„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skrímslið frá Amstetten gæti losnað úr fangelsi á árinu: „Heldur að hann eigi vini fyrir utan“

Skrímslið frá Amstetten gæti losnað úr fangelsi á árinu: „Heldur að hann eigi vini fyrir utan“
Josef Fritzl Mynd: Trausti Hafsteinsson

Skrímslið frá Amstetten, Josef Fritzl mun sækja um lausn úr fang­elsi í næsta mán­uði.

Lög­fræð­ingar Fritzl, 89, upp­lýstu að þeir muni leggja fram skil­orðs­beiðni eftir nokkrar vikur og eru full­vissir um að hann verði lát­inn laus eftir að hafa afplánað aðeins 15 ár fyrir hræði­lega glæpi sína. Líf­eyr­is­þeg­inn, sem var fang­els­aður árið 2009 fyrir að hafa eign­ast sjö börn með dótt­ur­inni Elisa­beth, sem hann hélt fang­inni í kjall­ara sínum í 24 ár, og lið hans heldur því fram að það stafi ekki lengur hætta af honum fyrir sam­fé­lagið í hans veik­burða ástandi og elli.

Fluttur af geðdeild í venjulegt fangelsi

Lögmaður Fritzl, Astrid Wagner, sagði í sam­tali við Daily Mirror: „Við munum hefja máls­sókn í mars og krefj­ast reynslu­lausnar og ef dóm­stóll­inn hafnar því munum við áfrýja og miðað við ástand hans tel ég að hann verði lát­inn laus fyrir næsta ár. Hann vill búa nálægt þeim stað sem hann bjó á áður og hann vill búa einn en mér finnst það mjög ólík­legt miðað við aldur hans og ástand. Hann þyrfti umönn­un­ar­að­ila og eng­inn af vinum hans eða fjöl­skyldu vill vita af honum.“

Frels­is­beiðni Fritzl, sem fluttur var frá geð­deild í venju­legt fang­elsi í Aust­ur­ríki á síð­asta ári, mun lík­lega hneyksla fórn­ar­lömb hans og fjöl­skyldu­með­limi. Lög­fræð­ingar upp­lýstu að Fritzl, sem dæmdur var í lífs­tíð­ar­fang­elsi árið 2009 fyrir röð hræði­legra glæpa, þar á meðal nauðgun, sifja­spell og fyrir að halda dóttur sinni og börnum þeirra föngnum, telur að lausn hans muni verða fagnað.

Wagner sagði: „Hann trúir því að þegar hann verður lát­inn laus muni bíða hans stór hátíð þar sem fólk fagnar og spilar tón­list og vill taka í hönd­ina á honum. Þetta er aug­ljós­lega ekki raunin. Það er fantasía. Ég held að hann skilji ekki alveg hvað heim­ur­inn raun­veru­lega hugsar. Í hvert skipti sem ég sé hann seg­ist hann sjá eftir ákvörð­unum sínum á hverjum degi. Hann hefur eyði­lagt líf sitt. Hann talar alltaf um eft­ir­sjá sína yfir glæpum sínum. Hann heldur að hann eigi vini fyrir utan, en hann á þá ekki. Það eina sem hann sættir sig við er að fjöl­skylda hans vill ekki lengur sjá hann og ber virð­ingu fyrir því.“

Ekki lengur hættulegur

Hún sagði að Fritzl, sem er fyrr­ver­andi raf­magns­verk­fræð­ingur, sem bjó til bæli undir fjöl­skyldu­heim­ili sínu í hinum rólega bæn Amstetten í Aust­ur­ríki, til að fang­elsa Elisa­beth og börn hennar, sagð­ist eyða dög­unum í klef­anum við að lesa og horfa á sjón­varpið. Fritzl var ljós­mynd­aður  í síð­asta mán­uði í fyrsta skipti í 15 ár þegar hann kom fyrir rétt sem hluti af bar­áttu sinni fyrir frelsi. Honum var ekið til og frá hér­aðs­dómi nálægt fang­els­inu þar sem hann er lok­aður inni, Stein fang­els­inu í bænum Krems an der Donau.

Geð­lækn­ir­inn Adelheid Kastner, sagð­ist hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Fritzl sé ekki lengur hættu­legur almenn­ingi. Þrír dóm­arar ákváðu að flytja hann úr örygg­is­deild sem hann dvaldi í, sem talin er vera sú erf­ið­asta í refsi­kerfi Aust­ur­ríkis, í venju­legan klefa, upp­haf­lega á öðrum væng í sama fang­elsi, sem er 50 mílur norð­vestur af höf­uð­borg­inni Vín.
Fritzl fang­els­aði Elisa­beth í kjall­ara heim­ilis síns í Amstetten í Aust­ur­ríki. Wagner, sem einnig hjálp­aði skrímsl­inu að skrifa bók árið 2023, sagði: „Honum líkar við nýja fang­elsið. Honum finnst gaman að vera í kringum ungt fólk. Þeir leyfa honum að vera í friði en hann á enga vini. Það kemur aldrei neinn í heim­sókn til hans. Hann verður stundum rugl­aður og segir mér að sjón­varps­frétta­menn hafi verið að heim­sækja hann í klef­ann hans en ég segi honum að það sé ómögu­legt því hann hefur ekki fengið heim­sókn frá neinum nema mér. Hún bætti við: „Hann er í mjög góðu lík­am­legu formi. Hann mun lifa þar til hann verður hund­rað ára held ég en and­lega sýnir hann aldur sinn.“

Kominn með Alzheimer

Wagner upp­lýsti einnig að Fritzl, sem er með Alzheimer, er að gang­ast undir sál­fræði­með­ferð í fang­elsi. Fritzl var eins og áður segir, dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi árið 2009 fyrir sifja­spell, nauðgun, þvingun, ólög­lega fang­elsun, þræl­dóm og fyrir mann­dráp af gáleysi á einum af sonum (og dótt­ur­sonar) hans. Dóttirin Elisa­beth var 18 ára þegar hún hvarf árið 1984 og fannst ekki fyrr en árið 2008 en þá kom hún upp úr dýflissu­kjall­ara sem faðir hennar byggði undir heim­ili fjöl­skyld­unnar í Amstetten í Aust­ur­ríki. Mis­notk­unin leiddi til þess að sjö börn fædd­ust, þar af þrjú sem voru lifðu með móður sinni. Þá hélt hann einnig veikri móður sinni fang­inni uppi á háa­lofti á heim­ili sínu og var grun­aður um þrjú morð á konum en ekki tókst að sanna þau á hann.

Einn lést af hendi Fritzl, nokkrum dögum eftir að hann fædd­ist og hann farg­aði lík­inu í brennslu­ofni. Hin þrjú voru alin upp af Fritzl og eig­in­konu hans, Ros­emarie, nú 84 ára, sem skildi við hann eftir að hræði­legir glæpir hans voru upp­lýstir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“