðs.

Það er verið að fremja raun­veru­legt þjóð­ar­morð á íbúum norð­ur­hluta Gaza. Skotum er jafn­vel beint að sjúkra­flutn­ings­mönnum sem eru að reyna að kom­ast að hinum særðu og skotum er einnig beint að spít­al­anum. Bara fyrir stuttu síðan var skotið á inn­gang sjúkra­húss­ins og stór­skota­lið var sent af stað. Það er sér­stak­lega búið að gera Heil­brigð­is­stofn­un­ina að skot­marki.

Auk þess hefur her­námið komið í veg fyrir að sjúkra­gögn, lyf, matur og allt annað, kom­ist hingað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“