„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“
Frá Silfrinu á mánu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Jóhann Harð­ar­son, íbúi á Egils­stöðum, er allt annað en sáttur eftir að hafa horft á Silfrið á RÚV á mánu­dag­inn, og eru margir á lands­byggð­inni sam­mála honum.

Í Silfrinu á mánu­dag­inn síð­ast­lið­inn var meðal ann­ars rætt við Guðmund Fetram Sig­ur­jóns­son, stofn­anda og og for­stjóra Kerecis, Helgu Völu Helga­dóttur, lög­mann og fyrr­ver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og Má Wolfgang Mixa, dós­ents við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Ræddu þau um sam­göngur á Íslandi en Jóhanni Harð­ar­syni, eða Jói Harðar eins og hann er yfir­leitt kall­aður, blöskr­aði það sem Helga Vala hafði um flug­völl­inn í Reykja­vík að segja en hún er fyrr­ver­andi for­maður Vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. Jói, sem er Esk­firð­ingur en býr á Egils­stöðum skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hann reifar skoð­anir sínar um Silfrið. Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Datt til hugar að kíkja á Silfur Egils í gær­kvöldi sem var áhuga­vert að sumu leyti. Þar sat maður sem heitir Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son sem hefur það á sinni fer­ils­skrá að hafa stofnað Kerecis sem er eitt mesta nýsköp­un­ara­frek Íslend­inga í seinni tíð og maður sem ég ber mikla virð­ingu fyrir.

Þar sat einnig fyrr­ver­andi for­maður Vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og umræðan barst að flug­vall­ar­mál­inu í Reykja­vík.  Ummæli þess aðila voru ótrú­leg svo ekki sé fastar kveðið að orði.   Meðal þess sem hún full­yrti var að “sjúkra­flug­vélin væri bara oft stödd niður við Mið­jarð­ar­haf” sem er nátt­uru­lega svo mikil þvæla að það hálfa væri hell­ingur.  Þar talar hún um flug­vél Land­helg­is­gæsl­unar sem sinnir engu sjúkra­flugi hér­lendis heldur er því sinnt af eink­að­ilum á grund­velli útboða.“

Jói segir síðan að Helga Vala hafi gert lítið úr áhyggjum lands­byggð­ar­fólks af sjúkra­flugi og kallað það „til­finn­inga­klám“:

„Svo klikkti hún út með því að áhyggjur okkar sem erum háð sjúkra­flug­inu þegar fólkið okkar fær t.d hjarta­á­föll, mæður sem eru í áhættu­fæð­ingu, heila­blæð­ingar, bílslys og aðrar þær hremm­ingar sem kalla á það að koma fólk­inu okkar undir lækn­is­hendur því það er spurn­ing um líf eða dauða..þetta kall­aði við­kom­andi aðili  “ Til­finn­inga­klám”.

Svo tal­aði hún til þessa frum­kvöð­uls í fram­haldi af þessu og kvað við­horf hans “kjána­leg”.  Ætli íslenskt sam­fé­lag þurfi ekki fleiri menn einsog og Guðmund en kannski minna af svona yfir­læti.“

Bætir Jói síðan við:

„Í alvöru talað..getur fólk ekki reynt að setja sig í spor þeirra sem þurfa á þessu neyð­ar­úræði sem sjúkra­flugið er að halda.“

Því næst rifjar Jói upp skýrslu sem birt­ist í Lækna­blað­inu árið 2022, um sjúkra­flug á Íslandi:

„Í ágætri skýrslu sem birt­ist í lækna­blað­inu árið 2022 og heitir Sjúkra­flug á Íslandi 2012 til 2020 koma fram ýmsar stað­reyndir.

Á því 8 ára tíma­bili sem þar er rætt kemur í ljós að flugin voru 6011 sem þýðir 751 flug á ári (árið 2023 voru þau rúm­lega 900). Flugin eru flokkuð í 4 flokka þ.e F1, F2, F3 og F4 eftir alvar­leika.  Flokkur F1 er mesti for­gangur, F2 er mögu­leg lífsógn, F3 stöðugt ástand sem getur þó kraf­ist þess að hafa lækni um borð og F4 er flutn­ingur milli stofn­ana og þá á fólki sem ekki er hægt að flytja með áætl­un­ar­flugi en allir sem hafa notað þann ferða­máta vita að með því ferð­ast oft fólk sem varla stendur undir sér kom­andi úr allslags lækna­með­ferðum í höfð­uð­borg­inni.

