„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þingmaður fjarlægður með valdi eftir að hafa húðskammað Netanyahu – MYNDBAND

Þingmaður fjarlægður með valdi eftir að hafa húðskammað Netanyahu – MYNDBAND
Benjamin Net­anyahu

Ísraelsk-Palest­ínski þing­mað­ur­inn Ayman Aadil Odeh húð­skamm­aði Benjamin Net­anyahu á ísrelska þing­inu á dög­unum og kall­aði hann „raðmorð­ingja friðar“. Var hann tek­inn úr ræðu­stól með valdi í kjöl­farið.

Ayman Odeh, leið­togi Hadash flokks­ins á þingi Ísrael, Knesset, var fjar­lægður með valdi úr ræðu­stól þings­ins á dög­unum eftir að hann húð­skamm­aði for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Benjamin Net­anyahu.

Byrjaði Odeh, sem er ísra­elsk-palest­ínskur og alinn upp í Ísrael, á að segja frá sannri sögu manns sem missti nýfædda tví­bura sína í árásum Ísra­els­hers á Gaza nýlega.

„Benjamin Net­anyahu. Ég vil segja þér frá sögu af hinum 32 ára Mohammad Abu Al Qomsan frá Gaza. „Ég gift­ist tveimur mán­uðum fyrir stríðið og eftir það upp­lifðum við brott­vís­un­ar­stefnu. Við færðum okkur frá einum stað til ann­ars, fyrst frá norðri, þar til við komum á Deir Al Balah. Laug­ar­dag­inn 10. ágúst fædd­ust tví­burarnir mínir, strákur og stelpa. Aser og Aseel. Þetta var eftir að kona mín, dr. Jumana Arafa, gekkst undir erf­iðan keis­ara­skurð. Hamingja fyllti hjörtu okkar vegna fæð­ingar fyrstu barn­anna okkar. Spenning okkar var ómögu­lega hægt að lýsa. Að morgni þriðju­dags­ins 13. ágúst fór ég glað­beittur á sjúkra­húsið og sótti fæð­ing­ar­vott­orð barn­anna minna tveggja. Yfir­fullur af ham­ingju sendi ég eig­in­konu minni ljós­mynd af fæð­ing­ar­vott­orð­unum á WhatsApp en hún svar­aði ekki. Það var þá sem ég fékk sím­tal frá einum af nágrönnum mínum sem spurði mig hvort það væri í lagi með mig. Ég svar­aði að sann­ar­lega væri í lagi með mig. Sagði hann þá að íbúðin sem ég leigði hefði verið sprengd. Ég flýtti mér með hjartað fullt af ótta um örlög fjöl­skyldu minnar. Þegar ég kom að mót­töku sjúkra­húss­ins þar sem sumir nágrannar mínir voru en þeir sögðu mér skjálf­andi að þau væru í líkkæl­inum. Varla höfðu 10 mín­útur liðið frá því að ég fékk fæð­ing­ar­vott­orðin þar til ég var kom­inn með dán­ar­vott­orð þeirra. Ég hrundi“.“

Því næst fór Odeh yfir töl­fræði stríðs­ins og beindi orðum sínum að Net­anyahu: „Það eru 17.385 börn á Gaza sem kerfið þitt hefur drepið. Af þeim eru 825 undir eins árs aldri. Það eru 35.055 mun­að­ar­laus börn á Gaza. Blóð þeirra allra mun ásækja þig en samt, í frekju þinni furðar þú þig á ásök­unum Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins. Benjamin Net­anyahu, hver er sýn þín? Hver er sýn þín? Í yfir 30 ár hefur þú verið raðmorð­ingi friðar!“ Þegar þarna var komið við sögu voru þing­menn farnir að öskra á Odeh og for­seti þings­ins sagði honum að yfir­gefa ræðu­stól­inn. Odeh hélt áfram að æpa á Net­anyahu, „Hver er þín sýn? Raðmorð­ingi friðar!“ áður en hann var fjar­lægður með valdi úr ræðu­stól. Net­anyahu horfi gal­tómum augum á þing­mann­inn mest allan tím­ann.

