„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flugferð gerði út af við ungan föður á leið í frí: „Hann var bókstaflega birtan í lífi okkar“

Flugferð gerði út af við ungan föður á leið í frí: „Hann var bókstaflega birtan í lífi okkar“
Ryan með föður sínum

Ungur spark­box­ari lést á hörmu­legan hátt í fríi eftir að flugið jók á heilaskaða sem hann vissi aldrei að hann væri með.

Ryan Donald, 22 ára, fór í frí með vinum sínum til Kýpur. Fór hann að sofa fyrsta kvöldið í frí­inu og vakn­aði því miður ekki aftur. Krufning leiddi í ljós að hinn eins barna faðir hafði þjáðst af blóð­tappa í heila, sem nið­ur­brotin fjöl­skylda hans sagði að hefði verið eftir spark­box­meiðsli.

Höf­uð­meiðslin versnuðu í flug­vél­inni á leið til Kýpur vegna loft­þrýst­ings­ins og það hefur verið „síð­asta hálm­stráið“, að því talið er. Ryan, sem er frá Portsmouth, var faðir fjög­urra mán­aða drengs. Hann hafði brenn­andi áhuga á spark­boxi og dreymdi um að starfa við þá íþrótt, annað hvort sem atvinnu­maður eða þjálf­ari barna.

Ryan með syni sínum

Systir hans, Georgia Donald, 24 ára, telur að hann hafi orðið fyrir meiðslum annað hvort á æfingu eða í einum af bar­daga hans en læknar á Englandi eru hissa á því að hann sýndi ekki merki um meiðsli.

Hún sagði: „Hann var góð fyr­ir­mynd og hann gafst aldrei upp. Lækn­arnir á Englandi sögð­ust ekki skilja hvernig hann sýndi ekki merki um meiðslin, hann hefði átt að vera með gríð­ar­legan sárs­auka og hann var það ekki, hann bara hélt áfram að berj­ast í gegnum það. Hann kvart­aði yfir litlum höf­uð­verk, eða það sem við héldum að væri lít­ill höf­uð­verkur, en hann þjösnað­ist bara í gegnum það. Hann var ekki mik­ill kvart­ari. Hann var svo hvetj­andi og átti svo mikið framundan.“

Andlát hans hefur nú skilið eftir sig tóm í lífi fjöl­skyldu hans, sér­stak­lega kær­ustu hans Carmen og son þeirra Leyton. Sett var upp GoFundMe-síða til að safna pen­ingum til að koma líki hans heim þar sem Ryan var ekki með trygg­ingu. Hefur nú safna­ast um 1,7 millj­ónum króna á einni viku og er búist við að lík Donalds komi aftur til Englands í þess­ari viku.

Ryan með hluta fjöl­skyldu sinnar.

Georgia sagði einnig: „Ég vil þakka öllum gríð­ar­lega fyrir styrk­ina. Þetta sýndi okkur áhrifin sem Ryan hafði á fólk og hversu mikið hann var elsk­aður. Þetta hefur tekið gríð­ar­lega pressu af for­eldrum mínum (Clive og Cordelia). Pabbi er nú þegar með hjarta­vanda­mál þannig að þetta tók mikið af herðum hans og kom kannski í veg fyrir að eitt­hvað gerð­ist hjá honum. Fólkið sem styrkti okkur hefur bjargað okkur.“

Féð sem safn­ast á GoFundMe verður nú einnig notað til að standa straum af útfar­ar­kostn­aði. Georgia heiðr­aði yngri bróður sinn: „Hann var hvetj­andi, ég veit að allir segja það, en hann var það í raun og veru. Hann var yngstur fimm systk­ina en það var hann sem við litum öll upp til. Sonur minn sá hann eins og bróður þar sem ég bjó nán­ast með Ryan alla ævi. Orð geta ekki alveg lýst því hversu ótrú­legur hann var, allir þekktu hann og allir elsk­uðu hann.“

Bætti hún við: „Maður getur séð það í gegnum öll fram­lögin og öll skila­boðin sem við höfum fengið. Hann hafði áhrif á líf allra. Hann gat fengið þig til að hlæja og brosa, jafn­vel þótt þú vildir það ekki, hann gat pirrað þig þar til honum tókst að láta þig hlæja. Hann var bók­staf­lega birtan í lífi okkar.“

Búist er við að frek­ari krufn­ing fari fram þegar lík Ryans snýr aftur til Bret­lands.

Mirror sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“