Skv þess­ari skýrslu þá voru flug í flokki F1 24,8% og F2 22,1 % sem þýðir þá c.a 353 ein­stak­lingar á ári í þessum tveimur flokkum. Við það bæt­ist svo flokkur F3 c.a 16 % 120 ein­stak­lingar sem kallar stundum á nær­veru læknis en er einnig vegna nauð­synjar á því að koma fólki undir lækn­is­hendur sem fyrst.  Vert er að hafa í huga að aukn­ing hefur orðið á sjúkra­flugi frá því að þessi skýrsla var gerð og voru þau t.d 903 árið 2023.“

Segir Jói að nú sé staðan þannig að verið sé að „bjóða upp á rúss­neska rúl­lettu með manns­líf“:

„Nú er staðan sú í boði Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­stjórnar Íslands að það er verið að bjóða uppá rúss­neska rúl­lettu með manns­líf. Af hverju segi ég þetta? Jú vegna þess að með lokun ann­arar flug­brautar Reykja­vík­ur­vallar eru mögu­leikar á því að koma fólki í lífs­hættu á Land­spítl­ann við Hring­braut skertir veru­lega.  Hver ætlar að bera ábyrgð á því ef til þess kemur?  En gæti fólk sem talar líkt og áður­nefndur aðili gerði í þessum þætti í gær­kvöldi reynt að setja sig í spor okkar sem eigum allt undir því að þessi bráð­leið sé fær?  Ímyndum okkur um stund að Land­spít­al­inn væri stað­settur á Akureyri.  Gæti sumt fólk þá afgreitt tölu­legar stað­reyndir um mik­il­vægi sjúkra­flugs og kallað það af yfir­læti “ Til­finn­inga­klám” ef það sner­ist um þeirra ást­vini?“

Að lokum seg­ist Jóa vera mis­boðið og hvetur „Val­kyrj­urnar“ til að standa undir nafni:

„Jú þetta skiptir mig máli og mér er mis­boðið vegna þessa sinnu og skeyt­ing­ar­leysis gagn­vart okkur.  Því miður er við­bragðs­tím­inn svo langur á tíðum að fólkið okkar nær ekki að kom­ast nógu snemma undir lækn­is­hendur.  Ég vona að Guð gefi það að ekki komi upp atvik þar sem snúa þurfi sjúkra­flug­vél frá Reykja­vík­ur­velli vegna trjá­gróð­urs í Öskju­hlíð­inni með aðila í krítísku ástandi.  Guð­mundur Fertram sagði í gær að þetta sner­ist um náunga­kær­leika og það er rétt.

Skert aðgengi lands­byggð­ar­fólks að Land­spít­alnum sökum lok­unar flug­braut­ar­innar er dauð­ans alvara. 

Nú væri kannski lag fyrir Val­kyrj­urnar að standa undir nafni og leysa þetta ekki seinna en strax.“

Margir taka undir færslu Jóa en Haraldur nokkur Gúst­afs­son skif­aði eft­ir­far­andi athuga­semd við færsl­una:

„Hafandi sjálfur verið fár­veikur far­þegi í sjúkra­flugi … farið í sjúkra­flug með óléttri eig­in­konu í miðri fæð­ingu … þá er ég svo inni­lega sam­mála þér með þessi skrif. Veru­leika­fyrr­ing vegna mik­il­vægis bæði stað­setn­ingar flug­valla­ins í nálægð við sjúkra­hús og óskerts aðgengis að vell­inum er gíf­ur­leg….minnir á flökku­sög­una úr frönsku bylt­ing­unni um skort á brauði og að fólk væri þess­vegna að deyja úr hungri..“geta þau þá ekki bara borðað köku?”.“

Ívar Karl Haf­liða­son skrif­aði einnig athuga­semd en hann átti erfitt með að horfa á Silfrið:

„Horfði aðeins á þetta og var eig­in­lega svo miður mín að ég átti erfitt með að horfa á þetta! Van­virð­ing gagn­vart íbúum lands­byggð­ar­innar er svo ótrú­legt! Virðist alveg gleym­ast að meiri­hluti af tekjum sem reka ríkið koma frá lands­byggð­inni og það er bara til­finn­ing­ar­klám að biðja um tryggt aðgengi af bráða­heil­brigð­is­þjón­ustu. Hvað á að sam­göngur og almenn heil­brigð­is­þjón­usta sé í boði út á landi! Ég þarf eig­in­lega að reyna horfa á þetta aftur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Um landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni
LandiðUm landið

For­stöðu­manni hjá Akur­eyr­arbæ sagt upp eftir ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni

Akur­eyr­ar­bær hefur sagt upp for­stöðu­manni umhverfis- og sorp­hirðu­mála en hún hefur verið í leyfi eftir að ásak­anir komu fram um kyn­ferð­is­lega áreiti á árs­há­tíð sem átti sér stað í fyrra. RÚV greinir frá þessu og segir að málið hafi verið í ferli hjá Akur­eyr­arbæ og að fleiri hafi stigið fram og sagt frá vafa­samri hegðun for­stöðu­manns­ins. Yfir­maður kon­unnar vildi ekki...
Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar
LandiðUm landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eig­and­inn skeytir ekk­ert um dags­sekt­irnar

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­lands (HAUST), und­ir­býr nú stefnu á hendur fyr­ir­tæk­inu Móglí ehf. á Eski­firði, vegna afar olíu­meng­aðra lóða fyr­ir­tæk­is­ins við sjáv­ar­síð­una í bænum. Und­an­farna fjóra mán­uði hefur Móglí ehf. sætt dag­sektum vegna olíu­meng­aðra lóða við sjáv­ar­síð­una á Eski­firði en heild­ar­sektin er komin upp í tæpar 2,5 millj­ónir króna. For­ráða­maður fyr­ir­tæk­is­ins hefur hundsað ítrek­aðar kröfur um umbætur og ekki sýnt nein við­brögð...
Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“
Landið

Heldur enn í von­ina um að Luna og Stitch finn­ist: „Ég er ekki alveg reiðu­búin að afskrifa þá ennþá“

Setter-hund­arnir Luna og Stitch hurfu þann 11. des­em­ber frá umsjón­ar­fólki sínu á Djúpa­vogi en þeir sáust þann dag á hlaupum inn í Geit­hellna­dal. Hefur ekk­ert til þeirra spurst síðan. Sjá einnig: Enn er tveggja hunda leitað á Aust­ur­landi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“ Samkvæmt Aust­ur­frétt hafa fjöldi fólks, vinir, ætt­ingjar og jafn­vel ókunn­ugir, frá þeim tíma svip­ast um...
Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir
Landið

Ósætti vegna dróna­mynda­töku lög­manns við stjórn­sýslu­hús Ísa­fjarðar – Sakaður um njósnir

Und­ar­legt mál er komið upp á Ísafirði en í síð­ustu viku kvört­uðu starfs­menn í stjórn­sýslu­hús­inu í bænum kvört­uðu til lög­reglu vegna dróna­mynda­töku lög­manns­ins Braga Axels­sonar við stjórn­sýslu­húsið. Eig­in­kona Braga er bæj­ar­rit­ari Ísa­fjarða­bæjar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra. Í frétt bb.is stað­festir Bragi Axelsson, lög­maður, að hann sé sá sem var stað­inn að verki við dróna­mynda­töku við stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði í síð­ustu viku....
Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook
LandiðUm landið

Karl­maður ákærður fyrir að birta nekt­ar­myndir af barns­móður sinni á Facebook

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært mann fyrir stór­felldar æru­meið­ingar og kyn­ferð­is­brot gagn­vart barns­móður sinni en mað­ur­inn deildi nekt­ar­myndum af henni á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook og Snapchat ásamt nið­ur­lægj­andi texta en mbl.is greindi frá mál­inu. Maðurinn er sagður hafa birt fimm myndir af fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni nak­inni en krot­aði fyrir brjóst og kyn­færi hennar. Þá er hann sagður hafa hótað að birta mynd­irnar á...
Vestfirðir fá mest af byggðarkvótanum – Suðurland rekur lestina
LandiðUm landið

Vest­firðir fá mest af byggð­ar­kvót­anum – Suð­ur­land rekur lest­ina

Almennum byggða­kvóta hefur verið úthlutað til 42 byggð­ar­laga í 25 sveit­ar­fé­lögum á fisk­veiði­ár­inu 2024-2025 en greint er frá þessu í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu. „Atvinnu­vega­ráð­herra er heim­ilt að ráð­stafa afla­magni í óslægðum botn­fiski til að styðja byggð­ar­lög í alvar­legum og bráðum vanda vegna sam­dráttar í sjáv­ar­út­vegi og mæta áföllum sem fyr­ir­sjá­an­leg eru vegna veru­legra breyt­inga á afla­marki ein­staka teg­unda. Heild­ar­ráð­stöfun byggða­kvóta...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Landið

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Landið

Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Landið

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Landið

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir