„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stórgrýti féll á fót tólf ára Hafnfirðings: „Ég var hræddur um að þeir mundu taka af mér fótinn“

Stórgrýti féll á fót tólf ára Hafnfirðings: „Ég var hræddur um að þeir mundu taka af mér fótinn“
Stefán í sjúkra­rúm­inu Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn 12 ára Hafn­firð­ingur, Stefán Bryde lenti heldur betur í leið­in­legri lífs­reynslu í sept­em­ber 1975, þegar bjarg féll á fót hans.

Stefán Bryde, var staddur í hrauni nærri heim­ili sínu í Norðurbæ Hafn­ar­fjarðar 12. sept­em­ber 1975 þegar hann varð fyrir því óláni að bjarg féll á fót hans og slas­aði. Stefán lá eftir slas­aður með fót­inn fast­ann á milli tveggja bjarga. Alls tók það við­bragðs­að­ila 45 mín­útur að ná stein­inum ofan af fæti Stefáns en hann var eftir það fluttur á bráða­deild­ina en síðan á barna­deild Land­spít­al­ans, þar sem hann þurfti að ligga í minnst þrjár vikur eftir að hafa geng­ist undir aðgerð á fæt­inum.

Dag­blaðið tók við­tal við stráksa þar sem hann sagð­ist hafa ótt­ast að fót­ur­inn yrði tek­inn af honum þar sem hann lá fastur undir honum. Hér fyrir neðan má lesa frétt Dag­blaðs­ins:

MEÐ SUNDURTÆTTAN FÓT MILLI BJARGA í 45 MÍNÚTUR

Óvenju­leg lífs­reynsla 12 ára Hafn­firð­ings

„Ég var dálítið hræddur um, að þeir mundu bara taka af mér fót­inn þarna við stein­inn. Ég fann dálítið mikið til, en svo kom læknir og gaf mér sprautu og þá hætti ég næstum alveg að finna til.” Þetta sagði 12 ára Hafn­firð­ingur, Stefán Bryde Lauf­vangi 4 i Hafn­ar­firði, er við litum inn til hans á Barna­deild Land­spít­al­ans í gær. Stefán varð fyrir óvenju­legu slysi 12. sept­em­ber sl. Hann var þá staddur skammt frá heim­ili sínu í Norð­ur­bænum nýja, en þó úti í hraun­inu, þar sem börn eru oft að leik. Stærð­ar­steinn, sem af ein­hverjum orsökum var laus við hraun­björgin umhverfis, rann þá til og lenti hægri fótur Stefáns milli tveggja bjarga. Var Stefán þar fastur og fót­ur­inn sýni­lega illa far­inn.

Gjótan þar sem stór­grýtið féll á Stefán.

Sjúkra­lið og lög­regla kom á vett­vang ásamt fleiri aðstoð­ar­mönnum. Tók það 45 mín­útur að ná stein­inum ofan af fæti Stefáns. Varð að hafa miklar til­fær­ingar við það verk, rör spennt á milli klettanna og tjakkar not­aðir til að spenna björgin hvort frá öðru. Það voru því miklar mann­raunir og næsta óvenju­legar, sem þessi 12 ára drengur varð að ganga i gegnum þarna á slys­staðnum. Stefán litli var fluttur i slysa­deild Borg­ar­spít­al­ans en síðan í Land­spít­al­ann, þar sem hann verður að liggja í minnsta kosti þrjár vikur, eftir „plast­i­ska’ skurð­að­gerð, sem á fæti hans var gerð. Rann­sókn­ar­lög­reglan i Hafn­ar­firði telur fulla ástæðu til að þessar hraun­gjótur veröi athug­aðar og lausum hellum velt á örugg­ari staði. Dag­blaðið fór á slys­stað­inn, sem er vart meira en 50 m frá stórum íbúð­ar­blokkum, þar sem mikið er um börn, sem oft sækja út i hraunið til leikja. Má hik­laust segja, að i þessum gjótum sé fullt af slysa­gildrum og þar gætu hæg­lega orðið mörg slys, ef ekki verður að gætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður