„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aldrei verið meiri líkur á að smástirni rekist á jörðina – Á við 500 kjarnorkusprengjur

Aldrei verið meiri líkur á að smástirni rekist á jörðina – Á við 500 kjarnorkusprengjur

Líkurnar á að smá­st­irnið „borg­areyðir­inn“, sem talið er að muni leggja leið sína í átt að jörðu innan ára­tug­ar­ins, muni lenda á jörð­inni, hefur nú hækkað en hættan er meiri en nokkurn tím­ann áður í mann­kyns­sög­unni, eða síðan síð­ast skall á jörð­inni smá­stirni og eyddi risa­eðl­unum.

Smá­st­irnið 2024 YR4 hreyf­ist um þessar mundir í öfuga átt við plánet­una okkar og er statt í krabba­stjörnu­merk­inu. En NASA gerir ráð fyrir að hinn 100 metra breiði berg­klumpur muni breyta um stefnu á næstu árum og koma aftur á svið jarðar árið 2032, hugs­an­lega lenda á plánet­unni og koma af stað spreng­ingu á við 500 kjarn­orku­sprengjur.

NASA hefur ítrekað end­ur­metið lík­urnar á að YR4 lendi á plánetu okkar á næstu sjö árum og þar til í gær var hlut­fallið 2,6 pró­sent, 0,1 pró­sent undir því hæsta í sög­unni. Innan við sól­ar­hring eftir að það hlut­fall var hækkað, hefur geim­ferða­stofn­unin hins vegar hækkað það enn einu sinni, sem gerir það nú lík­leg­asta skráða smá­st­irnið til að rekast á jörð­ina.

Hlut­fallið setur hætt­una á árekstri fyrir ofan smá­st­irnið 99942 Apophis, „Guð glund­roða“, sem upp­götv­að­ist árið 2004 og var gefið 2,7 pró­sent líkur á að lenda á jörð­inni árið 2029. Rann­sókn­ar­mið­stöð NASA sem rann­sakar mögu­lega árekstra við jörð­ina (CNEOS) hækk­aði opin­ber­lega hætt­una á árekstri árið 2032 um 0,4 pró­sent á einni nóttu upp í 3,1 pró­sent líkur.

Hlut­fallið þýðir um það bil að lík­urnar á árekstri sé einn á móti 32, sem þýðir að þó lík­urnar hafi verið hækk­aðar, er enn mjög ólík­legt að það lendi á plánet­unni. Breyt­ingin var gerð eftir að stjörnu­fræð­ingar gátu gert ítar­legri athug­anir á hugs­an­legri braut geim­fyr­ir­bærs­ins, þó að það sé enn í tug­þús­unda kíló­metra í burtu.

Ef það lendir á jörð­inni, telja vís­inda­menn að það gæti lent með hugs­an­legri orku­losun 7,7 megatonna af TNT, nægu afli til að jafna borg við jörðu. Auk þess að spá fyrir um hugs­an­lega tíma­línu fyrir mögu­legum árekstur YR4, hafa emb­ætt­is­menn einnig kort­lagt hvar hlut­ur­inn gæti að lokum lent.

NASA telur að smá­st­irnið gæti lent hvar sem er á stórri land­ræmu sem spannar þús­undir kíló­metra, með hugs­an­legum árekstra­svæðum, þar á meðal Kyrra­haf­inu, norð­ur­hluta Suður-Ameríku, Atl­ants­haf­inu og Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“