„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísraelar drápu yfir 50 börn um helgina: „Enn einn myrkur kafli í þessu hræðilega stríði“

Ísraelar drápu yfir 50 börn um helgina: „Enn einn myrkur kafli í þessu hræðilega stríði“
Ungur drengur heldur á látnu barni á norð­ur­hluta Gaza. Mynd: Trausti Hafsteinsson

UNICEF segir að Ísraelar hafi drepið yfir 50 börn um helg­ina í Jabalia-flótta­manna­búð­unum á Gaza og segja að drápin sýni „ofs­ann í árás­unum og stríð­inu gegn börnum.“

„Börn eru undir stöð­ugum sprengju­árásum, í stöð­ugum ótta,“ sagði Rachel Cummings, mann­úð­ar­stjóri Save the Children International og liðs­stjóri á Gaza, við Al Jazeera á sunnu­dag.

Meira en 16.700 börn hafa verið drepin í árás Ísraela á Gaza síðan í októ­ber á síð­asta ári, að sögn palest­ínskra emb­ætt­is­manna, meira en þriðj­ungur af heild­ar­tölu drep­inna, sem er að minnsta kosti 43.341 sam­kvæmt heil­brigð­is­yf­ir­völdum á svæð­inu.

Cummings sagði frá Deir el-Balah í mið­hluta Gaza að fjöldi mann­falla meðal barna taki ekki til þeirra um það bil 20.000 sem er saknað eða hafa orðið fylgd­ar­laus í þessu stríði.

Ísraelar hafa drepið meira en 1.000 manns í mán­að­ar­löngu ofbeld­is­fullu umsátri sínu um norð­ur­hluta Gaza, þar sem þeir hafa hindrað inn­göngu mat­væla og lækn­is­að­stoðar og lamað heil­brigð­is­stofn­anir.

„Það er stöðugt verið að sprengja fólk með loft­árásum og auð­vitað vitum við að mat­ur­inn og vatnið er ekki nægj­an­legt. Það er verið að neita bíla­lest­unum af mat og vatni til norð­urs … Það er algjör­lega hörmu­legt,“ sagði Cummings.

Bætti hún við: „Við erum að sjá heimsenda ger­ast núna í norð­ur­hluta Gaza.“

Dr Hussam Abu Safia for­stjóri Kamal Adwan-sjúkra­húss­ins, eina starf­hæfa hjúkr­un­ar­að­stöð­unni á norð­ur­hluta Gaza, sagði að inn á sjúkra­húsið hafi „flætt fórn­ar­lömbum“.

Hann hvatti alþjóða­sam­fé­lagið og heil­brigð­is­stofn­anir til að þrýsta á um „brýna mann­úð­ar­leið“ svo hægt sé að afhenda elds­neyti og lækn­inga­birgðir og að sér­hæft sjúkra­lið aðstoði vegna mann­falls­ins.

Í yfir­lýs­ingu sinni á laug­ar­dag sagði stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna að börnin hefðu verið drepin í árás Ísra­els­hers sem jafn­aði tvö íbúð­ar­hús sem hund­ruðir manna hafði leitað skjóls í.

Myrkur kafli

„Samhliða hræði­legum fjölda barna­dauða á Norður-Gasa af völdum ann­arra árása, bæt­ast þessir nýj­ustu atburðir við enn einn myrkan kafla á einu svartasta tíma­bili þessa hræði­lega stríðs,“ segir í yfir­lýs­ingu Catherine Russell, fram­kvæmda­stjóra UNICEF.

Starfs­maður UNICEF sem vann að bólu­setn­ing­ar­her­ferð gegn löm­un­ar­veiki í norð­ur­hluta Gaza, segir hafa orðið fyrir skoti frá dróna þegar hann ók í gegnum Jabalia, sem hefur orðið fyrir verstu árásum Ísraela.

„Árás­irnar á Jabalia, bólu­setn­ing­ar­stof­una og starfs­mann UNICEF eru enn frek­ari dæmi um alvar­legar afleið­ingar glóru­lausra árása á óbreytta borg­ara á Gaza-svæð­inu. Allir Palest­ínu­menn á norð­ur­hluta Gaza, sér­stak­lega börn, eru í yfir­vof­andi hættu á að deyja úr sjúk­dómum, hung­ursneyð og áfram­hald­andi sprengju­árásum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Á sunnu­dag sagði Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) að ísra­elskir her­menn hafi varpað rot­hand­sprengju á mænu­sótt­ar­bólu­setn­ing­ar­stöð í Gaza-borg og sært að minnsta kosti fjögur börn, þrátt fyrir að hafa sam­þykkt að gera mann­úð­ar­hlé vegna bólu­setn­ing­ar­her­ferðar sem lengi hafði verið seinkað.

Ísra­elski her­inn drap einnig 13 Palest­ínu­menn í loft­árás sem beind­ist að tveimur þétt­býlum svæðum í norðri í umsátr­inu, sem hefur valdið mann­úð­ar­kreppu. Mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, Volker Turk, sagði að „myrkasta augna­blik“ átak­anna sé að renna upp í norð­ur­hluta Gaza.

Ísraelar hófu hern­að­ar­sókn, sem margir köll­uðu „hefnd­ar­stríð“ gegn Palest­ínu­mönnum, í kjöl­far árásar Hamas á Ísrael 7. októ­ber 2023. Meira en 1.100 manns, aðal­lega óbreyttir borg­arar, voru drepnir og um 240 manns. voru teknir til fanga í árásinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þjóðarmorð

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“
Heimurþjóðarmorð

Segir Net­anyahu stað­ráð­inn í að ráð­ast aftur á Gaza: „Mun skapa gríð­ar­leg vanda­mál“

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels hyggst hefja árásir á Gaza að nýju en mun lík­lega mæta mik­illi and­stöðu frá ísra­elskum almenn­ingi, að sögn Meron Rapoport, rit­stjóra ísra­elska frétta­stof­unnar Local Call. „Vænt­ingin frá fjöl­skyldum gísl­anna [sem eru eftir á Gaza] er að öllum gísl­unum verði sleppt,“ sagði hann við Al Jazeera. Hins vegar, eftir að hafa tekið upp hug­mynd Trumps um að flytja Palest­ínu­menn...
Segja herinn hafa drepið ísraelsku fjölskylduna á Gaza – Líkamsleifarnar sagðar hafa blandast saman
Heimurþjóðarmorð

Segja her­inn hafa drepið ísra­elsku fjöl­skyld­una á Gaza – Lík­ams­leif­arnar sagðar hafa bland­ast saman

Í yfir­lýs­ingu frá fjöl­miðla­skrif­stofu yfir­valda á Gaza er lítið gert úr hót­unum ísra­el­skra emb­ætt­is­manna vegna full­yrð­inga um að rangt lík hafi verið skilað til Ísraels á fimmtu­dag. Yfirvöld segja að lík­ams­leifar kven­kyns gísls hafi fund­ist í bland við leifar ann­ars fólks undir rústum bygg­ingar, sem varð fyrir lát­lausum loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza. Segja yfir­völd að þetta sé bara vitn­is­burður um...
Undirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti
Innlentþjóðarmorð

Und­ir­skrift­ar­söfnun gegn þátt­töku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytj­endur vilja keppa úti

Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin þar sem þess er að kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision verði Ísrael ekki meinuð þátt­taka í Eurovision í ár. Allir kepp­endur í Söngvakeppn­inni hafa sam­þykkt að taka þátt úti í Sviss, vinni þeir. Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir stendur fyrir und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision í ár, verði Ísrael ekki...
Minnst þrír Palestínumenn drepnir á Gaza – Sonur bæjarstjóra í Líbanon myrtur í drónaárás
Heimurþjóðarmorð

Minnst þrír Palest­ínu­menn drepnir á Gaza – Sonur bæj­ar­stjóra í Líbanon myrtur í dróna­árás

Að minnsta kosti þrír Palest­ínu­menn hafa verið drepnir og 11 særðir í árásum Ísra­els­hers víðs­vegar um Gaza síð­asta sól­ar­hring­inn og einn til við­bótar lést af sárum sem hann hlaut í fyrri árás Ísra­els­manna, að sögn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Tvö lík til við­bótar voru einnig tekin undan rústum síð­ast­lið­inn dag, segir í yfir­lýs­ing­unni. Nú er tala myrtra á Gaza frá 7. októ­ber, komin...
Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopnahléssamkomulaginu – Minnst 132 Palestínumenn drepnir
Heimurþjóðarmorð

Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopna­hléssam­komu­lag­inu – Minnst 132 Palest­ínu­menn drepnir

Ísraelar hafa brotið vopna­hléssam­komu­lagið við Hamas 266 sinnum, frá því að það tók gildi. Palest­ínskir heim­ild­ar­menn innan ​​örygg­is­geirans hafa sagt Al Jazeera að þeir hafi skráð 266 brot á vopna­hléssam­komu­lag­inu síðan það tók gildi á Gaza-svæð­inu 19. jan­úar. Þessi brot hafa leitt til dauða að minnsta kosti 132 Palest­ínu­manna, þar af 26 sem lét­ust síðar af sárum sínum. Meira en...
Ísraelsher skaut fjögur skólabörn á Vesturbakkanum – MYNDSKEIÐ
Heimurþjóðarmorð

Ísra­els­her skaut fjögur skóla­börn á Vest­ur­bakk­anum – MYNDSKEIÐ

Að minnsta kosti 20 Palest­ínu­menn, þar á meðal fjögur skóla­börn, særð­ust í skotárás Ísra­els­hers í gær í árás hers­ins á Nablus og al-Bireh á hernumda Vest­ur­bakk­anum. Áhlaupin áttu sér stað síð­degis, þegar götur voru troð­fullar og nem­endur voru að búa sig undir að snúa heim úr skól­anum. Ísra­elskir sér­sveit­ar­menn réð­ust inn í Gömlu borg­ina í Nablus og umkringdu hús, studd...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“