Hér má sjá mynd­band af atvik­inu en þar má einnig sjá yfir­lýs­ingu frá honum eftir að hann hafði verið rek­inn úr ræðu­stól:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þjóðarmorð

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“
Heimurþjóðarmorð

Segir Net­anyahu stað­ráð­inn í að ráð­ast aftur á Gaza: „Mun skapa gríð­ar­leg vanda­mál“

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels hyggst hefja árásir á Gaza að nýju en mun lík­lega mæta mik­illi and­stöðu frá ísra­elskum almenn­ingi, að sögn Meron Rapoport, rit­stjóra ísra­elska frétta­stof­unnar Local Call. „Vænt­ingin frá fjöl­skyldum gísl­anna [sem eru eftir á Gaza] er að öllum gísl­unum verði sleppt,“ sagði hann við Al Jazeera. Hins vegar, eftir að hafa tekið upp hug­mynd Trumps um að flytja Palest­ínu­menn...
Segja herinn hafa drepið ísraelsku fjölskylduna á Gaza – Líkamsleifarnar sagðar hafa blandast saman
Heimurþjóðarmorð

Segja her­inn hafa drepið ísra­elsku fjöl­skyld­una á Gaza – Lík­ams­leif­arnar sagðar hafa bland­ast saman

Í yfir­lýs­ingu frá fjöl­miðla­skrif­stofu yfir­valda á Gaza er lítið gert úr hót­unum ísra­el­skra emb­ætt­is­manna vegna full­yrð­inga um að rangt lík hafi verið skilað til Ísraels á fimmtu­dag. Yfirvöld segja að lík­ams­leifar kven­kyns gísls hafi fund­ist í bland við leifar ann­ars fólks undir rústum bygg­ingar, sem varð fyrir lát­lausum loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza. Segja yfir­völd að þetta sé bara vitn­is­burður um...
Undirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti
Innlentþjóðarmorð

Und­ir­skrift­ar­söfnun gegn þátt­töku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytj­endur vilja keppa úti

Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin þar sem þess er að kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision verði Ísrael ekki meinuð þátt­taka í Eurovision í ár. Allir kepp­endur í Söngvakeppn­inni hafa sam­þykkt að taka þátt úti í Sviss, vinni þeir. Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir stendur fyrir und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision í ár, verði Ísrael ekki...
Minnst þrír Palestínumenn drepnir á Gaza – Sonur bæjarstjóra í Líbanon myrtur í drónaárás
Heimurþjóðarmorð

Minnst þrír Palest­ínu­menn drepnir á Gaza – Sonur bæj­ar­stjóra í Líbanon myrtur í dróna­árás

Að minnsta kosti þrír Palest­ínu­menn hafa verið drepnir og 11 særðir í árásum Ísra­els­hers víðs­vegar um Gaza síð­asta sól­ar­hring­inn og einn til við­bótar lést af sárum sem hann hlaut í fyrri árás Ísra­els­manna, að sögn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Tvö lík til við­bótar voru einnig tekin undan rústum síð­ast­lið­inn dag, segir í yfir­lýs­ing­unni. Nú er tala myrtra á Gaza frá 7. októ­ber, komin...
Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopnahléssamkomulaginu – Minnst 132 Palestínumenn drepnir
Heimurþjóðarmorð

Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopna­hléssam­komu­lag­inu – Minnst 132 Palest­ínu­menn drepnir

Ísraelar hafa brotið vopna­hléssam­komu­lagið við Hamas 266 sinnum, frá því að það tók gildi. Palest­ínskir heim­ild­ar­menn innan ​​örygg­is­geirans hafa sagt Al Jazeera að þeir hafi skráð 266 brot á vopna­hléssam­komu­lag­inu síðan það tók gildi á Gaza-svæð­inu 19. jan­úar. Þessi brot hafa leitt til dauða að minnsta kosti 132 Palest­ínu­manna, þar af 26 sem lét­ust síðar af sárum sínum. Meira en...
Ísraelsher skaut fjögur skólabörn á Vesturbakkanum – MYNDSKEIÐ
Heimurþjóðarmorð

Ísra­els­her skaut fjögur skóla­börn á Vest­ur­bakk­anum – MYNDSKEIÐ

Að minnsta kosti 20 Palest­ínu­menn, þar á meðal fjögur skóla­börn, særð­ust í skotárás Ísra­els­hers í gær í árás hers­ins á Nablus og al-Bireh á hernumda Vest­ur­bakk­anum. Áhlaupin áttu sér stað síð­degis, þegar götur voru troð­fullar og nem­endur voru að búa sig undir að snúa heim úr skól­anum. Ísra­elskir sér­sveit­ar­menn réð­ust inn í Gömlu borg­ina í Nablus og umkringdu hús, studd...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“