„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ástsæl sápuóperuleikkona látin: „Skrifaði undir tveggja ára samning og ég veit ekki hvað gerðist“

Ástsæl sápuóperuleikkona látin: „Skrifaði undir tveggja ára samning og ég veit ekki hvað gerðist“
Blessuð sé minn­ing hennar. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Leslie Charleson, sem lésk í næstum 50 árum í sápu­óp­er­unni General Hospital, er látin, að því er Frank Val­ent­ini, fram­leið­andi þátt­ar­ins, stað­festi. Hún var 79 ára.

„Það er með sorg sem ég til­kynni and­lát kærs vinar míns og sam­starfs­manns, Leslie Charleson,“ skrif­aði hann á sam­fé­lags­miðla í gær, 12. jan­úar. „Við­var­andi arf­leifð hennar hefur spannað næstum 50 ár á General Hospital einum og eins og Monica var hjarta Quartermaines [fjöl­skylda í þátt­unum], var Leslie ást­kær móð­urí­mynd fyrir allan leik­hóp­inn og starfs­fólkið.

Hann hélt áfram, „Ég mun sakna dag­legs spjalls okkar, húmors hennar og ótrú­legrar nær­veru á töku­stað. Fyrir hönd allra á General Hospital votta ást­vinum hennar inni­lega samúð á þessum erf­iða tíma.“

Charleson fædd­ist í Kansas City, Missouri en hún lék öll ung­lings­árin á sviði og lærði svo sviðs­leik við Bennett-háskól­ann í New York-fylki.

Hún hóf leik­feril sinn í sápu­heim­inum og lék í þáttum eins og A Flame in the Wind, As the World Turns og Love Is a Many Splend­ored Thing, þar sem hún var til árs­ins 1970.

Þó hún hafi komið fram í mörgum gesta­hlut­verkum eftir að hún yfir­gaf þátta­röð­ina, var það ekki fyrr en hún var ráðin á General Hospital árið 1977 til að leika Monicu Bard Webber (síðar Monicu Quartermaine), sem hún fann heim­ili sitt.

„Ég skrif­aði aðeins undir tveggja ára samn­ing og ég veit ekki hvað gerð­ist,“ sagði leik­konan við Digital Journal árið 2019 um að hafa gengið til liðs við leik­ara­hóp­inn. „Þá voru ekki mörg góð kven­hlut­verk í boði. Þetta var ótrú­legur tími og þetta var sterkur efni­viður til að leika.“

Og sam­band hennar í þætt­inum við eig­in­mann­inn Alan Quartermaine, leik­inn af Stuart Damon, var í upp­á­haldi hjá aðdá­endum þátt­ar­ins, jafn­vel þrátt fyrir allar sveiflur í sam­band­inu, eitt­hvað sem leik­ar­arnir skemmtu sér við að gera út á.

„Við not­uðum alvöru kinn­hesta,“ ját­aði Charleson – sem í raun­veru­leik­anum var gift Bill Demms frá 1988 til 1991, fyrir People árið 2023 er hún fagn­aði 60 ára afmæli ser­í­unnar. „Stuart var alltaf hræddur um að ég myndi taka út úr honum augað. Ég myndi gera platk­inn­hest á æfingum, en þegar við fórum að taka upp fór það allt út um glugg­ann.“

Þó að lækn­ir­inn Monica hafi verið talin slæm mann­eskja í þátt­unum, tal­aði Charleson oft um hversu ánægju­legt það hafi verið að túlka hana, sér­stak­lega eftir að Monica greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 1994.

„Barátta Monica við brjóstakrabba­mein var bara svo ótrú­lega spenn­andi,“ sagði Charleson við FBJ Fit árið 2020. „Að takast á við raun­veru­legt vanda­mál sem hrjáir svo margar konur og fjöl­skyldur þeirra og að geta sýnt bar­átt­una og vanda­málin sem þær standa frammi fyrir, var eitt­hvað sem ég er svo stolt af. Þetta var þreyt­andi og ótrú­lega erfið vinna, en við­brögðin við sögu­þræð­inum voru sann­ar­lega auð­mýkj­andi.“

Charleson tal­aði oft af mik­illi vænt­um­þykju um feril sinn og tíma sinn í þátt­unum. Þar sem hún gekk til liðs við General Hospital árið 1977 og lék í þeim til 2023, þó að hún hafi lítið komið fram í þeim síð­ustu árin vegna tíðra falla hennar, stát­aði hún af lengsta starfs­tíma allra leik­ara þátt­ar­ins, sam­kvæmt Variety.

„Ég elska þetta starf virki­lega,“ sagði hún við Soap Opera Digest árið 2001. „Horfðu á þetta með þessum hætti, hvaða betri vinnu get­urðu gert en að fara á fætur á morgn­ana, rúlla fram úr rúm­inu, henda sér í eitt­hvað og láta ein­hvern sjá um útlit þitt og hvernig þú klæðir þig og hvað þú segir? Hversu miklu þakk­lát­ari gæt­irðu verið?“ Bætti hún svo við: „Ekki slæmt, alls ekki slæmt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“