Ísraelar hafa drepið tvo Palestínumenn á síðasta sólarhring á Gaza-svæðinu, á meðan tveir aðrir létust af sárum sínum og 59 lík fólks sem féll í fyrri árásum Ísraela hafa verið grafin úr rústunum, að sögn heilbrigðisráðuneytisins.
Nýju tölurnar hafa hækkað heildartölu látinna í þjóðarmorði Ísraels á Gaza í 47.417, segir í yfirlýsingunni sem birt var á Telegram. Talan er af mörgum þó talin mun hærri.
Að minnsta kosti 111.571 Palestínumaður hefur einnig særst á Gaza síðan 7. október 2023, bætti ráðuneytið við.
Þá segist Rauði hálfmáninn í Palestínu hafa náð 14 rotnandi líkum frá mörgum stöðum meðfram al-Rashid stræti á Gaza-svæðinu.
Vegurinn hefur verið leiðin sem þúsundir Palestínumanna hafa farið undanfarna daga til að snúa aftur til norðurhluta strandarinnar í kjölfar vopnahléssamningsins.


























Athugasemdir