„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmundur handtekinn á Keflavíkurflugvelli fyrir sprengjugrín: „Við erum ekkert Arabaland“

Guðmundur handtekinn á Keflavíkurflugvelli fyrir sprengjugrín: „Við erum ekkert Arabaland“
Kefla­vík­ur­flug­völlur – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Guð­mundur Sig­urðs­son og Sverrir Júl­í­us­son voru hand­teknir á Kefla­vík­ur­flug­velli eftir að Guð­mundur sagði sprengju­brand­ara við banda­rískan vörð árið 1986 en DV fjall­aði um málið á sínum tíma.

Forsaga máls­ins er sú að Guð­mundur og Sverrir voru inn á flug­vell­inum til að þjón­usta flug­vél Banda­ríkja­hers fyrir hönd fyr­ir­tæks­ins Air Cargo. Með þeim í för var vörður á vegum hers­ins, sem fylgdi þeim út um allt. Þegar menn­irnir þrír koma að bíla Sverris og Guð­mundar lítur vörð­ur­inn inn í bíl­inn og segir þá Guð­mundur við vörð­inn:  „There is no bomb there.“

Vörð­ur­inn kall­aði í fram­hald­inu á her­lög­regl­una og voru báðir Íslend­ing­arnir hand­járn­aðir meðan byssum var beint að þeim. Samkvæmt verð­inum taldi hann um að sprengju­hótun væri að ræða. Samkvæmt DV tóku nokkrir tugir her­manna þátt í hand­tök­unni. Guð­mundur og Sverrir voru svo færðir á lög­reglu­stöð, yfir­heyrðir og sleppt.

„Það fer um mann hálf­gerður hrollur þegar maður lítur til baka og ímyndar sér hvað hefði getað gerst, allir þessir menn, allar þessar byssur og allir þessir bílar,“ sagði Sverrir í sam­tali við DV um málið. Þeim hafi verið skipað að snúa sér að vegg, hreyfa sig ekki, tala ekki og horfa ekki á hvorn annan.

Óhræddir en þreyttir

„Þegar yfir­mað­ur­inn kom svo vorum við færðir að hvítum bíl, hand­járn­aðir, og fyr­ir­skipuð leit á okkur. Sá sem þukl­aði mig fann á mér nef­tó­baks­dós og taldi greini­lega að hún væri sprengjan. Allavega með­höndl­aði hann hana eins og egg er hann fór með hana og eld­spýtu­stokk­inn minn út í móa,“ sagði Sverrir. „Þessa nef­tó­baks­dós hafði konan mín gefið mér á fimm­tugs­af­mæl­inu.“

„Við urðum svona hálf­þreyttir eða öllu heldur hálf­das­aðir, sér­stak­lega eftir að allt þetta lið streymdi á stað­inn,“ sagði Sverrir um þegar hann var spurður hvort þeir hefðu orðið hræddir.

„Það er alger­lega frá­leitt að svona geti komið fyrir,“ sagði Jón Sig­fús­son, trún­að­ar­maður starfs­manna Air Cargo, í sam­tali við DV. „Þessir menn verða að skilja að við erum ekk­ert Arabaland. Það á að ræða málin en ekki hegða sér eins og fífl.“

Sverrir og Guð­mundur voru hand­teknir fyrir spreng­u­grín –
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar